Yfirlýsingar

Hér hyggst Dóri safna saman skemmtilegum yfirlýsingum annarra meðlima sem honum þætti forvitnilegt að sjá þá standa við.

Yfirlýsing 1. “Jói og bíllinn”

Jóhann Þórir á bíl sem er fokking drasl en hann ætlar hinsvegar ekki að selja hann fyrir minna en 150.000 (ath. lækkað úr 200.000 á þeim tíma sem það tók mig að draga upp síman og ýta á rec.)
Jóabíll

Bíllinn sem um ræðir.
Yfirlýsingin hér.

Yfirlýsing 2. “DarrE og jakkafötin”

Er við sátum fyrir utan Viktor í sólinni að troða í okkur dýrum borgara varð Darra Eyþórs starsýnt á alla jakkafatalubbana á leiðinni í og úr hádegishléi. “Svona ætla ég aldrei að verða” tautaði DarrE. Upp kom síminn og yfirlýsingin fest á rafrænt form.
Jakkaföt
Svona ætlar DarrE aldrei að vera við vinnu.
Yfirlýsingin hér.

Yfirlýsing 3. “Hlynur og hárgreiðslan”

Ég vildi óska að hér fyrir ofan stæði Darri Freyr í stað Hlynur en svo gott er það ekki. Hlynur semsagt kommentaði á hárgreiðslu eldri manns og ég var fljótur upp með síman.. sérstaklega þar sem ég sé að þetta er farið að þynnast aðeins að aftan hjá honum greyinu.
Skalli
Svona má Hlynur ekki safna sér.
Yfirlýsingin hér.