Kæra árshátíðarnefnd, aðrir dreymarar,
Við, fyrir hönd annarra dagdraumameðlima (þeim óaðvitandi), viljum forvitnast hér með skort á, og mögulega upprennandi, árshátíðum og öðrum samkomum hjá félagasamtökum óvirkra bindindismanna, öðru nafni Dagdraumar.
Sem valdir aðilar í hátíðanefnd Dagdrauma var ykkur sett það hlutverk að sjá um skipulagningu við Árshátíð Dagdrauma ®. Sökum fjölda mótmæla meðlima varðandi tímasetningu, fjölda meðlima á landinu og annarra mjög “alvarlegra” vankvæða varð ekkert af síðustu hátíð. Úr þessu viljum við bæta! Við erum með hið árlega Lebowski fest (eða á fagmálinu le-báskíí) en það er einfaldlega ekki nóg.
Nú á upprennandi hátíðatímabili, viljum við hvetja til endursamruna nefndarinnar og skipulagningar á, svo ekki væri nema, smá hittings meðal hópsmeðlima. Hafa skal í huga að alltaf mun verða skert mæting, en hittingur er engu að síður nauðsynlegur, sama hvort hann sé í formi árshátíðar, matarboðs eða bara fyllerís. Sumir meðlimir eru og verða staddir erlendis á næstu misserum og því verður að halda fleiri (þá minni jafnvel) hittinga svo að sem flestir geti hist, þó að ei komist allir í senn.
Þetta skeyti er á engan hátt sent á illum nótum, einungis sent með kærleik og ást í huga gangvart náunga dreymara. Við viljum einungis hafa örlítið skipulag á hittingi og hann fyrirfram ákveðin tímalega séð.
Þið herramenn sátuð (sitjið að okkur vitandi) í árshátíðarnefnd og liggið því best við höggi varðandi skeyti þetta. Hvort sem sköpuð sé önnur nefnd, tillögur settar fram af óbreyttum meðlimum eða hreinlega að þær hrynji af skýjum ofan þá er kominn tími á aðgerðir.
Aftur á móti ert það ÞÚ, kæri sammeðlimur dagdrauma, sem berð ábyrgð á því hvort af hittingi verði, því bið ég ÞIG að taka þessu með opnum örmum og sjáir það ekki tilefni til þess að skjóta niður hugmynd, aðeins sökum þess að þú komist ekki það kvöld eða að þér herra, sért bara faggi. Bjóddu frekar til umbóta á dagsetningu og vertu umfram allt jákvæður dreymari!
Með bestu kveðju um ástkæran hitting,
Darri^2