Atburður

Matarboð á föstudaginn

Posted by Hlynur 17 on November 29, 2011
Atburður, Matur / No Comments

Heilir og sælir herramenn!

Nú á föstudaginn býð ég ykkur hjartanlega velkomna heim til mín í vesturbæinn til þess að borða saman, drekka saman og jafnvel nudda saman kynfærum okkar á meðan við hlustum á breskan 70s speed metal.

Hlakka til að sjá ykkur.

Pepp-upp lag:
Deep Purple – Highway Star

Sökum þess..

Posted by Ó3,14 on July 20, 2010
Atburður / 5 Comments

.. að ég hef dvalið á þessu tilverustigi í 25 ár hyggst ég halda upp á það föstudaginn næstkomandi. Þið ásamt tilheyrandi fylgdarliði komið heim til mín og drekkið ykkur hamingjusama með mér og kisunum í þessu svorómaða afmælisteiti. Núna, Frá Ingunn.

jabbathehut1Jabba the Hutt mætir, fokking hress að venju.

Dagdraumagrill hjá Steinsa, tilraun #2

Posted by Stones Mind on August 17, 2009
Atburður, Dagdraumar, Matur / 17 Comments

Sælir góðir hálsar,

Áður en sumri lýkur langar okkur Maríu að bjóða ykkur að grillast aðeins saman hér í Aspargrundinni. Vissulega er erfitt að keppa við nýju svalarhurðina hans Jóa, en við höfum stiga og lasershow. Hvernig líst ykkur á að hittast á miðvikudaginn?

Óli Páll aka. Ó3,14 ásamt tveimur Star-Wars grúppíum í Kópavogi 23. maí 2002.

Óli Páll aka. Ó3,14 ásamt tveimur Star-Wars grúppíum. Óli er ekki grænmetisæta. Kópavogur 23. maí 2002.

KvSH

Tags: , ,

Kjarraholt – (bætið við að vild)

Posted by Kjarri on August 10, 2009
Atburður, Awesome, snjóbretti / 10 Comments

Næst á dagskrá er hið sístækkandi Kjarraholt. Í þetta skipti munu tvær hefðir mætast í einni helgi. Önnur hefðin er öll sú vitleysa sem fer fram á meðan Kjarraholt stendur yfir. Hin hefðin er að drekka viský og reykja vindla á afmælinu mínu.

Engu verður breytt!!!

Maður spyr sig hvað muni gerast þarna um helgina, jú við munum fara á jökulinn, við munum fara í fyllerísgolf, við munum (mjög líklega) hoppa í lónið, við munum borða góðan mat, við munum reykja vindla og við munum drekka heilan helling af áfengi.

Hvað er nauðsynlegt að hafa með sér í ferðina?

Mexíkóhatt
3 Johnny walker flöskur
ógeðslega ljótan fisk
vindla
eitthvað til að renna sér á

BJÓR
drasl til að leika sér með
Hafnaboltadót
Krikketdót
skóflu
Vélsleða
góða tónlist
Gítar
Hallærislega svalt golfoutfit
staupglas fyrir morgunstaupið
defibrilator
eitthvað gegn síkingu í auga
Rússneska lopahúfu
Breiðlinsu
Prenta út eftirfarandi mynd í líkamsstærð svo Dóri geti komið með:

Dóra langar með :(

Dóra langar með :(

Ég hlakka mikið til að sjá ykkur um helgina.

Bílar sem fara á föstudegi

Bíll #1 - fer klukkan 16:00 úr bænum

  • Kjarri
  • Harpa
  • 2x laus pláss

Geimskutla #1 – Launch@1700, arrival@1703

  • Stainer Hgui
  • Bragi Þór
  • 2 laus pláss

Bílar sem fara á laugardegi

Bíll #201

  • X
  • X
  • X

[Edit]

Grill á miðvikudaginn?

Posted by Stones Mind on August 03, 2009
Atburður, Awesome, Dagdraumar, Nöldur, Pólitík, Strákastöff, Tíska, Uncategorized / 8 Comments

(Er stemning fyrir því að hittast hér í Aspargrundinni á miðvikudaginn og grilla?)

-Edit:

Ætlum að færa þetta yfir í fellsmúlan, ég og Steinar erum sammála um að það er skemmtilegra fyrir hann að ég sjái um að þrífa upp eftir ykkur. Glöggir Draumarar vita eflaust að það er komin svalahurð á íbúðina hjá mer og því þurfum við ekki að labba hringin lengur til að grilla. Húrra!

Jói

Braga þykir gott að borða og ætlar að grilla eitthvað gott. Litlu-Jól Verzló, 5. des 2002

Braga þykir gott að borða og ætlar að grilla eitthvað ljúfengt. Litlu-Jól Verzló, 5. des 2002

Bragalundur

Posted by Stones Mind on July 31, 2009
Atburður, Awesome, Dagdraumar / 1 Comment

Þú keyrir gegnum Selfoss. Eftir að þú keyrir undir rafmagnslínurnar beygir þú til vinstri (þ.e. norður) inn á veg merktur Oddgeirshólar. Þegar þú hefur keyrt þann veg nánast á enda sérðu bústað á vinstri hönd. Það er bústaðurinn sem þú vilt vera í.

Ég tek Braga með mér, leggjum af stað úr bænum um kl 19:30. Ef einhver hefur hug á því að fara fyrr þarf sá hinn sami að taka Braga Þór með sér.

ATH.  Þeir sem munu sofa inni þurfa að koma með rúmföt og/eða svefnpoka.

Vagg og velta.

kv, Rocks

Tags: , ,

Þá er það bara næsta verslunarmanna, Helgi

Posted by Stones Mind on July 28, 2009
Atburður, Awesome, Dagdraumar, Fat Hlynur, Myndir, Nöldur, Pólitík / 29 Comments
Þessi óheppni einstaklingur hefur tvær hægri lappir og á einstaklega óspennandi bjórtrekt, svo ekki sé meira sagt.

Þessi óheppni einstaklingur hefur tvær hægri-lappir og á einstaklega óspennandi bjórtrekt, svo ekki sé meira sagt. Eins er tjaldið hálf tætingslegt. Þjórsárdalur, 6. júlí 2002.

Plan #4: Darratún

Laxárdalur í dölum, getum gist á túni í eigu ættar Dragans. Þetta er í svona 2,5 klst akstri frá 101 og þarna getum við verið allveg útaf fyrir okkur.  Ef einhverjir eru solgnir i ferskan silung höfum við líka aðgang að veiðisælu stöðuvatni þar.

Plan #5: Álfaskeið

Álfaskeið er tjaldsvæði rétt hjá Flúðum þar sem Jóalegan heitin var haldin. Enn hefur ekki svarað í símann þar en við vonum að þau hafi gleymt gas-sprenginga Hlyni og leyfi okkur að vera þar. Aksturtími er um klukkustund. Ef við erum snemma á ferðinni gætum við náð efra svæðinu þar og fengið að vera útaf fyrir okkur, það er samt ekki víst.

Plan #6: Bragalundur

Sjá færsluna hér að ofan.

Hinir staðföstu

Hinir staðföstu eru þeir sem hyggjast taka þátt í umræddum hátíðarhöldum óháð því hvor staðsetningin verður fyrir valinu.

  1. Stainer Hgui
  2. María Sif
  3. D8
  4. Helgi Jóhannsson
  5. Björn Gestsson (hluta helgarinnar)
  6. Bjarni Ólafur
  7. Eva
    • Stefán Birgir
  8. Bragi Þór Antoníusson
  9. Jói
  10. Annska
    • Ninja Tíbrá
    • Skuggi Nóel
  11. Fjóla Ósk (hluta helgarinnar)
  12. Friðrik (hennar Fjólu) (hluta helgarinnar)
  13. Addi Magg
  14. Hlynki babe

Tækifærissinnarnir

Í þennan hóp falla þeir sem hyggjast koma með séu ákveðin skilyrði uppfyllt, ss. veður- og jarðskjálftaspá.

  1. Kjartan Dór (Kemur eina nótt ef hann getur)
  2. Harpa K
  3. Snorri (Hef ekkert heyrt frá honum, en geri ráð fyrir að hann mæti) Veikur
  4. HHH
  5. Steinvör
  6. Sunna Björg

Athugasemdir

Í athugasemdirnar væri gott að fá upplýsingar um hverjir hyggjast mæta og málefnalegar umræður um hvor áætlunin sé betri. Þeir sem hafa aðgang er einnig bent á að smella á edit og uppfæra færsluna sjálfir.

[Edit]

Tags: , ,

Er ekki kominn tími á aðra útilegu, nördið þitt!

Posted by Stones Mind on July 13, 2009
Atburður, Dagdraumar, Fat Hlynur / 13 Comments

Byrjum á einni mynd.

Hlynur Hallgríms í miðstjórnarferð NFVÍ 20. júlí 2002

Hlynur Hallgríms í miðstjórnarferð NFVÍ 20. júlí 2002. Hann var hress.

Eftir ævintýralega og vel heppnaða Humarhátíð er eftir engu að bíða, sól fer lækkandi og haustið nálgast. Hugmyndin er að fara eitthvað stutt og reyna helst að vera útaf fyrir okkur. Gítarstemning, bjórdrykkja, góðar sögur og hálfgrillaður matur á beygluðum pappadiskum.

Hvenær:  Helgina 24. – 26. júlí, 2009.
Hvert: Þangað sem viðrar vel.

Hverjir verða memm?

  1. Stainer Hgui
  2. María Sif
  3. Annska aka. the MILF
  4. Jói
  5. Nelli
  6. Harpa Nella

[Edit]

kvSH

Tags: , , , , ,

Ekki valda mér vonbrigðum strákar!

Posted by Hlynur 17 on July 04, 2009
Atburður, Awesome, Barsmíðar / 2 Comments

hofn1

____________________________________________________________________________________

Í fullkomnum heimi þá eru báðar (allavegana önnur, kommon) þessar líkamsárásir komnar til af því að Whorebag Darri (eða WD40 eins og hann kallar sig þegar hann liðkar upp þessar “með reynslu”) var að púlla stelpur í sambandi – reiðir kærastar. Am I right?

Síðan er náttúrulega AUGLJÓST að það voru Dagdraumar sem að fóru í sundferðina. Ég veit bara ekki hvort ég eigi að veðja á Braga eða Dóra… hmmmm….
EKKI VALDA MÉR VONBRIGÐUM!!

Höfn – Partýtjald

Posted by Stones Mind on July 02, 2009
Atburður, Awesome / 13 Comments

partytjald

Er einhver áhugi fyrir því að fjárfesta í svona partýtjaldi? Það er spáð hressandi rigningu á laugardaginn og væri þá gott að hafa svona tjald fyrir samkvæmi, jafnvel dansleik.

7290 + 4*1590 = 13650 kr.  Við erum 16. Ef við gerum ráð fyrir að rúmlega 2,5 einstaklingar muni aldrei borga eru þetta 1000 kr á mann. Eins er inni í myndinni að hafa smærra eignarhaldsfélag um tjaldið, segjum 5 manns, ef áhugi er fyrir því.

Ég gæti þá keypt það á morgun.  Svo þyrfti að redda böndum til að tjóðra það niður.

SH