Archive for January, 2011

Nýmóðins Þorraveisla A La Americana

Posted by Skull-Darri on January 28, 2011
Uncategorized / 2 Comments

Nú er kominn sá tími árs sem að fólk safnast saman og rifjar upp gamla tíma og gæðir sér á yndis óferskum súrsuðum og almennt vel “rotvörðum” mat.

Þið þekkið nú allflest þessa rétti. Við erum að tala um Svið (sbr TeamAddiMagg á árshátíð dagdrauma), súrsaðir hrútspungar, sviðasulta, lifrarpylsa, blóðmör og þar frameftir götunum…

Fyrir minn part þá er ég ekki beint æstur yfir matseðilinum á hlaðborðum á þessum tíma árs.. Sumum finnst þetta hið ljúffengasta og smjattar og kjammsar á pjeng og pylsum.  Það er ekki beint innihald matarins sem er hvað fælir mig frá, heldur aðferðin á bakvið framreiðslu þessa ágæta Þorramat. Súrsunin, söltunin og þar fram eftir götunum..

Því finnst mér miður að þessi ágætu hráefni fari á mis við mig og minn maga. En lausn er nú komin á því!

Yfir kaffibolla hjá Herra Eyþórssyni leiddist umræðan að þorramat, sem er svosem ekki frásögu færandi nema að ný hugmynd kom upp .. Þorra BBQ matur!

Við erum að tala um Svið í BBQ sósu (framborin eins og Rif), bökuð kartafla, salat og bbq sósa on the side. Flamberaðir BBQ hrútspungar marineraðir í JackDaniels BBq sósu a la suðurríkin. Hrútspungar og svið með frönskum BBQ sósu og coleslaw..

Auðvitað verður þetta allt grillað á Útrásarvíkingagrilli með 6 brennurum, 4 gashellum og 2 gaskútum.. Annars er ekkert varið í þetta!

Svo má ekki gleyma alvöru grilli!

Svo má ekki gleyma alvöru grilli!

Þetta er loksins þorramatur sem ég gæti borðað (kannski ekki mörgum til undrunar, enda nóg af BBQ ! ) .. Ég hvet alla til að prufa að taka upp þessa nýmóðinshætti á framreiðslu gamaldags mats.. Ekki láta hráefnið fara til spillis, grillaðu það bara.

Vísundur í Bretlandi kemst að merkilegri niðurstöðu

Posted by Skull-Darri on January 05, 2011
Uncategorized / 2 Comments

Vísundur í Bretlandi komst að þeirri niðurstöðu að kaffidrykkja með morgunmat sé heilsuskemmandi og “ógeðslega fokking vont” eins og hann orðaði það.

Kaffi er fokking ógeðslegt

"Kaffi er fokking ógeðslegt"

Eftir umfangsmikla rannsókn á morgun-högun kúreka í Bretlandi komst vísundurinn að því að kaffi, drukkið sér, sé það versta sem hægt er að fá sér með Seríosi.
Vísundurinn sem uppruninn er frá Texas í bandaríkjunum, flutti sig til bretlands á miðjum 3ja áratugi síðustu aldar og segir fara vel um sig í te menningunni.
“Þetta helvítis kaffi er svo fokking ógeðslegt, lyktar illa, alveg svart og gerir þessa kúreka alveg snælduvitlausa. Tala nú ekki um ef þú ert að borða seríos með því, ojjjjj” er haft eftir Vísundinum, en sjálfur segist hann hafa drukkið kaffi þegar hann bjó í Bandaríkjunum, en fannst það aldrei neitt spes.