… when the baby grows up to be an old man and dies, they bury its body in the ground, but its soul goes to heaven…
Börn börn börn. Þrjú á leiðinni og hamingjan blómstrar á hverju strái ópíumgrenis. Þetta þýðir að í lok sumars eru komin alls þrjú hreinræktuð Dagdraumabörn og 2 fósturbörn (Ninja fær að vera með af því hún er ninja, og barnið hans haraldar fær að vera með vegna möguleika þess sem kjölfestufjárfestir í Dagdrauma-húsinu. )
En hvort sem þessi börn eru hreinræktuð dagdrauma-börn eða ekki, það skiptir ekki öllu. Það sem skiptir öllu eru nöfnin. Iðulega í partíum heyrist umræðan um hvað börnin tilvonandi eiga að heita, menn eru mjög fyndnir og stinga upp á Sæborg eða Sámur Ægir (athugasemd höf. : þetta er ekki fyndið lengur) reyna að vera megalómanískir og stinga upp á nöfnum eins og Óli Páll, Helgi, Darri, osfrv, eða reyna að fá í gegn góð nöfn eins og Randver eða Tölvuver.
Það sem ég legg hins vegar til, er að gleyma nöfnunum, og hugsa bara um upphafsstafina í þeim. Það eru þeir sem skipta máli og munu endanlega gera þennan hóp ofur-töff. Ef við eignumst allir börn, þá gæti skammstöfunin á börnunum t.d. litið svona út :
D.a.g.d.r.a.u.m.a.r.t.ö.f.f.
þið verðið að viðurkenna að þessi skammstöfun er helvíti töff. Töff er meira segja í nafninu, sjáið þið það ekki!
Það sem ég meina, er að hvert barn stendur fyrir einn staf í þessu 14 stafa orði, og því verða börn dagdrauma officially dagdraumabörn. Hér á við að gera orð George Foreman að okkar: Við erum svo stoltir af börnum dagdrauma að við setjum nafn okkar á þau.
Glöggir lesendur sjá hins vegar líklega að Dagdraumartöff er andvana fætt, gengur ekki upp, enda hvorki S í því (fyrir Skuggi) eða S í því (fyrir Stefán). Og hvað er þá til ráðs, jú, Helgi til hjálpar.
Skammstöfunin verður því:
D.a.g.d.r.a.u.m.a.r.E.n.g.i.n.n.T.u.s.s.i
þetta nafn inniheldur þessi tvö ‘s’ sem við erum nú þegar búin að fá, N fyrir ninju, auk þess sem þetta minnir okkur á skyndilegt og ósorglegt brottfall Tussa Þrumu úr dagdraumum. Ég veit að þetta myndi gleðja Darra Ey-ánauðþórs mikið, fyrir utan að þessi skammstöfun gerir ráð fyrir fleiru en einu barni á haus sem mun einnig gleðja Jóhann Þóri.
Svo að, nú hefst Barna-Hangman Dagdrauma:
_._._._._._._._._._._.n._._._._._._.s.s._
og munið:
“you can’t shoot blanks if you want to fill in the blanks” – Billy Blanks, upphafsmaður Tai-Bo.