Enn og aftur sannast það að karlmennska í Dagdraumamanninum er mun sterkari en í meðal manni… nýjasta dagdraumabarnið að sjálfsögðu drengur!!!
Archive for January, 2010
Sællt veri fólkið.
Mig langaði að deila með ykkur skemmtilegri reynslusögu minni sem viðskipta”vinur” hins frábæra símafyrirtækis NOVA.
Forsaga málsinns er sú að fyrir u.þ.b einu og hálfu ári síðan varð ég mér úti um svokallaðan 3G netpung hjá því blessaða símafyrirtæki. Var mér þá lofað að þegar að sá eins árs þjónustusamningur sem ég keypti hjá félaginu rynni út myndi hann ekki ganga yfir í 3G áskrift.
Hinsvegar þegar að rúmt ár er liðið byrja reikningarnir að streyma inn um heimabankann. Ég geri ýmsar tilraunir til að ræða við svokallaða þjónustufulltrúa NOVA sem fullvissa mig um að þetta sé allt mér að kenna og mér sé hollast að borga hið snarasta ellegar verði fari þeir til handrukkara sem heita Intrum. Ég geri það í tvígang og er mér þá fullvissað um að nú sé áskriftin mín uppsögð og þurfi ekki að borga meira fyrir pung sem ég veit ekki einusinni hvar er.
Þegar svo reikningur kemur til mín í þriðja skiptið í morgun stekkur mér í skap yfir þessum yfirgengilega góðu vinnubrögðum NOVA. Þannig að ég tek mig til og sendi þennan tölvupóst til allra starfsmanna nóva, sendla, forritara, kerfisstjóra o.s.frv. og fréttaveitu mbl og vísis.

Eftir rúman korter hringir í mig ein Guðný sem er yfirmaður þar og eftir smá umræðu við hana felst hún á að atburðarrás þessi hafi kanski ekki verið alfarið mér að kenna. Eftir enn meira þras felst hún meira að segja á að vera svo gífurlega rausnarleg að endurgreiða mér þá tvo reikninga sem ég hafði þegar greitt, eftir að ég hafði þó þurft að ganga þónokkuð á eftir því. En eftir sit ég með að hafa borgað dráttarvexti sem höfðu safnast upp.
Ég vill hrósa NOVA fyrir frábærlega framúrskarandi þjónustu og hvet alla þá sem hafa gaman af því að rífast við símafyrirtæki og 14 ára þjónustufulltrúa sem eiga í stökustu vandræðum að fallbeygja orðið kú að skipta yfir í NOVA hið snarasta.
NOVA megi þú brenna í helvíti að eilífu.
… ég sakna The Situation
