Archive for December, 2009

Gleðileg Jól Börnin góð

Posted by Skull-Darri on December 25, 2009
Uncategorized / 2 Comments

Við skulum elska náungann og sérstaklega börnin um jólin, því er ekkert betra en…

Það sem Dóra finnst gaman að gera.

Posted by Dóri-í-Dós on December 24, 2009
Awesome, Dagdraumar / 3 Comments

Fara nidrí bæ á Þorláksmessu og labba Laugarveginn. Ná augnkontakti við einhvern ókunnugan, labba beint til viðkomandi og heilsa með “Langt síðan ég hef séð þig” o.s.frv.

Sportið er svo að sjá hversu lengi maður getur talað um daginn og veginn án þess að vera spurður til nafns.

Big Lebowski

Posted by Bjarni Ólafur on December 23, 2009
Uncategorized / 4 Comments

Takk fyrir að bjóða mér, fíflin ykkar

220077-2

Kveðja, Stefán Birgir

p.s. Ef þið eruð að velta því fyrir ykkur hvað sé í glasinu þá hafið þið rétt fyrir ykkur, white russian m/ Brjóstamjólk.

Gleðileg jól… punjabi style!

Posted by Skull-Darri on December 20, 2009
Uncategorized / 2 Comments

Ég fæ alltaf jólaandann þegar ég heyri klassísku jólalögin.. eins og þetta.

Lebowski Fest 09

Posted by Skull-Darri on December 16, 2009
Uncategorized / 4 Comments

Helgisan ætlaði að búa til eitthvað fling varðandi LebowskiFest.. en þar sem ég á að vera að læra fyrir próf og ekkert er að gerast á þessari síðu ákvað ég að taka þetta í mínar hendur.. (allavega til að jump starta þessu.. svo má breyta þessari færslu og laga) hérna koma algengar spurningar og bestu svör við þeim sem ég hef…

Hvar er LebowskiFest í ár ?
Þetta verður haldið á Arnarnesi hjá Ragga (kóp) þriðjudaginn 22.desember. (götuheiti og nr kemur síðar)

Hvað kostar að vera með í White Russian og því ?
Það er heldur ekki komið á hreint, við erum að vinna í að tollflytja eins mikið og hægt er. Snorri ætlar að taka eitthvað veit ég, vonandi að hákon geri það líka ef hann getur. (það má víst koma með 1L af vodka og 1L af kahlua gegnum tollin (skv helga)).  Gróflega er reiknað með að það kosti á bilinu 1.000 – 2.000 kr á mann.

Verður sama snið á þessu og síðustu ár?
Fokk Já! Sloppur, hvítur rússi, suttbuxur og sveittleiki verður til staðar þó svo að staðsetningin sé aðeins rúmmeyri í ár. Annað breytist ekki!

Hverjir koma í ár?
Hversu margir koma er ekki alveg komið á hreint, þannig endilega kommentiði og látiði vita af komu ykkar og allra sem eru á ykkar vegum. En hér er grófur áætlaður mætingalisti m.v. síðustu ár (endilega þurrkið ykkur út, kommentið eða bætið við eftir þörfum á listann)

Helgi
Dóri
Darri
DarrE
Snorri
Bjössi
Steinar
Jói
Raggi
Gunni Mjak
Bragi
Hlynur
Ópí
Hákon
Níels
Kjarri (vinna?)
Einar Örn
Addi Magg (?)

Varðandi geimferðir

Posted by Stones Mind on December 13, 2009
Awesome, Fat Hlynur, Tækni / 4 Comments

Vinir,

Það er útlit fyrir að á næsta ári muni geimferðir loksins verða í boði fyrir almenning. Þá er ég að sjálfsögðu að tala um ferðir með Space Ship Two sem Virgin Galactic eru byrjaðir að selja. (>$20m ferðirnar sem hafa verið í boði hingað til geta ekki talist fyrir almenning)

Tölvumynd af geimfarinu. Í bakgrunni eru jörðin og tunglið.

Tölvumynd af geimfarinu. Í bakgrunni eru jörðin og tunglið.

Ferðin gengur þannig fyrir sig að geimfarið er hengt neðan í sérstaka flugvél, White Knight Two, sem flýgur upp í rúmlega 15 km hæð. Þar er geimfarinu sleppt og kveikt í rakettu af stærri gerðinni sem drífur það upp í um 110km hæð yfir sjávarmáli. Í nokkrar mínútur mun farið ferðast á 4200km/klst (Mach 3.4) hraða. Sökum hins gríðarlega hraða mun miðflóttakrafturinn vega mjög á móti þyngdaraflinu sem mun vera ótrúleg tilfinning. Eins er talað um að á niðurleiðinni verði á einhverju tímabili kraftarnir jafnir og því algert (gervi)þyngdarleysi.

Þá er það aðal atriðið. Í hverja ferð komast 6 farþegar og kostar í dag miðinn $200.000. Að öllum líkindum mun það þó lækka verulega á næstu árum þegar geimförunum fjölgar en amk. 2 fyrirtæki segjast verða tilbúin og farin að fljúga vikulega 2012. Hvernig líst ykkur á að við skellum okkur eina salíbunu kringum 2020? Verðið verður pottþétt komið niður fyrir $50.000 sem er nú algjörlega þess virði, ekki satt?

SH

Hvað gerir Dóri þegar honum leiðist?

Posted by Dóri-í-Dós on December 10, 2009
Uncategorized / 8 Comments

Góð spurning.

Núna síðast þegar mér leiddist og internetið, af einhverri furðulegri ástæðu, virkaði fullkomlega þá gerði ég eftirfarandi:

Skref1. Fór á cam4.com og tók up video af random gellu á webcam.
Skref2. Fór á hina nýju og gríðarskemmtilegu chat roulette þar sem maður tjattar í webcam við random fólk.
Skref3. Spilaði fyrir hann vídjóið og fékk hann til að halda að í dag væri hans happadagur.
Skref4. ???????????
Skref5. Ágóði!!!!

Annars skýrir vídjóið sig sjálft.

Dagdraumar flytja

Posted by Stones Mind on December 08, 2009
Uncategorized / 12 Comments

Serverinn okkar flytur frá Newark í BNA til Lundúna í kvöld. Af þeim sökum mun vefurinn liggja niðri í 30-60 mínútur. Ég hvet ykkur til að fara í File -> “Save Page as” til að eiga afrit af forsíðunni sem þið getið skoðað á meðan.

Rocks

Tags: , ,

Jæææææja drengir..

Posted by Dóri-í-Dós on December 06, 2009
Uncategorized / 14 Comments

Botninum í sjónvarpsframleiðslu hefur verið náð…
Eigum við að ræða þetta eitthvað?

Varðandi LebowskiFest..

Posted by Skull-Darri on December 05, 2009
Uncategorized / 12 Comments

Það var einhver misskilningur milli mín og Ragga varðandi tímasetninguna.

Raggi missir húsið (þeas ekki einn lengur) 26.des.. þannig ef við viljum halda Lebowski hjá honum þyrfti það að gerast milli 17. – 22. des .. (mínus 19.des, þá er raggi upptekinn) …

Ef þetta er eitthvað sem að menn telja ákjósanlegt þá bara velja dag þarna, annars er bara að finna aðra staðsetningu (skilst að DarrE sé að pæla í möguleikanum að halda þetta hjá sér ef all else fails) …

Reynum nú að ákveða þetta sem fyrst, svo ég geti gefið ragga endanlegt svar..