Archive for October, 2009

Facebook Terrorismi.

Posted by Dóri-í-Dós on October 27, 2009
Awesome, Barsmíðar, Dagdraumar, Fat Hlynur / 13 Comments

facebook-terrorismi3

Árshátíð

Posted by PartýSnáðinn on October 24, 2009
Uncategorized / 5 Comments

Heilir veriði og sælir drengir mínir.

Hvernig er nú staðan á árshátíðarnefnd Dagdrauma?  Eru Kjarri, Steinar og Óli að luma á einhverju gúmmelaði fyrir okkur á næstunni?

Dragan

Hvahh engin pólitík ?

Posted by Bjarni Ólafur on October 23, 2009
Uncategorized / 3 Comments

Verðum að redda því.

BSRB héldu fund. Þar voru mættir menn. Þeir sungu Nallann.

HHG skrifar um það.

“Þeir Össur og Árni Páll sýna fórnarlömbum kommúnismans virðingarleysi með því að syngja Internationalinn og steyta hnefa.”(footnote 1)

Ég vil biðja ykkur um að hugsa áður en þið farið með faðirvorið. Þið sýnið fórnarlömbum þeirra sem hafa verið drepnir í nafni kristinnar  trúar (footnote 2) virðingarleysi.

1. Pressan.is Hannes Hólmsteinn Gissurason 23. október 2009.

2. Þeir eru margir. Kannski Svartbók Trúarinnar geti svarað því.

Sem ég er séní,þá…

Posted by Helgi Jó on October 23, 2009
Uncategorized / 3 Comments

Sem ég heiti Helgi, þá hef ég oftar en ekki lent í geysilega hressilegum og skemmtilegum nafnabröndurum. Steinar þreytist ekki á sínum gamla klassíker, Dóri rifjar sinn upp hverja Verslunarmannahelgi, og í hvert skipti sem ég kynnist nýrri manneskju kemur ákveðinn tímapunktur í lífi hennar að hún er, að svo er virðist, tilneydd til að segja: Góða helgi, helgi.

Sem hálfbróðir Skugga Nóels, og eldri en tvævetra, finnst mér ég því vera í góðri aðstöðu til þess kenna honum nokkrar lexíur um lífið, og lífsgildin. Það er margt sem ég get kennt þér, margt sem þú getur lært af mér, og enn fleira sem þú getur numið af mér.

Lexía númer 1. Aldrei trúa því þegar einhver segir við þig: “Þú getur orðið það sem þú vilt”

Lífið er erfitt Skuggi, og þú getur ekki orðið það sem þú vilt, og því fyrr sem þú áttar þig á því, því betra verður líf þitt. Þá muntu ekki lifa í skýjaborg drauma þinna um betra líf, heldur í núinu. Í hvert skipti sem þú dregur andann, minn kæri Skuggi, þá muntu anda loftinu eins og um séu að ræða síðustu atóm sem munu flæða um líkama þinn. Þú munt ganga um strætin og hugsa “heimur, hér er ég, taktu mig eins og ég er” (þó ekki á jafn samkynhneigðan hátt og þetta hljómar, þú munt geta orðað þetta karlmannlega)

En afhverju segi ég þetta við þig minn kæri Skuggi, hvernig get ég alhæft að þú getir ekki orðið það sem þú vilt ? Þú getur menntað þig, þú getur tekið hvaða starf sem er, en samt Skuggi, samt geturðu ekki orðið allt, já allt, sem þú vilt.

Nei, því þú verður aldrei skjótari en hann Lukku-Láki:

ll

Í dag er 20. október

Posted by Hlynur 17 on October 20, 2009
Strákastöff, Tónlist / 6 Comments

Sem að þýðir að unnusta okkar, Júlía Skagfjörð, á 23 ára afmæli.

Afmælisbarnið

En það þýðir einnig að smellurinn Julietta kom út á þessum degi fyrir 3 árum síðan.

Julíetta – Níels Bjarnason syngur

Er’ekk’allirífíling?

Posted by Hlynur 17 on October 20, 2009
Awesome, Húmor, Tónlist / 3 Comments


Mér sýnist vanta að létta aðeins stemminguna og “clear the air”, eins og Ameríkaninn myndi segja.

Hvað haldiði að það líði langur tími þangað til við verðum beðnir um að taka þennan hljóðbút niður?

Snjóbrettaferð

Posted by Kjarri on October 19, 2009
Uncategorized / 22 Comments

http://www.rud-gr.net/wallpaperfolders/wallpapers-snow/2006/2006-nassfeld-powder-maciek-1.jpg

Eins og flestir vita þá eru nokkrir meðlimir innan Dagdrauma búnir að ræða það að fara í snjóbrettaferð einhverstaðar milli janúar og mars. Ferðin sem um ræðir væri þá líklegast til Svíðþjóðar en gæti endað líka sem Noregsferð.

Óli er sem sagt að reyna redda mjög góðum díl á gistingu í gegnum chalmers félaga. Ef það tekst þá verður þetta mjög ódýr ferð og á stað þar sem Óli hefur verið áður og mælir með.

Ef gisting fellur yfir þá er ég að tala við frænda minn sem býr í Noregi og er með verulega mikil sambönd þar í landi. Hann bað mig um að senda sér email um ca. fjölda þeirra sem hafa áhuga, hvenær við viljum fara og hvað við viljum gera.

Ég er hér með að spurja,

Hverjir hafa áhuga á því að fara í þessa snjóbrettaferð?

Hvaða tími hentar ykkur best, janúar, febrúar, mars?

Hvað viljum við gera? Ég veit svarið við þessari spurningu!!!!

Klassík fær nýtt spin

Posted by Hlynur 17 on October 18, 2009
Húmor, Keppni / 11 Comments

Hvað er verra en að reka tánna í þegar maður er nývaknaður?

Helförin.

Lolocaust

Lolocaust

Hvað er verra en helförin?

Nelli í IcyTower.

Ykkur er velkomið að koma með fleiri “Nelli í IcyTower” brandara.

Tags: ,

Hversu mikið hata ég Facebook spjallið?

Posted by Hlynur 17 on October 13, 2009
Nöldur, Nördadót / 10 Comments

Meira en örfá orð fá lýst.

Ekki nóg með það að þegar að einhver spjallar við mig á Facebookinu að þá deselectast það sem að ég er að gera heldur er nú er spjallið búið að taka upp á því að skipta yfir í iTunes (ef ég er að hlusta á tónlist) eða VLC (ef ég er að horfa á myndband) og stöðva það sem er að gerast og byrja á fælnum upp á nýtt. Í dag, í stað þess að gefa frá sér þetta fallega “pop” hljóð tók spjallið síðan upp á því að koma með meldingu í hvert einasta skipti sem að einhver segir eitthvað á spjallinu.

I hatez itz!

facebook_pop

Tags: ,

- Helgoktóberfest – das Beste was passieren da Moses

Posted by Helgi Jó on October 08, 2009
Uncategorized / 9 Comments

Drengir, til að þið séuð nú allir með það á hreinu þá býð ég ykkur öllum í mat á morgun, kl. 17.00, zulu.(Ó3,14 bætir hér inn nýjustu fregnum, en þær segja að herlegheitin byrji kl. 18.00 zulu). Borðhald mun hefjast stundarfjórðungi eftir það, og ofurölvun fylgja í kjölfarið nokkrum sekúndum síðar. Skilyrði þess að mæta í matinn hjá mér er að drekka sig ofurölvi, og með því að mæta samþykkið þið þann skilmála.

Bringen Sie Ihre eigenen Getränke, eins og þeir segja (BSIEG, eða BYOB), en fyrir utan það þá býð ég upp á heila 3, 3 bjóra á mann með matnum.

Hins vegar fékk ég símtal áðan:

Helgi: Góðan dag
Níels: Elsku ektavinur
Helgi: ?
Níels: Hey, ég var nú bara að pæla skommmm, að sko, ég vil  vera geegt góður við ykkur strákanna skomm, og ætla því að splæsa á ykkur alla um allt kvöldið í tjaldinu á októberfest.

Hlakka til að sjá ykkur,

Góðar stundir.