Archive for September, 2009

Those little things that keep us warm…

Posted by Skull-Darri on September 22, 2009
Uncategorized / 4 Comments

Hár!

Þessi litlu kvikindi eru allsstaðar… Ég er með frekar mikið hár (á frekar völdum stöðum á líkamanum, og stundum ekki á völdum stöðum) og hef ég stundum fengið bara alveg gersamlega nóg af hári…  Þá fer ég að hugsa “til hvers í andskotanum er þetta hár” júju eins og flestir ættu að vita gegnum smá grunnskólanám að hár eru litlir bandormar sem sjúga prótein og blóð úr líkamanum sem orsaka það að vöðvamassi getur alls ekki myndast.

Frekar basic þegar þú hugsar út í það.. ég er loðinn og langt frá því að vera massaður. Þegar ég var ekki loðinn, fyrir nokkrum árum síðan, þá var ég massaður… Hence, meiri hárvöxtur minni massi!

Þetta sést alveg greinilega á samanburðarmyndunum sem ég set hér upp, sem eru partur af minni rannsókn til að útrýma líkamshárum, en ekki höfuð hárum.  Einföld útskýring á því er sú að hár á höfði er algjörlega nauðsynlegt, en ég kem að því hér aðeins síðar, förum í samanburðarmyndirnar.

Mynd 1: Ég tek hér einn velþekktan jútjúb einstakling sem margir kannast við sem “HELMASSAÐI GAURINN Á TRANSFESTIVALINU” eða einfaldlega Techno Viking.  Í mínum áralöngu rannsóknum ferðaðist ég til Berlínar og átti gott spjall við manninn um orsök og afleiðingar líkamshárs. Hann var mér hjartanlega sammála og lét mig fá mynd af sér fyrir nokkrum árum síðan, áður en hann lét fjarlægja hárin:

471

Eins og greinilega sést er þetta ekki teknóvíkingurinn sem við sjáum á myndbandinu (gúgglaðuþað) .. En næsta mynd er nokkrum mánuðum seinna á “Fuckparade” í Berlín.  Eina sem hann sagðist hafa gert var að fara í líkamsvax, lagaði skeggið sitt aðeins og spilar boccia á sunnudögum, en það er hans helsta líkamsrækt. En hér kemur hin myndin:

Ekkert hár, mikill massi og mikið meira sjálfstraust!! Sérðu sjálfstraustið!

Ekkert hár, mikill massi og mikið meira sjálfstraust!! Sérðu sjálfstraustið!

Hér sést greinileg umbreyting á manninum eftir eina vaxmeðferð…! Vöðvamassi jókst um 110%, hann var með meira sjálfstraust (skv því sem hann sagði við mig) og leið almennt betur.

En glöggir taka eftir að hann er ekki með neitt hár á hausnum heldur, og var það ekki.  En höfuðhár er aðalorsök gáfna en hefur áhrif á langlífi fólks, það dregur blóð til heilans sem eykur súrefnisflæði og í beinu framhaldi af því eykur hrörnun á heilanum. Hinsvegar veldur lítið blóðflæði til heilans (ekkert hár) minnkandi greindavísitölu en hinsvegar hefur það leitt til þess að einstaklingur lifi lengur, sökum minni súrefnis niðurbrots í heilanum.

Það sem ég hef komist að eftir áralangar rannsóknir er það að taka allt hár af líkamanum en ekki hausnum… því miður gerist það sjálfkrafa hjá mér á ákveðnum hlutum hvirfilsins, en það er allt annar handleggur (eða hárleggur).

Ég er búinn að gera pantanir fyrir alla Dagdrauma meðlimi hjá þessu brautryðjendafyrirtæki hér : REVITOL HAIR REMOVAL

Þeir sem vilja ekki fara þurfa bara að hafa samband við þá og afpanta.. en að afpanta er að panta heimsku og engan vöðvamassa!

Hefndin er sætari en vatn

Posted by Helgi Jó on September 20, 2009
Uncategorized / 5 Comments

Það er komið að hinu mánaðarlega GAMALT BLOGG MÁNAÐARINS. Spennandi! Max! Xam! Í þetta sinn er það blogg frá 23. september 2007. Mikil dramatík hér á ferð, og ásakanir um það að vera, eða vera ekki, Emo fljúga fram og til  baka. Sjokkerandi, en um leið áhugavert.

Revenge is sweeter than water!!

Posted by Jóhannsson on September 24, 2007
Uncategorized15 Comments

Fyrir nokkrum vikum síðan lenti ég í því að einnhver sagði að jakkin minn, sem Halldór Ragnar vinur minn seldi mér á tvo bjóra, sem ég var í það kvöld væri EMO. Í kjölfarið hófst timabil þar sem vinir mínir, og þá sérstaklega Hallddór Ragnar, gerðu óspart grin af mér og héldu því fram að ég væri EMO. Dóri hins vegar gékk skrefinu lengra og fór að halda því fram að ég væri í raun og veru EMO. Sjálfur vissi ég og veit að það er tómt kjaftæði þar sem lífstill minn og klæðaburður kemst ekki nálægt því að vera EMO. Ég tók þessu ekkert sérstaklega vel hjá honum Dóra og fór að hugsa óeðlilega mikið um þetta og hví hann skyldi vera reyna að halda þessu fram. Þá kom að því að ég leitaði uppi útskýringu á því hvað era ð vera EMO.

Þetta er svona smá bútur úr þeim skemmtilega texta sem ég fann:

“EMO clothing is characterized by tight jeans on males and females alike, long fringe (bangs) brushed to one side of the face or over one or both eyes, dyed black, straightened hair, tight t-shirts which often bear the names of rock bands (or other designed shirts), studded belts, belt buckles, canvas sneakers or skate shoes or other black shoes.”

Og svo bættist við:

“Some have accused EMO of celebrating self-injury or suicide, which those who do usually refer to “helping ease the pain””


Tight Jeans, long hair brushed to one side, tight t-shirts, studded belt and black shoes = Dóri = Emó.

Nú fór ég að sjá hvað væri í raun og veru að gerast, því eins og glöggir lesendur sjá þá er þetta hinn fullkomna lýsing á honum Halldóri Ragnari. Segja sumir þá: “ En Dóri vill er ekkert að meiða sjálfan sig og þess háttar..” en það er ekki beinlínis rétt, því þegar Dóri er ölvaður þá á hann það til að gera heimskulega hluti sem enda með þvi að hann “slasar sig” og meiðist. Það er samt bara til að hylja það að hann vill í raun meiða sig viljandi.

Nú þá komum við að niðurstöðu málsins og svari spurningarinnar:

Afhverju er Halldór að halda því fram að ég, Jóhann Þórir, sé í raun EMO??

Jú því eins og nú er komið í ljós þá er það hann sjálfur sem er EMO, en hann þorir einfaldlega ekki að viðurkenna það og koma útúr EMO- skápnum eins og ég kalla það. Þar með vildi hann reyna að plata mig og aðra til að halda að ég væri EMO svo að hann yrði ekki sá eini sem væri EMO.

Því miður fyrir Dóra þá hef ég nú afhjúpað þessi áform og uppgötvað leyndarmál hans. Og er því laus við draugin er ég kýs að kalla: Áform dóra um EMO-nisation.

Ég vil í lokin bjóða Halldóri til hamingju með að geta loksins sýnt okkur sitt rétta andlit. EMO verði með þér.

Kv.

_Jóhann Þórir_

Ammlis Partei…

Posted by Skull-Darri on September 17, 2009
Uncategorized / 9 Comments

Góðan og blessaðan…

Þar sem að ég verð víst 24 ára á miðvikudag í næstu viku langaði mig að nota þetta ágæta tilefni til þess að halda Ammlis Partei heima hjá mér í Vesturbænum á Laugardaginn næsta (19.sept) um klukkan 21.

Endilega komdu við og skemmtum okkur all HRESSSSILEGA á laugardaginn…

Mér þætti fínt ef þú kommentaðir á þessa ágætu færslu ef þig langar að kíkja svona svo ég sé með c.a. fjöldann á þessu. Ekki stærsta íbúð á íslandi en kemur lúmskt mörgum inn. Sérstaklega Eldhúsið kom á óvart í síðasta teiti…

Allavega, vonast til að sjá þig…

Darri F / -aka skull-Darri

Ekki sparka í liggjandi mann

Posted by Hlynur 17 on September 14, 2009
Fat Hlynur, Keppni / 8 Comments

Versta kvöld lífs míns?

ffffffffffffffffffffffffffffffuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuu

Hvað kostar að fljúga til Stockholm í Febrúar????

Posted by Kjarri on September 14, 2009
Uncategorized / 2 Comments

Ég fór í málið og skellti mér á Icelandair.is

33.900 kr. kostar að fljúga til stokhólm 2. febrúar og koma til baka 12. febrúar.

Segjum svo að lestin kosti 5000 kr. Þá erum við bara mættir á svæðið og getum brettast að vild í 10 daga og helgi getur skíðast í 5 daga.

Óli – drífðu í því að redda þessari gistingu!!!!!!

kv, Kjarri

Einkamálaauglýsingin mín

Posted by Ó3,14 on September 04, 2009
Awesome / 8 Comments

Ég er maður á besta aldri sem hefur gaman að lífinu. Áhugamál mín eru þorskadýfingar, karmellukaup og tímaflakk. Er vel stæður og með hausinn í lagi. Er í toppformi enda æli mikið. Aðallega á börn og dýr.
Ég er að leita mér að vinskap og kannski meira. Vil helst vera í kynni við einhvern sem tekur mér eins og ég er og er með sitt á hreinu. Kunnátta í formlegri Zermelo-Fraenkel mengjafræði er skilyrði. Þekkir þú ekki valfrumsenduna mun ég hunsa skeytið þitt og þrýsta börmum mínum upp við glugga vinnustaðar þíns og æla yfir sjálfan mig.

heiturgaur

Ég (heitur gaur) að kenna tveimur (heitum konum) um gubb í holræsum.

Hafir þú áhuga á að eyða tíma með mér, endilega hafðu samband. Best er að hafa samband við mig í gegnum holræsisskjaldbökur eða hitta mig á gubbstofu Guðmunds.

Kær kveðja,
Mistery Man Ó to the Pí

Af gefnu tilefni…

Posted by Skull-Darri on September 04, 2009
Uncategorized / 3 Comments

Svona í tilefni þess að ég er að hýsa póker á morgun / í dag , langaði mig að koma með smá troubleshooting töflu fyrir bjórdrykkju. Þið þekkið eflaust flestir þessa töflu, en mig langaði til þess að endurvekja hana fyrir komandi drykkju sem tilheyrir þessum háskóla sem og flestu sem við gerum…

Muniði krakkar .. ekki gleyma bjórnum heima …

-Darious

Internetið og fortíðin…

Posted by Helgi Jó on September 02, 2009
Uncategorized / 5 Comments

Stainer Hgui Sigurðarsson beraði sig á netinu hér áður fyrr. Ég sakna þess tíma, mjög.

Og hvað hafa dagdreymarar um þetta að segja? Darri freyr vildi láta hafa eftir sér: “Factor? Nei, Factory!!!”

Í framhaldi af þessu tökum við smá “á þessum degi”, og fann ég blogg þann 31.ágúst 2006 eftir Jóa (ég veit ég veit, það er ekki 31.ágúst í dag, það er ekki einu sinni ágúst. Og já, áður en þið hringið í upplýsingalínuna þá veit ég líka að það var bloggað 2.september 2006, og það var meira segja jói sem bloggaði það.En það var ekki jafn skemmtilegt blogg, ekki jafn miklar tilfinningar og spenna. Og enn og aftur,  þetta eru hlutir sem ég veit og er algjörlega meðvitaður um. alveg eins og ég er meðvitaður um hversu erfitt það er að ganga um á háhæluðum skóm í rigningu á haustkvöldi á horni suðurgötu og miklubrautar vaðandi upp að nára í  karlmannsvöðvum. svo ekki senda mér email um það, eða hringja í mig, skrifa mér sms, eða láta frænda ykkar eða frænku vita að þið vitið að ég viti, því ég veit að þið vitið að ég viti… Og hvað í fjandanum? Þið ákveðið ekki reglurnar hérna. Ég geri það. Og ég er badass. Og ekki segja að ég sé það ekki. Eða eruð það kannski þið sem nauðgið nashyrningum þegar ykkur leiðist og orðnir þreyttir á því að þurfa að sitja á rassgatinu allan daginn til að viðhalda því að vera badass? ).

En bloggið er annars mjög gott hjá Jóa, flashback á gömlu blog.central síðuna þegar sámur var nýliðinn undir lok:

Svo vil ég nefna það að það er djamm dauðans um helgina og ekkert kjaftæði með það, sá sem ekki er á rassgatinu þarf að mæta mér!!! heyriði það drengir!!!

Þetta blogg skilur auðvitað eftir nokkrar erfiðar og ósvaraðar spurningar. Til dæmis:

- Afhverju er jói ennþá skráður á dagdrauma þegar hann sagði sig úr þeim svo eftirminnilega fyrir rétt rúmum 3 árum?

- Man einhver eftir þessu áramótapartíi þar sem jói drapst greinilega á klósetti? Á einhver mynd fyrir Skugga?

- Hver var ekki á rassgatinu helgina eftir og þurfti að mæta jóa? Var hann pissublautur þegar þú hittir hann?

Póker og almenn vitleysa

Posted by Skull-Darri on September 01, 2009
Uncategorized / 10 Comments

Sælir piltar..

Ég var að spá í að hafa póker heima hjá mér á föstudagskvöldið kl 20. 1000 kall inn og B.Y.O.B. Svo kannski ef stemmarinn leyfir endum við niðrí bæ …

Endilega látiði vita ef þið ætlið að vera með, uppá sætapláss…

Kv.
DarriF