Archive for June, 2009
Awesome, Dagdraumar, Fat Hlynur, Nöldur, Strákastöff / 13 Comments
Já lífið er erfitt fyrir fátækan námsmann í Danmörku.
Fyrir um tveimur mánuðum síðan kláraðist skólinn (sem var í alla staði frábær) og mér var sparkað út á rassgatinu auralaus og stefnulaus. Ég gisti viku hér og þar hjá vinum úr skólanum en varð fljótlega ljóst að ef ég vildi ekki sofa á skítugum gólfum allt sumarið þá yrði ég að finna mér íbúð eða allavega herbergi til að leigja.
Eftir furðu stutta leit fann ég laust herbergi í fínni íbúð á besta stað í Århus á spottprís. Að sjálfsögðu hefði mig átt að gruna að hreinlætisstaða mjölsins í horni pokans væri eitthvað ábótavant en hvað get ég sagt? Ég er bara lítill saklaus sveitastrákur frá Íslandi að leigja í fyrsta skipti utan foreldrahúsa og það í ókunnugu landi í þokkabót.
Ég mæti fyrir utan íbúðarhúsnæðið með allt mitt hafurtask og byrja að bera það upp á aðra hæð þar sem íbúðin er. Athugið að allt mitt hafurtask þýðir: “Allt sem ég á í lífinu akkúrat núna”. Eftir tvær ferðir þegar ég er búinn að koma öllu draslinu inn í herbergið og hossa aðeins á rúminu til að tjékka á dýnunni mætir leigusalinn minn heim (héreftir “X”) og tjáir mér að þetta sé bara alls ekki mitt herbergi eftir allt saman. X opnar hurðina að næsta herbergi sem stendur algerlega autt og yfirgefið.
“Eh já, hérna ég hélt ég væri að leigja herbergi með rúmi.. Ég er ekki með dýnu eða neitt..”
“Það er allt í lagi, ég er að fara til Frakklands í viku nú á eftir svo þú getur bara sofið í rúminu mínu og svo reddum við einhverju þegar ég kem til baka”
“Ehhhh… okey”
Frekar skrítinn byrjun en wuteva.. Ég er þreyttur og búinn að fá mig fullsaddan af því að sofa á gólfum og sófum svo ég planta mér í ókunnugt rúmið og svíf inn í draumalandið.
Daginn eftir er kominn tími á að fara í nýju vinnuna, því kjeps þarf nú að borða og borga leigu og svona.
Vinnunni náði ég að redda mér í gegnum skólavin sem lýsti henni á eftirfarandi máta:
“Þetta er lítil verksmiðja… Eða meira svona verkstæði sem framleiðir skotheltar plötur fyrir herfarartæki. Það er fullt af kjánum sem vinna þarna og vinnutíminn er langur en maður fær líka alveg fullt af pening”
Nema hvað hann sagði þetta á dönsku svo það eina sem ég skildi var: “Mange penge” og ekki þurfti meira til að sannfæra mig.
Á fyrsta klukkutímanum lærði ég allt sem ég þurfti að vita um þessa vinnu.
-Ég mætti klukkan 07:00 en þá er nú þegar allt komið á fullt þar sem þeir voru á eftir áætlun. Það reyndist ekki vera undantekning heldur rammföst regla.
-Ég gerði mitt besta til að dæla út svölum dönskum frösum en mest af þeim féllu í ógrýttan jarðveg þar sem að það eru svo til engir danir að vinna þarna. Á vinnusvæðinu mínu starfa: 1 Arabi, 1 Breti, 1 Hondúrassi, 1 Líbanonni og svo félagi minn úr skólanum.
-Starfið gengur út á að setja allskyns glerfíbera, flísar, Kevlar o.s.frv. í form og dæla svo helling af iðnaðarlími ofaná. Eftir að ég sá það framkvæmt í fyrsta skipti var mér sýndur afraksturinn frá því deginum áður. Þar hafði einum af þessum snillingum tekist að missa nafnspjaldið sitt ofaní formið án þess að taka eftir því. Þessi maður reyndist vera minn nánasti yfirmaður.
-Mér voru sýnd efnin sem að ég kom svo seinna til með að vinna með. Eftir stuttan lestur á umbúðunum tók ég eftir orðinu “Toxic” á hverju einasta íláti og á einni dollunni var hauskúpumerkið stærra en umbúðirnar sjálfar. Minn nýji yfirmaður sýndi mér svo í kjölfarið hvernig ég ætti að fylla í epoxy límvélina með stóra eiturbrúsanum. Hann byrjaði á því að loka öllum dyrum að öðrum vinnusvæðum, opnaði tankinn á vélinni og hóf að hella úr brúsanum… ÁN ALLS ÖRYGGISBÚNAÐS/FATNAÐS OG LOFTRÆSTINGU. Seinna var ég sakaður um að “vera með vesen” þegar ég heimtaði gasgrímu með almennilegum filter og almennilega hanska.
-Iðnaðar epoxylím er ekki bara eld- og skothelt.. Það er líka vatns- og sápuhelt.
-Bjórpásur… Ó já, vinnan gengur út á að vinna með lyftara, eiturefni og allskyns rafmagnsverkfæri en hey, förum út tvisvar á dag og smellum í okkur bjór.
Semsagt hefur vinnan mín undanfarinn mánuð gengið út á það að mæta fyrir allar aldir, hlusta á heimskt fólk rífast um hvernig sé best að gera hlutina, sulla yfir mig lími sem næst ekki af og fá gommu af pening. Hápunktar mánaðarins er klárlega þegar ég átti í 2 klukkutíma rifrildi um palestínu vs. Ísrael við Arabann og Líbanonnan þar sem ég talaði fyrir hönd Ísrael og svo þegar ég stóð í gun turretinu á HMMMV og blammaði rúllu af púðurskotum í gegnum 30 mm vélbyssu.
Allavega, ég er fljótur að detta inn í eftirfarandi rútínu: Vakna klukkan 05:30, strætó klukkan 06:00, mættur í vinnuna klukkan 06:45, pirraður til klukkan 18:00, 18:15 strætó heim, borða núðlur klukkan 19:25, internet tími frá klukkan 19:30 – 23:00 og svo klukkan 23:10 meðvitundarlaus uppi í rúmi.
Svo einn daginn vakna ég á stöðluðum tíma en mér til undrunar liggur X sofandi við hlið mér í nærbrókum einum fata. Eftir stutt panik og létt svitabað dró ég þá ályktun að X hafi bara komið heim seint um nóttina og ekki viljað vekja mig. “Ég get lifað með því” hugsaði ég og laumaðist út og til vinnu, “Ég plögga mér svo bara dýnu þegar ég kem heim á eftir”.
Oh ef ég hefði bara vitað þá það sem ég veit nú.
Þegar ég kem heim úr vinnunni er X búinn að elda mat sem bíður mín heitur á borðinu ásamt köldum bjór. Svolítið krípí en maturinn var góður og bjórinn betri. Eftir matinn hafði ég hugsað mér að blása upp dýnu sem ég fann uppi á hálofti eða jafnvel búa um sófann til að sofa í en í hvert skipti sem ég tæmdi bjór var kominn nýr, hélaður og nýopnaður danskur öl fyrir framan mig. Eftir tæpar þrjár kippur og hressandi samtal var klukkan að nálgast 00:00 og kominn tími á svefn.
Einhvern veginn endaði það þannig að ég og X sváfum aftur í sama rúmi en þó hvor á sinni hlið. Um morguninn vakna ég með X kúrandi upp við mig og dreif mig í vinnuna. Næstu daga á eftir versnaði ástandið stöðugt með X þar sem óviðeigandi snertingar, setningar og augngotur áttu sér stað. Ekki bætti úr skák að ég vegna vinnunar hef ég gengið um í stöðugri vímu í tæpan mánuð. Að lokum sagði X mér hreint út að nú hefði ég tvo valkosti í stöðunni A) X hringir á lögregluna og lætur handtaka mig sem hústökumann og hent öllum mínum veraldlegum eigum á götuna eða B) stundað kynlíf með X og sleppa við að borga leigu. Ég íhugaði hótunina í þó nokkurn tíma og ég er ekki viss hvort það hafi verið bjórinn sem ég hafði drukkið þann daginn, eiturvíman, hræðslan við að missa allt sem ég á í heiminum eða jafnvel bara forvitni en ég endaði með að velja valkost B. Með því byrjaði líf mitt sem leiguhóra, eftir allt að tólf tíma vinnudag er ég neyddur til að stunda kynlíf minnst tvisvar á dag hér og þar um íbúðina.. Ég er ekki einu sinni óhultur í sturtunni eða á meðan ég er að elda. Svona hefur þetta svo gengið og mun líklegast gera um ókomna framtíð.
Já lífið er svo sannarlega erfitt fyrir fátækan námsmann í Danmörku.
Æ já, minntist ég á að leigusalinn minn eða “X” er gullfallegur og lögulegur kvennmaður á mínum aldri með brjóst sem skyggja á sólina og grindarbotnsvöðva sem mjólka á við reyndustu mjaltarkonu?
Shit hvað lífið er erfitt hér í Danmöku, ég held barasta að ég komi aldrei heim.
-
Samantekt fyrir Darfhel og Bjaoste:
Ég er að fá meira kynlíf daglega en ég get mögulega borið þar sem ég sel líkama minn gegn leigu og ég var að fá c.a. 1 milljón og 300 þús útborgað fyrir mánuð í vinnu sem gengur basically út á að hlusta á tónlist og drekka bjór.
Það er vert að byrja þennan póst á að benda á hið augljósa. Ég er frekar venjulegur gaur í útliti. Enginn hönk, en heldur ekkert fráhrindandi í útliti. Ég er enginn George Clooney, en ég er heldur ekkert harlequin barn.
Ástæðan fyrir því að ég skrifa þetta er að fyrir tveimur vikum, þegar ég talaði um að fara í klippingu, stakk Dóri-í-Dós upp á því að ég myndi gera líkt og hann hafði gert og raka á mig hanakamb. Sem og ég gerði fyrir u.þ.b. viku síðan.
Ég myndi lýsa þessum hanakambi sem blöndu af Chuck Liddell og Mr. T – Eyþór Tele lýsir honum sem “svona Jónsi-í-röngum-götum hanakambur”. Nema hvað, svo virðist sem hanakambur þessi sé gæddur töfrum. Án þess að fara í detaila hér, á internetunum, um hözzl, innsetningaraðferðina og símanúmer hef ég ákveðið að birta hluti sem að kvenþjóðin hefur sagt við mig þessa viku sem að ég hef sportað töfrakambinn.
1. “Úff… ef að ég væri ekki gift” – Sagt af konu, sem að ég myndi giska á að væri 30-35, á meðan hún kreysti afturenda minn með báðum höndum.
2. “Ef ég væri straight, þá værir þú týpan mín” – Sagt af nett massaðri lellu – í kringum 30, með aðra hendi á hægri rasskinn minni.
Það fyndna (lesist: sorglega) við þetta er náttúrulega þessi “ef” sem að laumast þarna með – miklu skemmtilegra kvót væri “Hey… ég er ekki gift”. Plús náttúrulega það að ég virðist vera að laða að mér kvenfólk um og yfir þrítugt (svo ég tali nú ekki um það hversu slæmt það sé að kvenmaður sem að hefur áhuga á kvenmönnum segir að ég sé “týpan” hennar).
En bíðið!! Núna á laugardaginn sagði dama nokkur (myndi giska á einhvers staðar 27-32), það fallegasta sem að ég hef nokkurn tímann heyrt. Hún lagði hönd sína á kinn mína og sagði.
3. Vá, þú ert fallegasti maður sem að ég hef nokkurn tímann séð með eigin augum. Maður sér ekki svona fegurð nema bara á myndum.
Hefði þessi kona ekki verið álíka þung og ég (90 kíló) og lífshættulega ölvuð, hefði ég væntanlega gifst henni á staðnum. Hún hélt áfram “Nei… ekki fara… komdu aftur”.
Fylgist með hvað gerist í næsta viku í “Hlynur og töfrakamburinn”.
Samkvæmt Baidu, vinsælustu leitarvél Kínverja, er þetta vinsælasta lagið á þeim slóðum um þessar mundir
[Sækja]
Eins og textinn gefur til kynna heitir lagið ????. Þetta lag ásamt hinum 99 á listanum má finna á Topp 100 lista Baidu.
Ekkert merkilegt og engin pæling, bara áhugavert. Að vísu eru þeir að birta sennilega ólögleg eintök af lögunum en kínversk lög taka sennilega ekki mjög strangt á höfundarétti.
SH
3-5. júlí á Höfn í Hornafirði.
Pólfararnir
- Dr. Halldór R. Halldórsson
- Stainer Hgui
- María Sif
- Ó3.14159265
- Helgi Jó
- Darr-E
- Kjarri
- Harpa
- Fjóla Ósk
- Sunna Björg
- Bragi Þór Antoníusson
- Ari Freyr Hermannsson (a.k.a LL COOL A) – fer með konu sinni og fleirum…
- Skull-Darri
- Berglind
- Hildur
- Snorri litli
Bílar
Bíll #1 Leggjum af stað um kl 17.
- Stainer Hgui
- María Sif
- Sunna Björg
- Hildur
- Bragi Þór Antoníusson
Bíll #2 Farið um hádegi á fös.
- ÓP (a.k.a. Orlando Bloom)
- Snorri
- Dóri (a.k.a. Dóri DK)
- Helgi “Best að hleypa mér ekki bakvið stýrið” Jóhannsson
Bíll #3
- Darri Freyr (a.k.a. Skull-Darri)
- Berglind
- Darr-E Nauðg
- Ragna
Bíll #4
- Fjóla Ósk
- Kjartan Dór
- Harpa
- Golfsett og hústjald
Vídjó og fleira
Dóri heimtar meira svona á humarhátíð:
Smellið hér til að bæta við/breyta færslunni.
kv, Rocks
Talandi um það að byrja á morgunbloggum, sem btw hljómar eins og morgunblaðið nema bara með gg og um í staðin fyrir a og ð og i og ð, þá er hér eitt morgunblogg mætt eldhresst á svæðið. Þetta eru miklar sviptingar í bloggheimingum, miklar breytingar jafnvel.
Og talandi um breytingar. Finnið 5 villur á eftirfarandi myndum:
Frönsk Geit:
Áberandi sjokkerandi. Þeir sem finna 5 villur fá sérstakan róhypnol kokteil að gjöf frá Hákoni. Ekki halda samt að þú sért sá eini sem færð það, hann bruggar þetta eins og appelsínuvín, en, þetta klárast mun fljótar.
En annars held ég að það sé málið að rífa þetta blogg aðeins upp, gefa þessu smá dass af fjandans hressleika. Við heimastrákarnir hljótum að ráða við það. Eða hvað, eða hvað? Enn já, þegar er rætt um heimastrákana, þá tékkaði ég aðeins á fólki og spurði það hvaða setningar hefðu staðið mest upp úr í kvöld. Þetta er það sem var mest vinsælt, og hverjir sögðu það:
Dóri : “Ég parkeraði feitast ólöglega í gær, dajeng! (high five gefið á línuna)” - í merkingunni að sofa hjá ólögráða stelpu…. óbehave
Hlynur : “Ég elska konur. Ég elska vodka. Ég elska konur sem drekka vodka. Ég elska líka báta. Ég elska konur á bátum. Ég elska konur sem drekka vodka á bátum” – Hlynur að ræða við mig úti á Granda fyrir 20 mínútum, í skærastellingunni.
Bragi : ”ef ég ætti körfubolta þá gæti ég stokkið hærra en Woody Harrelson” – verð að segja það bragi, að ef þetta er það merkilegasta sem þú sagðir í kvöld, þá þarftu að fara athuga þinn gang.
Darri Eyþórs: “antílópur, þessar litlu, eru alveg fáránlega hlýjar”
svo var ýmislegt fleira, en það var óhæft í notkun.
Annars var kvöldið frekar rólegt til að byrja með, fyrir utan venjulegar umræður um börn, djúpar og grunnsævis sjálfsfróanir, japan og kvenlega hluti eins og hlutabréf, en eftir að við vorum búnir að bera á okkur Baby Sun tan oil á gólfinu á ónefndum skemmtistað þá varð ekki aftur snúið. Ó nei, við vorum sveittir pelar.
Hérna kemur til dæmis ein saga frá kvöldinu:
Hlynur var staddur á dansgólfinu, með held ég ca 4 stelpur í kringum sig, allar með spurningarsvip á andlitinu. Hvernig fer hann að því að líta jafn myndarlega út í raunveruleikanum og hann lítur út í útvarpi, hugsuðu þær og struku höndunum við þjóhnappa hans. Hvað er í gangi hugsaði Bragi, á meðan hann gaf hand job út í horni fyrir nokkra dollara. Halda þessu atvinnuhjóli gangandi og auka gjaldeyristekjurnar, var það eina sem hann hugsaði á meðan hendur hans fóru um karlmenn eins og necrophil í þýskum sturtuklefa. Allt þetta og meira sá Helgi á meðan hann hélt á hlaðinni vélbyssu og skaut í áttina að barborðinu og hæfði nokkrar vel valdar stelpur. Þetta er ekki að gerast, þetta er ekki að gerast, hugsaði hann, þetta er í fyrsta skipti sem ég næ að hleypa úr byssunni minni niður í bæ. Verð að muna eftir lúbi næst samt, enda var byssan ryðgaðari en Greiðslu-hnappurinn í heimabanka Darra Freys. Sem var ekki á staðnum, því miður, því þá hefði hann geta tekið eftir Darra Eyþórs sem var heldur ekki þarna. Sakn ógó mikið. Síðan kom Óli Palli, glimmeraður frá kóngs til rótar, eins og sönnum svíja sæmir og endurtók línurnar “hoppí hoppí snúða púða glassúrsnúðsskúlptúrinnn minn” án afláts á sænsku.
Ekkert af þessu gerðist samt, og með þeim orðum kveð ég….
mbk,
Helgi Jó.
Þar sem fræga fólkið er..
Sá séð og heyrt úti búð og hló, vildi bara deila þessu með ykkur:

Ég kannast eithvað við hana...
Kv.
_Jóhann Þórir_
Sælir,
Kjarraholt verður haldið helgina 14 – 16 ágúst.
Þar sem ég verð 25 ára þessa helgi þá vonast ég til þess að geta gert þessa ferð örlítið veglegri. Það er samt mjög erfitt að toppa eitthvað sem er fullkomið.
Takið helgina frá!!!
En hinsvegar ætla ég að eftirláta Jóhanni Þóri hvort hún verði sett á prívate eftir nokkra daga.
Einusinni áttum við svona Jóa.
30.000 rokkstig handa manninum sem að getur sagt mér hver þetta er, og fyrir hvað hann er frægur.

Let the games begin!



