Archive for May, 2009

Client Server Database

Posted by Nelli on May 27, 2009
Uncategorized / 4 Comments

Mér fannst þetta fyndið og ákvað að deila því!!

client_server_database1

Draumaleikurinn!!!!

Posted by Nelli on May 25, 2009
Uncategorized / 11 Comments

Jæja þá er komið að því snilld allra snillda!!! draumur allra drauma!!! dagur allra daga!!! og það á miðvikudag!!!!!

****MAN UTD – barcelona****

Hvernig er stemmarinn í mannskapnum… er stemming fyrir að kíkja saman á bar og horfa á leikinn? Steak&play? Players?

Eða væri stemming til að plata einhvern með gott TV og Stöð2Sport til að bjóða heim í bjór og pizzu og mest awesome leik allra tíma?

Endilega commentið… t-2!!!

Flutningar og önnur gleði

Posted by Skull-Darri on May 24, 2009
Uncategorized / 14 Comments

Sælir piltar,

Eins og flestir vita (sem eru á landinu) er ég vonandi að fara að flytja næstkomandi helgi. Því ætlaði ég að fá að nýta mér vonandi einhvað af starfskröftum ykkar þar sem það er hvítasunnuhelgi og foreldrar okkar Berglindar verða ekki viðlátnir (vonandi samt ekki látnir).

Þetta er ekki stór íbúð og það kemst alls ekki mikið inn í hana, þannig við erum ekkert að tala um einhverja stórflutninga, bara svona þetta klassíska, sófasett, rúm, hillur og svo framvegis.

Ef þið hafið einhvern tíma aflögu væri æðislegt að fá ykkur, þó ekki væri nema bara til að kíkja við, en öll hjálp er alveg þegin með þökkum. En þetta er ekki alveg 100% að það sé næsta helgi, en svona næstum.

Líka… ef þið eigið sjónvarpsskenk, töff sófa, græjur eða eitthvað sem þið viljið losna við eða lána, þá endilega látiði mig vita. Manni vantar asskoti margt sem maður áttar sig ekki á.

Spurning að fá stærri bíl næstu helgi...

Spurning að fá stærri bíl næstu helgi...

Kv.

Darious Wassel

hvað skal gera

Posted by Kjarri on May 13, 2009
Uncategorized / 11 Comments

Nú er ég að klára prófin á morgun og eins og allir vita þá eru bestu djammdagarnir fimmtudagar. Er einhver til í fimmtudagsdjamm.
Annars býst ég við þrefaldri helgi. Hvernig er annars planið á föstudag og laugardag?

Vélin

Posted by Bjarni Ólafur on May 11, 2009
Uncategorized / 4 Comments

Síðastliðna daga hef ég mikið verið að spá í jafnréttismálum og er reyndar með orðum og á myndum ungur jafnaðarmaður.
Af hverju er bara einn strákur í stjórn Vélarinnar?
Af hverju eru bara tveir strákar í stjórn FV (félag verkfræðinema)?

Ég veit af hverju. Það er ekki vegna þess að strákarnir eru ekki nógu klárar, ekki vegna þess að þeir bjóði sig ekki til starfa, ekki vegna þess að þær eru ekki eins duglegar, ekki vegna þess að þeir eru á einhvern hátt óvinsælli. Ástæðan er einföld…strelpur kjósa ekki stráka (nema í neyð) !
og strákar eru í minnihluta í verkfræði.

Þetta sýndi sig svo vel á fundinum síðasta föstudag, þetta olli mér það miklum hugarórum að mér var ansi heitt í hamsi. Ég skil alveg að við getum ekki verið með jafn frábæra stjórn og Ökonómía…(Hildur, Hjördís, Sigrún, Sigurbjörg…úff þvílíkt teymi) En kommon, ég veit að einhverjar stelpur Vélarinnar eiga eftir að ramba hingað inn á næstu dögum. Endilega segið mér af hverju þið kusuð stelpu í embætti þar sem strákur var hæfari aðilinn?

Svo kemur gullmolinn, enginn af mínum kvenkynsfélögum í Vélinni tjáir sig um þetta mál við mig af fyrra bragði…EN kærastarnir láta ekki á sér standa…hvað er það?
Mig langar ekki að þræta um ágæti stelpnanna við kærusta þeirra, þær geta bara sagt mér það sjálfir hve frábærar þær eru!
Ég veit að þetta er hart, en það eru stelpur líka og mér er alveg nákvæmlega sama!

500+ orða smásagan.

Posted by Hlynur 17 on May 11, 2009
Dagdraumar / 1 Comment

Hér er mandatory smásagan til þess að gerast Dagdraumameðlimur. Núna get ég loksins byrjað að mæta í Dagdraumapartý.

_____________________

Hann hélt áfram að horfa í augun á henni; hún hélt áfram að blaðra. Hver segir svona lagað? „Ég er ógeðslega klár sko“. Fokking beygla. Hvers konar stelpa tekur það sérstaklega fram að hún sé ekki heimsk? Jú, mikið rétt, fokking heimsk stelpa. Rétt eins og ríkur maður tekur það sjaldnast fram að hann eigi meiri pening en þú, þá er gáfaða fólkið ekki liðið sem að segist vera „ógeðslega klárt“ í partýum. Djöfull gat hún bablað.

Hann fylgdist akkúrat nægilega vel með til að elta hana í öllu þessu hjali, en heilinn var farinn á flakk. Hún var eitthvað að tala um meistaranám. Nánast hvaða imbi sem er getur farið í meistaranám mín kæra, en það þarf fífl eins og þig til að vera orðinn þriggja barna, einstæð móðir 27 ára. Til hamingju.

Ætlaði hún aldrei að hætta að tala? Nú var hún kominn yfir í það að væla eitthvað um hvað hún væri að reyna að sanna sig fyrir pabba sínum. „Vá, daddy issues. Það er sexy.“ sagði hann, með svo mikilli kaldhæðni að coma-sjúklingur hefði spottað það. Hún hló eins og lítil smástelpa og dembdi sér síðan strax aftur í það að blaðra út í eitt, eins og hún væri að reyna slá héraðsmet í innihaldslausu frati. Hún var komin með hægri hendina á rennilásinn á leðurjakkanum – tosaði í. Það var eins og hún væri að reyna að sýna meira af þessari unaðslegu, risastóru brjóstaskoru, nema hvað – þetta var svo augljóst að það gat hreinlega ekki verið. Hvað í fjandanum var hún að gera með hendina allt í einu að fikta í toppnum? Hvað var í gangi?

Horfðu til hliðar. Horfðu bakvið þig, beyglan þín. Horfðu eitthvert annað en í augun á mér! Oh, þarf maður að gera þetta „old school“? Hann horfði á punkt bakvið hana, pírði augun eins og eitthvað væri í gangi inni í partýinu. Success! Hún leit aftur fyrir sig. Hann leit á brjóstaskoruna. Shitt, mental photograph fyrir allan peninginn, þessar elskur voru komnar í rúnkminnið for life.

Sjitt, hvað var hann eiginlega búinn að stara lengi? Hjúkket, hún var ennþá alveg glórulaus að horfa inn í partýið. Ok, smá í viðbót – djöfull voru þetta stórkostlega falleg brjóst. Ok, samtalið var byrjað aftur. Hann leit upp. Er hægt að kalla það samtal ef það er ekki verið að tala saman? Getur verið að þetta sé eintal? Honum þótti þetta furðulegt í meira lagi. Hvað í fjandanum kom það honum líka við, hvað barnsfaðir hennar, númer tvö, væri mikill skíthæll? Ef það er eitthvað sem að karlmenn vilja í fari konu, þá er það vissulega sækó fyrrverandi til þess að elta mann uppi ef maður sængar hjá barnsmóður hans. Sjitt, heimska, heimska stelpa. Langaði hana ekkert til að láta ríða sér í kvöld?

Fokksjittreip, fokksjittreip, fokksjittreip! Þetta var svo augljóst! Hana vantaði ekki karl til að ríða, hana vantaði strák til að væla í. Oj, þetta var svo augljóst, hvernig spottaði hann þetta ekki fyrr? Hvílík vonbrigði. Hann hélt áfram að horfa í augun á henni og kinkaði kolli endrum og sinnum; hann spilaði samtalið aftur í gegn í kollinum. Já, það benti allt til þess. Líkurnar á því að hann væri að fara heim með henni voru álíka miklar og líkurnar á því hann myndi einhvern tímann nota orðin „ógeðslega klár“ til að lýsa henni – núll.

Með þessa vitneskju að vopni lagði hann vinstri hendina á öxl hennar; hún þagnaði. „Heyrðu, hold that thought. Ég er að átta mig á því að ég þarf að hringja eitt símtal” sagði hann og byrjaði að rölta í burtu. “Ekki fara neitt” bætti hann við og brosti nöðrulega. Hún kveikti sér í sígarettu – hann hvarf fyrir hornið. Hann fékk ekki samviskubit yfir þessari síðustu viðbót við kveðjuna fyrr en rúmum tuttugu mínútum síðar, þegar hann var í þann mund að klára að bursta í sér tennurnar.

Norðmenn eru snillingar

Posted by Ó3,14 on May 07, 2009
Uncategorized / 7 Comments

Ef ykkur þykir fyrirsögnin vera vafasöm, jafnvel grunsamleg (þar sem kannski þykir eðlilegra að ég hæli Svíum því ég dvel í ríki þeirra), þá bið ég ykkur um að horfa á þetta unaðslega myndband.

Myndbandið er úr norskum spjallþætti, ekki ósvipuðum Örkinni Spúandi með Þistilbræðrum frá Þistilfirði. Þar stíga á svið miklir meistarar með tónlistaratriði. Hafið hugfast að meistarar þessir eru ekki leikarar, heldur alvöru meistarar.

O mundo é tao bom

Posted by Helgi Jó on May 07, 2009
Uncategorized / 5 Comments

Þegar við vorum litlir snáðar, sumir feitari en aðrir, þá fórum við í leikskóla. Við fórum í leikskólann sem var nálægt heimili þínu, eða útaf einhverjum annarlegum sjónarmiðum, í leikskóla sem var ekki jafn nálægt og sá sem var nálægastur. En núna, núna geturðu ekki bara valið um leikskóla eftir fjarlægð, heldur líka eftir því hvaða stefnu hann aðhyllist. Waldorf, hjallastefnu, gyðinga, múslima, sígauna… allt skólar sérsniðnir að því að móta okkur í aðskilin form. En hvað sem því líður, þá er ákveðið sem mér finnst vanta í alla þessa skóla, og það er lúxusinn.

Svo 2007! Nei. Það er lygi. Börn eiga nefnilega alltaf skilið það besta, og þau eru of heimsk til þess að kunna á ártöl.

Ég ætla því að stofna nýjan leikskóla. Leikskóla þar sem stjanað verður við litlu gullin og orðinu dekur gefin ný og dýpri merking.  Skólanum er einnig ætlað til þess að sýna börnunum fram á að kreppa er eitt, en lífið er annað. Að lífið sé frábært og yndislegt og að enginn geti tekið það frá þeim.

Skólinn minn verður þar með með nokkuð nýju sniði, enda mun hann kollvarpa öllu því harðneskjulega bulli sem hefur viðgengist í skólunum hingað til. Nafnið mun bera með sér hversu frábært lífið er, en hann mun heita

“O mundo é tão bom

sem er portúgalska, og útleggst nokkurn vegin svona á íslenskunni:  “Heimurinn er svo frábær ”

Slagorðið okkar verður síðan :  “Eins og brasilískt fangelsi, nema fyrir börn.”

Fangelsi í Brasilíu? En eru þau ekki helvíti á jörð, spyrja kannski örfáar efasemdaraddir.  Og ég svara,  Nei!. Í brasilísku fangelsi er þetta nákvæmlega eins og verður og í O mundo é tao bom, börnin verða í góðu, skapandi og dekrandi umhverfi.

Ekki láta nýlegar fréttir um íslenskan fanga í brasilíu vekja ykkur óhug, ekki frekar en þið eigið að panikka útaf svínaflensu. Allt er ýkt í fjölmiðlum. Fangelsin í Brasilíu eru nefnilega einstaklega manngefandi, og allra helst, mannsæmandi með meiru.  Og þannig mun  ” O mundo é tao bom” verða, hinn nýi  sælureitur fyrir börn.

Til að sanna fyrir ykkur enn frekar hversu góð hugmynd þessi leikskóli er, þá birti ég nokkrar myndir af aðstæðum í brasilískum fangelsum. Skoðiði þetta og hugsið ykkur síðan tvisvar um áður en þið efist um gæði  O mundo é tao bom næst.  Skólinn mun innihalda allt það sem skólar í dag eru með, eins og t.d.

Útivistarsvæði:

kosiisol

Líf og fjör í  O mundo é tao bom.

Hérna að ofan sjáiði fanga að hafa það kósý í sólinni, sumir með dægrastyttingar eins og bækur, og aðrir nýsofnaðir eftir nónhressingu. Allir þétt saman eins og ástfangin fjölskylda. Börnunum í  O mundo é tao bom mun sko aldrei skorta leikfélaga. Það skaðar síðan ekki að D-vítamínið frá sólargeislunum  er mjög mikilvæg byggingareining fyrir bein í ungum börnum :) .

Snyrtiþjónusta og aðstaða fyrir blinda og fatlaða:

blindir

Allir eru velkomnir í O mundo é tao bom, enginn fatlaður er rekinn í Öskuhlíðarskóla eða á sambýli.

Eins og myndin hér að ofan sýnir, mun  O mundo é tao bom bjóða upp á margvíslega þjónustu fyrir börnin. Við lifum í hröðu þjóðfélagi og foreldrar hafa ekki þann tíma sem þeir þyrftu til þess að sinna öllu. Því munum við meðal annars bjóða upp á hárgreiðsluþjónustu og oregami-námskeið, ásamt skyndihjálparkúrsum eins og  “Notum verkfærin okkar á fjölbreyttan hátt” og “Hvernig skal brýna tannbursta á gömlum steypuvegg”.

Áhersla á lærdóm og lestur:

lesefni

Engar illa þýddar sænskar kennslubækur frá áttunda áratugnum. Aðeins það besta og lesefni valið eftir skiptingu kynjanna. Fanginn hér að ofan fær t.d að kynnast vinsælasta efninu á internetinu í dag og heldur sér þar með inn í menningarheimi landanna.

Bað- og þvottaaðstaða:

thvottur

Börnin geta látið þvo þottinn og baðhandklæðin fyrir sig og sótt þau í enda dags.  Við vitum síðan að stutt er í barnshjartað, og því verður
umhverfið skreytt með skemmtilegum og litríkum myndum. Karakterar eins og Mikki Mús eða Eyrnaslapi verða aldrei langt undan til að g leðja litlu gullin.

Góð aðstaða til borðhalds:

bordhald


Einkasvítur:

einkaklefi

Þeir sem voru ekki hrifnir af útivistarsvæðinu eiga eftir að elska einkasvíturnar okkar. Dýrari en fjölbýlið (10fm klefarnir með minnsta kosti 15 leikfélögum) en
bjóða upp á þann möguleika að slaka á í óákveðin tíma.

Síðan er auðvitað ónefnt þeir ýmsu hátíðisdagar sem eru á hverju ári. Óeirðardagurinn sem dæmi, þegar allir krakkarnir fá að sleppa af sér beislinu í einn dag, eða Fastan, þegar allir hreinsa líkamann í nokkra daga. þjónusta sem jónína ben býður upp á fyrir tugi þúsunda, innifalið í ársgjaldinu!

Það er margt í þessu í viðbót, en ég þarf bara hálfónýtablokk, nokkur tonn af steinsteypujárnum og kjölfestufjárfesta, og þá getur draumur okkar um betra líf fyrir börnin okkar orðið að veruleika.

Áfram O mundo é tão bom, áfram ísland! Áfram börn.


Skemmtileg útskýring á hruninu

Posted by Jóhannsson on May 06, 2009
Húmor, Pólitík / 6 Comments

Hilda er bareigandi. Til þess að auka veltuna þá ákveður hún að leyfa dyggum viðskiptavinum—sem flestir eru atvinnulausir alkar—að drekka út á krít.

Hún skráir allt sem drukkið er í þykkan kladda. Þegar þetta þægilega fyrirkomulag spyrst út þá flykkjast nýir viðskiptavinir á barinn. Frelsi fólks til þess að njóta augnabliksins og borga seinna gefur Hildu valið tækifæri til þess að hækka verðið á vinsælustu veigunum, bjór og víni

Salan eykst gífurlega. Ungur og efnilegur lánafulltrúi í hverfisbankanum gerir sér grein fyrir að þessar skuldir viðskiptavinanna eru framtíðarverðmæti. Hann hækkar því yfirdráttarheimild Hildu í bankanum. Lánafulltrúinn telur þetta vandræðalaust vegna þess að skuldir alkanna eru haldgóð veð.

Í höfuðstöðvum bankans breyta sérfræðingar í æðri peningalist þessum viðskiptaskuldum í Drykkjuskuldabréf, Alkabréfavafninga og Gubbuafleiður. Þessi verðbréf—sem virt áhættumatsfyrirtæki hafa (gegn þóknun) stimplað AAA gæðastimpli—ganga síðan kaupum og sölum út um allan heim. Raunverulega skilur enginn hvað nöfn bréfanna þýða eða hvernig þau eru tryggð. Samt sem áður halda þau áfram að hækka. Þau eru metsöluvara.

Einn góðan veðurdag, þrátt fyrir að bréfin séu enn á uppleið, þá ákveður áhættusérfræðingur bankans að nú sé tímabært að drykkjuhrútarnir á bar Hildu borgi eitthvað upp í skuldirnar. Þeir geta það hins vegar ekki. Hilda getur því ekki staðið í skilum við sína skuldunauta og lýsir yfir gjaldþroti. Drykkju- og Alkabréf falla um 95%. Gubbubréfin gera betur og ná stöðugkeika eftir 80% fall. Nýr veruleiki blasir við hjá fyrirtækjum sem seldu barnum á lánakjörum og hafa jafnvel líka fjárfest í fyrrnefndum bréfum. Heildsalan sem seldi Hildu vín er gjaldþrota og fyrirtækið sem seldi bjórinn er yfirtekið af keppinauti.

Eftir dramatísk fundahöld og andvökustundir sem standa samfleytt í marga sólarhringa þá ákveða stjórnvöld að bjarga bankanum.

Nýr skattur er lagður á. Bindindismenn eru látnir borga brúsann.

Kv.

_Jóhann Þórir_

má þetta???

Posted by Kjarri on May 04, 2009
Uncategorized / 12 Comments

Má lögreglan leggja ómerktum og ómönnuðum bíl við götu, mæla alla bíla sem keyra fram hjá og senda svo bara sekt á alla sem keyrðu of hratt?

Er þetta í alvöru leyfilegt?

Tags: ,