Archive for March, 2009

Innilegar hamingjuóskir

Posted by Bragi Þór on March 31, 2009
Uncategorized / 9 Comments

Fyrir hönd Dagdrauma™ vil ég óska Bjarna og Evu hjartanlega til hamingju með frumburðinn.
Við skulum vona að hann höndli “Pressuna©” á því að koma inn í þennan vinahóp.
Megi hann vaxa og dafna og verða jafn AWESOME og við :)

Barnið hennar Evu

Barnið hennar Evu, glöggir lesendur vita að hvorki Bjarni né Eva eru svört, það sama verður hinsvegar ekki sagt um barnið á myndinni!

Eftirfarandi mynd náðist af í morgun af ljósmyndara Dagdrauma™

Fremsti Fréttaskýringarvefur Landsins

Posted by Bjarni Ólafur on March 29, 2009
Atburður, Uncategorized / 5 Comments

Til er sá vefur sem hefur meira sjálfsálit en nokkur annar vefur, nei ótrúlegt en satt er eitthvað sem toppar okkur dagdrauma. Það er vefur sem kallar sig Fremsta fréttaskýringarvef landsins. Því miður hef ég ekki lagt nám við fjölmiðlafræði en útfrá orðinu skýringarvefur geri ég ráð fyrir að þeir taki fréttir brjóti þær niður og útskýri hvað er að gerast, þá oftast með hlutlausu mati sem gefur góða mynd á stöðunni.

Vefurinn er hinsvegar allt allt annað en fréttaskýringaþáttur, hann er málgagn hægri manna. Nú hef ég lítið á móti málgögnum þeirra, hafði gaman af því einu sinni að lesa vefritid.is en þar var líka ekkert verið að fela hlutina, vefurinn var málgagn hægri manna. Þessi umtalaði vefur telur sig hinsvegar fréttaskýringavef.

Á forsíðunni eru helstu mál, þar á meðal Landsfundur Sjálfstæðisflokksins. Á sama tíma er landsfundur stærtsa flokksins á Íslandi en af einhverjum ástæðum er hann ekki hluti af helstu málum. Svo byrjar fjörið. Nokkur fuglahvísl sem er fastur liður á heimasíðunni.

Hvað eru ofurlaun um þessar mundir? – Drullað yfir Jóhönnu Sig fyrir að Eva Joly, fremsti saksóknari á sviði fjársvika í heiminum fái 1,3 millur á mánuði. Sumir vinir okkar kúka ekki einu sinni fyrir 1,3 millur.

Furðurfréttir um fylgi Jóhönnu? – Gert grín af því að kosið hefði verið um formann á landsfundi Samfylkingar. Þeir gera líklega ekki grín af því að þetta var líka gert með Geir H. Haaaaaarde þegar hann var einn í framboði og fréttamenn lofuðu manninn og töluðu um samheldni í flokknum.

Smáfuglarnir biðja Steingrím J og Jóhönnu Sig afsökunar. – Kaldhæðnisleg grein um að ríkisstjórnin sé ekki að gera neitt.

Svo læt ég nægja að kvóta úr greinni Spuni vegna Davíðsræðu. ” . . . . smáfuglarnir hana og skemmtu sér hið besta yfir því, hvernig hann tók á alvarlegum málum á sinn einstæða hátt. . . ”

Þess vefur er Amx.is.

————————————————————————–

Hinn hnittni og einstaklega skemmtilegi grínisti Davíð Oddsson fór með gamanmál á Landsfundi Sjálfstæðismanna í gær. Þar gagnrýndi hann einn hlut hjá Sjálfstæðisflokknum. Það var nefndin sem gagnrýndi flokkinn. Eftir ræðuna tóku blaðamenn viðtöl við hina og þessa sem voru á fundinum og allir voru sammála: “Óþarfi af honum að segja þetta en annars fráááábæææææær ræða”. Það er grínistinn var ógeðslega fyndinn á meðan hann gerði grín af andstæðingum og hvað þeir væru miklir asnar, en óþarfi var nú að gera grín af okkur.

Þar sem ég er ekki lengur Sjálfstæðismaður get ég ekki talað fyrir Sjálfstæðismenn en mikið svakalega væri ég pirraður út í þennan mann. Flokkurinn þarf að byggja sig upp eftir mistök forvera sinna, þar á meðal Davíð, en alltaf stekkur hann upp aftur og heldur áfram að brjóta niður. Ég held að ef Davíð færi fram færi jafn illa fyrir honum og Jóni Baldvin sem hagar sér álíka í Samfylkingunni.

————————————-

Helgi skammaði mig fyrir að blogga lítið. Vonandi fyrirgefið þið mér að brjóta upp mynstrið og skrifa um pólitík en ekki pósta fyndnum myndböndum af youtube.

Wonder Showzen ójá.

Posted by Helgi Jó on March 29, 2009
Fat Hlynur / No Comments

Wonder Showzen er góður þáttur. Þáttur þar sem draumarnir rætast. Njótið þessa brots:

hér má síðan sjá alla þættina, og meira:

http://tv.blinkx.com/show/wonder-showzen/rbOZqQSDuoW2-aE1Xw1FKHw33Xg

en þetta brot hérna fyrir ofan, þetta unaðslega brot, er úr seríu 2, þætti sex.

private færsla

Posted by Jóhannsson on March 27, 2009
Uncategorized / 4 Comments

tékk it out

Skrýtið þetta fólk

Posted by PartýSnáðinn on March 26, 2009
Uncategorized / 3 Comments

Merkilegt..

Október 2008, bankakerfið á Íslandi hrynur

Afleiðing: Stór hluti almennings tapar mörgum peningum, gengið hrynur og þúsundir missa atvinnuna

Afleidd Afleiðing 1: Þunglyndi sökum mikills fjártaps, vinnumississ og svartra framtíðarhorfa hjá íslenskum almenningi

Afleidd Afleiðing 2: Íslendingar leita í vímuefni til að slá á þunglyndið s.s áfengi og kannabis.

Á meðan að á þessu stendur taka glöggir starfsmenn lögregluyfirvalda eftir því að ræktun á kannabis hefur stóraukist. Eins og eðlilegt er færir lögreglan meiri fjármuni yfir í fíkniefnadeild sína til að hafa í við að bösta gróðurhús.

Afleðing: Áhætta við ræktun eykst, veikgeðjaðri glæpamenn draga sig úr ræktuninni og skilja eftir sig aðstæður þar sem einungis forhertir bófar með einsettan brotavilja stjórna markaðinum. Þegar að framboðið minnkar hækkar verðið sem kemur niður á þunglynda bankagjaldkeranum sem missti vinnuna. Sem þarf núna að eiga viðskipti við skipulagða glæpamenn og fær þar greiðan aðgang á að kaupa sér miða aðra leið í sótsvart ræsið, með eilífðar greiðsludreifingu en enga afborgun fyrsta mánuðinn.

Á meðan að á þessu stendur er einn feitur og sveittur lítill maður dúsandi í myrkvaðri gluggalausri kompu á lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Hans vinna er að vera sérséttur saksóknari í bankahruninu, hann fær nánast enga aðstoðarmenn og kókómjólkurkippu til að nota í vöruskiptum við kaup á sérfræðiráðgjöf.

Afleiðing: Forhertustu glæpavíkingar sögunnar ræna, rupla og nauðga heimabyggð og sleppa frjálsir allra saka með ránsfenginn til Tortúga.

Eru þetta réttar áherslur hjá okkur sem samfélag?

Samantekt fyrir DarrF :
Ef a og b eru stök á x-ásnum, a stendur fyrir útrásarvíkinga, b stendur fyrir garðyrkjubændur, og x-ásinn stendur fyrir mannvonsku, íllsku og allt sem er slæmt. Drögum ályktun, a > > b

Samantekt fyrir fáfróð fífl sem skilja ekki merkingu orðsinns ,,rök”.
Höfundur er djúpt sokkinn fíkniefnafíkill sem fjármagnar neyslu sína með því að féflétta saklausar ömmur, stela góðgæti frá ungabörnum og að selja leikskólakrökkum sýru, heróin og krakk. Hann leiðir einnig umsvifamikinn djöfladýrkendahring á norðurlöndum meðan hann sinnir helsta áhugamáli sínu, sem er jú að framleiða barnaklám. Vaknaðu, finndu kaffilykt, skjóttu þig í hausinn fíflið þitt.

Murphy’s Law

Posted by Hlynur 17 on March 26, 2009
Uncategorized / 8 Comments

Hér var leiðinlegur póstur. Honum hefur verið hent.

Hans í stað er hér myndband sem sýnir hvað börn eru heimsk…

[media id=16 width=445 height=364]

Tags:

Snorri Sigurðsson

Posted by Bragi Þór on March 25, 2009
Uncategorized / 5 Comments

Snorra Sigurðssyni, sem ætti að vera öllum dagdraumum vel kunnugur, finnst víst mjög skemmtilegt að taka myndir af sjálfum sér.
Svo segir allaveganna jútjúb:

Vangaveltur

Posted by PartýSnáðinn on March 25, 2009
Uncategorized / 15 Comments

Á vafri sínu um netið finnur maður margt áhugavert, stundum dettur maður inn á áhugaverða hluti sem maður vill deila með fólkinu í kringum sig. Þetta er þannig tilvik.

Afhverju er málfrelsi mikilvægt?

Afhverju eigum við að láta okkur varða hluti sem koma okkur ekki við?

Martin Neimoller var þýskur prestur sem studdi Nasistana þangað til að hann áttaði sig, of seint, hvað þeir voru í raun að bauka. Hann var sendur í Dachau útrýmingarbúðirnar og var einn af þeim heppnu sem komust lifandi af. Hann lét hafa eftir sig þessi orð, sem eiga jafnt við í dag sem og þá.

“First they came for the Communists,
and I didn’t speak up,
because I wasn’t a Communist.
Then they came for the Social Democrats,
and I didn’t speak up,
because I wasn’t a Social Democrat.
Then they came for the Trade Unionists,
and I didn’t speak up,
because I wasn’t a Trade Unionist.
Then they came for the Jews,
and I didn’t speak up,
because I wasn’t a Jew,
Then they came for me,
and by that time there was no one
left to speak up for me”

Það má færa rök fyrir því að aðstæður í dag séu ekki ósvipaðar þeim sem voru í byrjun 4 áratugs síðustu aldar.

Til að ljúka máli mínu ætla ég að vitna í Benjamin Franklin.

“Þeir sem afsala sér frelsi fyrir öryggi, eiga hvorki skilið frelsi né öryggi.”

Ef ég væri milljónamæringur

Posted by Stones Mind on March 21, 2009
Awesome, Dagdraumar / 10 Comments
Steinari þykir leiðinlegt að þvo

Steinari þykir leiðinlegt að þvo

Ég hef oft spáð í því hvað yrði það fyrsta sem ég mundi gera ef ég td. ynni í Vikinga Lottó. Ég geri mér fulla grein fyrir því að það er ekki að fara að gerast, sér í lagi vegna þess að ég hef aldrei og mun sennilega aldrei kaupa mér lottó miða.

Engu að síður þá mundi ég byrja á þessu:

  1. Henda öllum sokkunum mínum og kaupa 100 pör af alveg eins alveg svörtum sokkum (td. þessum sem fást í Dressman)
  2. Henda öllum nærbuxunum mínum og kaupa 50 stk af alveg eins svörtum nærbuxnum.
  3. Henda öllum stuttermabolununm mínum og kaupa 50 hvíta boli, þessir sem fást í Zara koma vel til greina.

Auðvitað er það svo ýmislegt fleira, eins og að láta gera við pústið á Opelnum, en þetta er það sem ég mundi byrja á.

Nú varpa ég spurningunni til ykkar, hvað færi það fyrsta sem þú mundir gera?

kv,SH

Tags: , , , ,

Nýju Dagdraumar

Posted by Stones Mind on March 20, 2009
Dagdraumar, Nördadót, Tíska / 9 Comments

gamli-dagdraumarisSælir vinir,

Við getum allir verið sammála um eitt. Gamla lúkkið var hræðilegt. Þrátt fyrir ítrekaðar tilskipanir frá Braga um að það fengi að vera áfram tók ég af skarið og skipti því út. Í leiðinni breytti ýmsu fleiru.

Þessi hlutir breyttust:

  1. Nýtt útlit
  2. Nú keyrum við á nýjustu útgáfunni af WordPress
  3. Við erum núna hýstir á servernum okkar Braga í USA í stað Bretlands.
  4. Notendanafnið hans Darra Eyþórs er núna darre í stað darrie
  5. User-id-ið 6 var tekið af Jóa og Kjarri fékk það í hans stað.

Þessir hlutir eru eins:

  1. Notendanöfn og lykilorð (allra nema Darre)
  2. Dagdraumail er ennþá á http://mail.dagdraumar.is
  3. Færslurnar og commentin færðust öll á milli (eiga amk. að hafa gert það)
  4. Við erum ennþá osomm

Varðandi nýja lúkkið þá er það byggt á wordpress skinni sem ég fann. Headerinn eru 15 silúettur sem hver endurspeglar einn meðlim. Byrjið á að finna Dóra, hann er auðveldastur.

Ps. Birtar færslur eru 1054 og þær hafa 6583 athugasemdir. Skál fyrir því!

kv,SH

Tags: , , ,