Archive for January, 2009

Móðir hvar er barnið þitt?

Posted by Stones Mind on January 27, 2009
Dagdraumar / 6 Comments

Skemmtileg skilboð í breyttri útgáfu af Símaauglýsingunni á Youtube:

Það veit enginn hver bjó hana til.

X-Stjórnin

Posted by Nelli on January 26, 2009
Dagdraumar / 12 Comments

Jæja strákar nú er tækifærið!!!! Nú bjóðum við fram flokk Dagdrauma og tökum þessa mynd á Bessastöðum stilltir upp eins og ríkisstjórnin…

Bóndadagssæla

Posted by Kjarri on January 23, 2009
Dagdraumar / 12 Comments

Ég sé þennan bóndadag sem heilagann dag þar sem kærastar, unnustar og eiginmenn mega allt, geta allt og fá allt. Ástæða og leyfi til bjórdrykkju er til staðar á hvaða tíma sólarhringsins.

Bóndadagur og fyrsti dagur Þorra. Kærustur athugið, það er ykkar skilda að gera þennan dag mynnistæðann og fá okkur til að hlakka til þess næsta.Við viljum góðann mat, mikinn drykk og allar þær gælur mögulegar. Margar dömurnar rangtúlka þessa tengingu þorra og bóndadags. Til að tryggja skilning þá viljum við ekki þorramat, við viljum góðann mat. Víkingar borðuðu þorra því ekkert betra var til það þýðir ekki að við viljum hrútspunga og gerað vatn. Við viljum steik, góða sósu og gott vín eða góðann bjór. Víkingar stunduðu kynlíf í heyi því rúmm var ekki í boði, augljóslega viljum við ekki stunda kynlíf í heyi því það er ekkert gott.

Ég býst við að allir kærastar/unnustar/eiginmenn hafi vaknað við bakaríslilm og munngælur í morgun. Muni stunda styttri og skemmtilegri útgáfu vinnudags með lengri kaffi- og hádegispásum. Muni sita eftirmiðdaginn við hringlaga pókerborð í góðra vinahópi með hrímþakinn bjór þar til boðið sé til matar. Á heimili sínu fá góðann mat og vín og þaðan stefna út á lífið. Góðum degi lýkur svo með öllum þeim gælum sem einungis fást 4 sinnum á ári (afmæli, bóndadag, áramótum, valentínusardag[fer eftir árangri]).

Gleðilegan Bóndadag,

[Stelpulesendur]
Ég skipa þér stelpukjáni sem veist ekkert hvað þú átt að gera að fara í gallerí kjöt, kaupa góða nautasteik og meðlæti. Næst getur þú farið í ÁTVR og keypt bjór ef maðurinn þinn er bjór maður eða gott vín ef maðurinn þinn er vín maður (mæli með Peter Lehman Mentor [umhelling nauðsynleg], Chateau Musar eða Las Moras Black Label [umhelling nauðsynleg]. Ég myndi skilgreina þetta sem það allra minnsta sem þú getur gert og getur ekki dottið neitt frumlegt í hug. Og að lokum, því má ei gleyma að hausverkur er ekki til á degi bónda.

LOLZ!

Posted by Dóri-í-Dós on January 22, 2009
Dagdraumar, Húmor, Keppni, Myndir / 5 Comments

Tíhíhí… Hey strákar, keppni í mótmæla photoshoppi?
Póstið ykkar í færsluna með nafni undir…

Lulz
Dóri

lol
Dóri

Þjóðin segið þið.

Posted by Helgi Jó on January 20, 2009
Dagdraumar / 28 Comments

Í dag mættu atvinnulausir aumingjar sem áttu ekki graut í skálarnar sínar til að mótmæla niður á Austurvelli. Þeir börðu á tómar skálarnar og otuðu eggvopnum að saklausum Alþingisveggjum.  Þetta fólk er það sem að hefur eytt öllu sparifé sínu í einbýlishús á seltjarnarnesi, veðsett ættingja sína fyrir búgarða undir eyjafjöllum og lifað hátt um efni fram í fjölda ára. Þetta fólk er augljóslega ekki þjóðin og því ber svo sannarlega ekki að taka mark á þeim.

 

En herra, varstu ekki að segja um daginn að þjóðin öll hefði bruðlað og eytt?  Er þetta samt ekki þjóðin eða? 

Mér þykir alltaf merkilegt þetta orð þjóðin. Þjóðin er þetta og þjóðin er hitt. Getur einhver sagt mér hvað þjóðin er? Í sífellu þegar fólk mætir þúsundum saman er það ekki tekið alvarlega af því að, jú, þetta var ekki þjóðin. Þetta var bara skríll.En hvað er þá þjóðin? Er þjóðin það hlutfall af fólkinu í landinu sem kaus á Alþingi? Er það þjóðin? Eða er þjóðin þeir sem hafa átt börn eða er þjóðin kannski allt Ísland?

Ef þjóðin er allt Ísland, þá er auðvitað augljóst að 1000 manns eða 10.000 manns eða 301.000 manns eru ekki þjóðin, en það skiptir bara andskotans engu máli.

Það sem skiptir máli er að 1.000-10.000 manna mótmæli á Íslandi er alveg fáránlega mikið af fólki. Sett í samhengi við Bandaríkin er það svipað og ef milljón til tíu milljón manns myndu mæta á mótmæli fyrir framan hvíta húsið (og þess má geta að 4 milljónir mættu á innsetningu Obama í dag). Ef að þú læsir í fréttunum í dag að 10 milljónir manna mótmæltu efnahagsástandi bandaríkjanna á sama tíma og á sama stað, þá myndi heimurinn hlusta. Þá yrði eitthvað gert. En hér, hér er sami fjöldi náttúrulega bara ekki þjóðin, heldur unglingar og háskólafólk sem eru afætur þjóðarinnar.

Fokk orðið þjóðin. Þjóðin er aldrei öll að fara mæta, auðvitað ekki, því að það verða alltaf allavega 61 kúkalabbi fyrir innan að horfa á. Þeir sem eru hins vegar að fara mæta mynda alveg gríðarlega háa prósentu af þjóðinni. Til dæmis eins og í dag. Yfir þúsund manns. Um hábjartan virkan dag. Og ekki bara unglingar, heldur líka miðaldra fólk, gamalt fólk og Lomminn.

Fólkið í dag sem mætti eru þeir sem eru þreyttir á ástandinu og því að enginn tekur ábyrgð á neinu.

Ég mætti ekki í dag, eins og margir aðrir, og sé eftir því, eins og örugglega margir aðrir. Seinna í dag horfði ég hins vegar á Barack Obama í sjónvarpinu. Hann talaði um þá sem höfðu barist hér áður fyrr fyrir réttlæti, lýðræði og jafnrétti. Hann notaði ekki orðið skríl um það fólk, heldur orðið hetjur.

Og orðið skríll er heldur ekki notaður yfir þá sem börðust við Ghettysburg, tóku þátt í Febrúarbyltingunni, frönsku uppreisninni, Bardaganum við Trenton eða frelsisbaráttu Tíbeta. Þannig er heldur ekki talað um þá sem voru með í friðsömu (hér meint án dauðsfalla) aðgerðum, eins og  flauelsbyltingunni í Tékkóslóvakíu, syngjandi byltinguna í eistrasaltslöndunum eða maí byltingin í frakklandi 1968. Nei, þegar talað er um þessar byltingar þá er talað um breytingar til hins betra, til lýðræðis og réttlætis. Og þá er talað um hetjur og þeim byltingum sérstaklega hampað sem voru friðsamlegar.  

Höfum það fast í huga að enn hafa engin ófriðsamleg mótmæli átt sér stað á Íslandi. Jú jú, það hefur verið kastað eggjum, og kaplar hafa verið eyðilagðir, en það yrði hlegið að þér ef þú ætlaðir að halda því fram við íbúa Gaza-strandar að þannig mótmæli væri ófriðsamleg og ofbeldisfull. Vonum að það þurfi aldrei að koma til þess að hér verði beitt ofbeldi, en því verður beitt ef allt annað þrýtur.

En hvað sem því líður, þá bera yfirvöld ekki neina virðingu fyrir mótmælum hér á landi, friðsamlegum eða ófriðsamlegum, enda er það ekki þjóðin sem mótmælir, ekki íslendingar, heldur skríll. 

Ég er nefnilega að bulla, hvernig læt ég, ég veit ósköp vel að þeir sem mættu í dag voru bara atvinnulausir andstæðingar þjóðarinnar. Fyrirgefið mér og guð blessi ísland.  

Byko fail

Posted by Stones Mind on January 20, 2009
Nöldur / 3 Comments

Um jólin fékk Sara systir mín örbylgjuofn í jólagjöf. Það væri nú ekki frásögu færandi nema því ég hjálpaði pabba að velja hann. Galanz ofn úr Byko sem kostaði rétt tæpar 10þús krónur, meðal annars auglýstur í Fréttablaðinu laugardaginn 13. des á síðu 25.


Tilboðsverð, 9.900 kr. Fullt verð:  14.900 kr.

Í gær var ég í Byko og gekk fram hjá euro-bretti með þessum sömu örbylgjuofnum.

Sami örbylgjuofn á einhverskonar tilboði

Útsala! 30% afsláttur, aðeins 13.627 kr.

Núna er hann á útsölu með “30% afslætti” á 13.627 kr, þe. fullt verð er skyndilega komið upp í 13627 / (1 – 0.3) = 19.467 kr.
Í ljósi þess að janúarútsölur ganga yfirleitt út á að losa út á að losa um yfirbirgðir frá desember er ólíklegt að þetta sé ný sending á nýju gengi, en engu að síður eflaust þeirra afsökun. Útsala my ass. Þjófar, þorparar og svikahrappar.

SH

Forrest Button

Posted by Jóhannsson on January 20, 2009
Dagdraumar / 1 Comment

Nú hef ég ekki séð The curious case of benjamin button en þetta er fyndið:

[MEDIA=10]

Bretti á morgun

Posted by Kjarri on January 19, 2009
Dagdraumar / 8 Comments

Sælir félagar

Ég ætla að skella mér á bretti í kringum hádeigi á morgun, ef veður leyfir.

Spáin er smá snjókoma, lítill vindur og við frostmark.

Þeir sem vilja fá far með mér endilega hringið fyrir hádegi eða sendið mér sms.

Annars hittumst við bara hressir í fjallinu.

kv, kjarri D.

Stainersbar v2.0

Posted by Stones Mind on January 19, 2009
Dagdraumar / 1 Comment

Myndir komnar á Facebook.

Íbúðin
32 myndir
Eftir Stainer Hgui Sigurðarson

Í Aspargrundinni hefur síðustu mánuði orðið til íbúð þar sem Teiknistofan Nýbýli var áður til húsa. Fyrsti hlutinn er um 47 m2. Stæstu verkin voru smíði stiga, baðherbergis og eldhúss en við skiptum einnig um gólfefni ofl.

SH

Duderinos

Posted by Hákon Jarl on January 19, 2009
Atburður, Awesome, Fat Hlynur, Tíska / 5 Comments

jæja sykurpúðarnir mínir, núna styttist í það að maður yfirgefi ykkur og er ég viss um að það kalli fram blendnar tilfinningar hjá mörgum ykkar. En í tilefni af því skuluð þið taka frá næsta laugardag því ég ætla að halda einhverskonar kveðju samkomu. Engin smáatriði komin á hreint þar sem ég var bara að enda við að ákveða þetta, en það mun allt koma á næstu dögum.