Á þessi skríll ekki að sinna fjölskyldunni sinni á áramótunum. Hvað um tveggja barna móðurina sem Lomminn hélt utan um á dv.is? Ætli hún sé frekar að fá kick út úr því að fá piparúða í augun í staðinn fyrir að reyna að halda áramótin með ættingjum og vinum.
Á síðustu mánuðum hafa verið tvær tegundir af mótmælum. Skrílslæti sem hafa ekki skilað neinu og svo málefnalegar umræður þar sem fólk skrifar og er óánægt með vissa hluti. Þau seinni hafa skilað því að KPMG er ekki að vinna með Nýja Glitni og Tryggvi Jónsson er ekki lengur í Landsbankanum.
Að Íslendingar kunni ekki að mótmæla er alveg rétt. Við höfum fengið okkar fram án fíflagangs síðustu ár og ættum að halda því áfram. Eina sem þetta gerir er að lengja fréttaannálinn.
2008 var líklega viðburðarríkasta, skemmtilegasta og besta ár sem ég hef upplifað. Eina slæma sem gerðist var að ég tapaði nokkrum krónum. Vonandi verður 2009 jafngott ef ekki betra.
Gleðilegt nýtt ár öllsömul og takk fyrir góðar stundir. Megi þær verða margar og góðar á næsta ári.
Þessi grein er einnig birt á bjarniolafur.com.
P.S. Ég vinsamlegast biðja b2.is menn að láta þessa grein í friði og birta hana ekki á síðunni. Hef engan áhuga á því.














