Þetta er opið bréf til ritstjórnar mbl.is , og ég geri fastlega ráð fyrir því að þeir lesi Dagdrauma í það minnsta tvisvar á dag eins og öllum þjóðræknum íslendingum ber að gera.
Í dag er frétt á vefsíðu morgunblaðsinns þar sem að fram kemur að einungis um 60% dana telja að hlýnun jarðar sé af mannavöldum. Jújú gott og blessað að danir hafi einhverja skoðun á þessu máli, En hvernig í andsk. er þetta frétt? Er meginþorri dana menntaðir vísindamenn sem sérhæfa sig í loftlagsrannsóknum? NEI. Hafa 60% dana nægar upplýsingar, menntun eða yfir höfuð greind til að þess að geta tekið vísindalega ákvörðun á þessu máli? NEI. Herra morgunblað ekki birta fréttir um vísindalegar staðreyndir sem byggja ekki á vísindalegum staðreyndum heldur slúðri og gróusögum. Ég sem fréttaneytandi á ykkar annars skítsæmilega miðli get litið framhjá taumlausu flóði stafsetningarvillna og oft á tíðum gífurlega órökstuddan fréttafluttning í flokknum “tækni og vísindi”. Að “vísindamenn” í Bretlandi hafi komist að einhverju segir mér bara ekki nokkurn skapaðan hlut, hvaða vísindamenn, hvar eru niðurstöðurnar birtar, hver samþykir þær? Hvaða hálfviti sem er getur farið í hvítan slopp og kallað sig vísindamann. Fréttamenn þurfa að sannfæra lesendur um það um sé að ræða raunverulega vísindamenn með haldbæra menntun en ekki strokufanga af Klepp.
Herra ritstjóri. Ekki birta bull og kalla það fréttir. Ég bið þig um að leiðbeina fréttamönnum þínum að taka frekar angarstundarkorns lengri tíma til að eyða í rannsóknarfréttarmennsku áður en þvaður eða gróf misbeiting á íslenskri tungu er birt á vinsælustu vefsíðu landsins. Oft er betra að taka sér góðan tíma í að gera hlutina vel en að flýta sér og gera þá ílla. Þó svo að það yrði til að ég myndi fá einni frétt færra um nýjustu geðkveila Brittney Spears, ég get allveg afborið það.
Baráttu kveðjur
Dragan Drasmolovic



