Af hverju er ég sá eini sem er á English á fimmtudegi stelpur?
Archive for October, 2008
Núna stendur Ísland á tímamótum. Við höfum á aðeins nokkrum dögum farið úr því að vera skuldlaust land, í að vera eitt skuldsettasta land Evrópu. Það eru erfiðir tímar framundan, og við munum þurfa að vinna hörðum höndum að því að borga upp okkar skuldir.
Því er eðlilegt að spyrja sjálfan sig: Í hvað fara skattarnir mínir?
Börn sem fæðast á Íslandi eru sjálfkrafa skráð í Þjóðkirkjuna. Á hverju ári borga tugir þúsunda íslendinga 11þús.kr í sóknargjöld í þjóðkirkjuna í gegnum skattana sína. Mörg þúsund þeirra nýta sér aldrei þá þjónustu sem kirkjan hefur upp á bjóða, að öðru leyti en að fara í brúðkaup, jarðarfarir og skírnir. Svo skemmtilega vill til að sóknargjöldin borga ekki prestum fyrir þá þjónustu, heldur þurfa þeir sem standa að athöfninni að borga fyrir það sér. Fyrir hvað er þá fólk að borga þessi sóknargjöld? Væri ekki nær að eyða þeim peningum í eithvað sem skiptir okkur öll máli, frekar en bara þá sem sækja messur eða aðra þjónustu í kirkjuna? Hjá þeim sem eru ekki skráðir í trúfélag renna þessir skattar í fjársveltan Háskóla Íslands. Þá er aftur komin tími til að spyrja sig: Hvort vil ég efla Háskóla Íslands, eða Þjóðkirkjuna? Hvað er að fara að borga upp skuldir Íslands og koma aftur upp hagsæld, bænir eða hugvit?
Fyrir þá sem vilja skrá sig úr Þjóðkirkjunni eða öðrum trúfélögum, og byrja að efla íslenskt hugvit þá er það einfalt: Náðu í þetta eyðublað( http://www.thjodskra.is/media/eydublod/trufelag.pdf ) og sendu það niður á Þjóðskrá, eða fáðu þér frískt loft og mættu á staðinn(Borgartún 24) og kláraðu málið þar.
Hæ ég heiti Dóri og þetta er herbergisfélaginn minn hann Niels:
Mig vantar uppástungur að pirrandi persónueiginleikum sem ég get þróað með mér svo að hann hrökklist úr skóla.
takk.
Dóri-í-Dós
Já komiði öll sæl og blessuð.
Núna er þannig mál með vexti að ég þurfti að gera mér ferð til ríkisskattstjóra til að næla mér í virðisaukaskattsnúmer. Ég var búinn að hringja á undan mér og vinsamleg og elskuleg kona tilkynnti mér að ég þyrfti að fylla út tvö eyðublöð. Ég mæti þess vegna hress og kátur í Tryggvagötu 19 til þess að fylla þau út.
Eftir nokkrar mínútur er komið að mér og ég geng inn á skrifstofu manns, sem er enginn annar en Djöfullinn í mannslíki. Manni sem leit út fyrir að hafa fæðst á Tryggvagötu 19 og mun að öllum líkindum deyja þar líka, og ef guð lofar aldrei koma aftur.
Hér á eftir fara “samskipti” okkar:
Helgi sest í sæti fyrir framan djöfulinn og réttir fram tómt eyðublað 5.02 og brosir.
Helgi: “Góðan daginn, ég ætla að sækja um virðisaukanúmer”
Skattmann : “Þú ert ekki búinn að fylla út skjalið!”
aths. skattmann talaði hratt og horfði aldrei framan í mig.
Helgi : “Nei, ég er með nokkrar spurningar um hvað ég á að fylla út”
Skattmann : “Spurningar? þú bara fyllir út skjalið. Svona nú, farðu út og komdu aftur þegar þú ert búinn”
Helgi hikar, en fer út. Enginn penni á neinu borði. Helgi fer aftur inn og sér tvo penna á borði skattmannsins í djöfulmynd.
Helgi : “Gæti ég fengið penna hjá þér?”
Skattmann : “Það eru pennar frammi á borði”
Helgi fer fram og ennþá eru engir pennar í sjónmáli. Helgi biður þá afgreiðslukonuna vinsamlega um penna, sem hún lætur Helga fá. Helgi sest niður og fyllur út það eina sem hann er viss um á skjalinu, nafnið sitt.
Helgi fer aftur inn til djöfulsins:
Helgi : “Heyrðu, ég er með nokkrar spurningar hérna”
Skattmann : “Komdu með þetta” Skattmann tekur skjalið af Helga og merkir inn á nokkra reiti til að sýna Helga hvar hann á að fylla inn.
Skattmann : “Þú bara fyllir út þetta” segir hann og réttir Helga blaðið aftur.
Skattmann hjálpaði lítið, því þó að Helgi viti nú í hvaða reiti hann á að fylla í, veit hann ekki ennþá hvað hann á að fylla í þá. Hann spyr því skattmann:
Helgi : “Hvað á ég að fylla út hérna”. Helgi bendir á nokkra reiti.
Skattmann : “Þú fyllir bara út tekjur og veltu og svona, komdu með þetta þegar þú ert búinn”
Helgi andvarpar og fer út og fyllir í reitina með giski.
Áður en lengra er haldið ætla ég að setja hérna upp nokkra reiti sem átti að fylla upp í og sjá hvort þið getið rétt (Ath. að sjálfur Bjarni Ólafur gat ekki gert þetta rétt þegar ég spurði hann, og hann er bókfærslu og reikningasjéní)
Segjum að Helgi sé með 100.000 á mánuði og borgi þá 24.500 krónur í vask. Hvað á hann að fylla út í eftirtalda reiti:
1. Áætlaðar tekjur af virðisaukaskattskyldrisölu á fyrstu 12 mánuðum starfsemininar?
2. Reiknað endurgjald á mánuði?
Ef þið hefðuð verið bjarni, þá hefðuð þið sagt 24.500 í spurningu 2. En skattmann sagði við helga:
Skattmann : “Að sjálfsögðu er þetta ekki vaskurinn, hvað ertu að hugsa, þetta eru tekjurnar þínar.”
Helgi : “Tekjur án vasks þá?”
Skattmann : “Auðvitað, það stendur þarna”
Skattmann: “Farðu bara og kláraðu að fylla þetta út og komdu aftur inn”
Helgi fer út og reynir að fylla út það sem hann heldur að sé rétt. Fer aftur inn. Skattmann lítur yfir útfyllinguna og skoðar spurningu 1.
Skattmann : “Þú fylltir ekki inn veltuna þína”
Helgi : “Já, en það stendur tekjur.”
Skattmann: “Þetta er auðvitað spurning um veltuna þína”
Skattmann spyr því næst helga um áætlaða veltu og fyllir út um leið og hann hrygglir út nokkrum “hrmpf” á meðan.
Skattman lítur því næst á svar helga við spurningu 2:
Skattmann : “Þú ert ekki með svona mikið í laun á mánuði.”
Helgi : “Jú víst, ég er með svo og svo mikið á tímann og þetta eru launin”
Skattmann : “Nei, það getur ekki verið, ég set bara aðra tölu hérna fyrir þig, þetta gengur ekki”
Helgi er orðlaus.
Skattmann : “Hefuru ekki farið á námskeið? ”
Helgi : “Námskeið?”
Skattmann : “Já, þú verður að læra þetta. Það er námskeið 29. nóvember”
Skattmann réttir helga auglýsingu um námskeið v/ virðisaukaskatts, sem hefst 29.nóvember.
(Eða með öðrum orðum, hann vildi senda mig á námskeið sem er eftir einn og hálfan mánuð svo ég gæti skilið það óskiljanlega sem ég þarf að fylla út núna. Núna. Ekki eftir einn og hálfan mánuð.)
Skattmann : “Nú tek ég þetta og sendi þér síðan email”
Helgi stendur upp og gengur út, og heyrir þá kallað:
Skattmann : “Mundu síðan að fara á námskeiðið”
Núna fílar skattmanninn það kannski, en ég er ekki áhugamanneskja á því að láta gamla geðsjúklinga vaða yfir mig með besserwisserhætti og beinlínis tilkynna mér að ég sé heimskur.
Akkúrat núna er ég of hissa á því sem fór fram til að geta gert neitt, en á morgun ætla ég að fara og setja þennan skattmann á námskeiðið Buffaður í stöppu 101, og býst ég við því að hann nái því með glans.
[Edit]
Núna hékk auglysing uppi hja skattmann fyrir framan skrifstofu þessa djöfuls sem ég var hjá þar sem stóð:
“Þar sem frestur til skattskýrsluskila er liðinn, er ekki lengur aðstoðað við útfyllingu skattskýrslu”
Sem segir manni að einu sinni hjálpaði þessi gamli, úldni karl, fólki við að fylla út skattaskýrslur. Það hefur væntanlega farið svona fram:
Óspjölluð mey : “Já, góðan daginn, ég er í smá vandræðum með skýrsluna og …”
Skattmann : “ALJLJD, núna borða ég þig.. ARRRRSSLKJD”
Endir.
Jæja nú er kominn tími til að nöldra aðeins um kreppuna.
Eins og alþjóð þekkir er fátt umtalaðra í dag heldur en kreppan. Margir með lítið vit á málunum hafa mismunandi patent lausnir á stöðu mála, og fæstir vilja treysta þeim sem eru að reyna að stýra okkur í gegn um þenna ólgusjó. Mín upplifun á stöðunni er nokkuð einföld, Við skuldum helling af pening í útlöndum, annað hvort getum við borgað þennan pening eða sleppt því. Ef að við sleppum því að borga peninginn kemur mannorð okkar til með að líða gífurlegan skaða í langan langan tíma. Útrásar hetjurnar ógurlegu notfærðu sér traust og heiður Íslands til að markaðsetja sjálfa sig í útlöndum og drulluðu síðan uppá bak. Margir hverjir vilja ekki borga þær skuldir sem þessir óreiðumenn stofnuðu til, en málið er bara að við skrifuðum uppá þessar skuldir, og hvernig sem við lítum á málið þurfum við að ábyrgjast þær. Tökum sem dæmi að ég skrifi sem ábyrgðar maður fyrir Jóa uppá skuldabréf sem nemur 100 milljónum. Jói fer og leysir bréfið inn í bankanum, fer svo til Vegas, dettur í það og eyðir öllum peningunum á strípistöðum og fjárhættuspilum, Nú vill hann eðlilega ekki horfast í augu við þann vanda sem hann er búinn að koma sér í þannig að hann flýr land og lætur ekki sjá sig hér aftur. Núna verð ég að sjálfsögðu hæst óánægður með Jóa en ég get ekki undan því flúist að ég verð að borga þessar 100 milljónir úr eigin vasa.
Margir hverjir eru óánægðir með þessa myndlíkingu þar sem að flestir kannast ekkert við það að hafa skrifað undir sem ábyrgðarmenn fyrir Hannes Smárason og félaga. En ef við hugsum okkur sem svo að ég gefi Braga umboð til að skrifa uppá ábyrgð í mínu nafni fyrir Jóa, og Jói drullar uppá bak. Hvernig sem á er litið er ég ábyrgur fyrir þessari skuld og þarf að greiða hana úr mínum eigin vasa. Hinsvegar myndi mér ekki detta í hug að veita Braga slíkt umboð aftur, og ef ég kæmi höndum á Jóhann myndi ég kreista úr honum líftóruna. Svona er staðan sem við erum búin að koma okkur í, kanski vegna fáfræðis, kæruleysis eða að við höfum verið svikin og prettuð til þess, en við verðum að borga úr okkar eigin vasa þannig er það bara.
Núna er gott að spyrja sjálfan sig, hvernig ætlum við að borga. Ef ég skulda 100 milljónirnar sem Jói eyddi í Vegas væri það fyrsta sem ég myndi gera að tryggja peningaflæði til mín. Fyrir ríki er það nokkuð auðvelt þar sem að jú við almúginn þurfum alltaf að borga skatt en þaðan kemur peningurinn sem kemur til með að fara í að borga þessa ábyrgð. Þarnæst væri kominn tími til að fara yfir útgjöldin hjá mér, núna skulda ég margra ára laun og vill að sjálfsögðu borga það niður sem allra fyrst til að losna við vaxtarálag mikið. Að sjálfsögðu fer ég ekki að neita sjálfum mér mat eða þak yfir höfuðið, en ég get ekki verið á velsæmdar fylleríi á hverjum degi. Tengjum þetta aðeins við þjóðfélagið og skoðum í hverju við erum að eyða pening.
Þjóðkirkjan kostar mig, Steinar, Helga og restina af þjóðinni fimm milljarða á ári. Sá peningur fer í viðhald á slatta af kirkjum, sem standa svo gott sem tómar meiri hluta ársinns, svo erum við einnig að borga ofurlaun handa fullorðnu fólki í grímubúningum sem er að segja okkur skrökvsögur um álfa og huldufólk og allskonar bull. Ekki nóg með að við séum að borga þeim fáránlegar peningarupphæðir fyrir að segja okkur hluti sem brota brot af þjóðinni trúir á heldur borgum við einnig fyrir húsaskjól handa þessu pakki. Ef ég skulda 100 milljónir og þarf að borga þær upp, þá er það fyrsta sem ég geri að reka hirðfíflin úr þjónustu minni. Ef það hefur einhverntíman verið tími til að koma á algerum aðskilnaði ríkis og kirkju þá er það núna, Einnig mætti taka öll þau verðmæti sem að kirkjan er búin að sanka að sér með svikum, lygum og prettum í gegnum aldirnar eignarnámi og nota til að borga skuldir vorar upp.
Nú byrja þessir fáu trúuðu að væla, segja að ef það hafi einhverntíman verið tími fyrir kristilega samstöðu og kirkju þá sé það núna á þessum erfiðu tímum. Ég þarf ekki bofs á Jesú, heilögum anda eða páskahéranum að halda, ef það er eitthvað sem ég þyrfti á að halda til að lina þjáningar mínar væri það brennivín, myndi það gera mikið meira fyrir geðheilsu landans að hafa frítt í ríkið og loka kirkjunum. Þessvegna segi ég við fólk sem nöldrar um trúarbrögð að ef þið viljið láta einhvern hálfvita í grímubúning ljúga ævintýra sögum að ykkur megið þið borga honum sjálf, ekki taka pening úr mínum vasa, hann getur komið mér til betri nota.
En já nóg um þjóðkirkjuna og hennar hyski. Við höfum látið það viðgangast alltof lengi að það sé verið að bruðla með almannafé. Þetta er gert á svo marga vegu að það er ógerningur að lista það allt upp í einu bloggi. Þessvegna ætla ég að einbeita mér að “ráðamönnum” þjóðarinnar. Það er allt gott og blessað að borga góðu fólki góð laun fyrir góða vinnu. Ég er því algerlega fylgjandi að menn sem sitja á þingi eða borgarstjórnum fái góð laun til þess að þeir þurfi ekki að þiggja mútugreiðslur og þvílíkt. En það sem mér gremst er að svo virðist sem þetta fólk átti sig ekki á því að það er að fara með skattpeningana mína og Dóra, og Óla og þjóðarinnar allrar. Tökum sem dæmi Þorgerði Katrínu menntamálaráðherra og frægðarför hennar til Kína á dögunum. Þar spenderaði hún, maður hennar, ráðuneytisstjóri og maki hans að mig minnir 3 milljónum af okkar peningum, ef við gerum ráð fyrir að meðalmaður hafi laun um 250.000 á mánuði þá tekur það 3 menn eitt ár að vinna inn skatta fyrir þessa ferð. Nú spyr ég hversvegna í andskotanum ætti ég að vinna stíft og leggja hart að mér til að Íslenska ríkið, þ.e. við Dagdraumar og restin af þjóðinni, geti borgað niður erlendar skuldir okkar, þegar að fólkið sem fer með fjárráð okkar ber enga virðingu fyrir þeim erfiðum sem við höfum þurft að hafa fyrir til að borga undir rassgatið á þeim? Það hlýtur að vera krafa frá þjóðinni á þessum erfiðis dögum að ráðamenn geri sér ráð fyrir raunveruleika málsinns. Það er að ég, Nelli, Trausti og restin af þjóðinni erum ríkið, og þeir eru þjónar okkar. Við borgum launin þeirra og eru þeir samfélagsþegnar okkar, ekki öfugt, þeir eru ekki stjórnarmenn og kóngar og við erum ekki almúgurinn sem þjónar þeim. NEI við erum ríkið, þeir sem þjóna ríkinu eiga að gera sér grein fyrir því.
Ef að við lítum aðeins á myndlíkinguna okkar, þá liggur það í eðlilegri skynsemi að ef Bragi er búinn að skrifa undir ábyrgð fyrir mína hönd, fyrir utan að hafa haft af mér óeðlilega mikið af pening fyrir eigin hönd, og ég er skuldum vafinn. Þá er ég ekki að fara að gefa Braga nýtt umboð til að fara með fjárráð mín, það væri það minnsta sem ég myndi gera að leysa Braga frá störfum. Það getur ekki talist eðlilegt að þeir stjórnendur sem eru búnir að koma okkur í þetta klandur haldi stöðum sínum mikið lengur, þeim er einfaldlega ekki lengur treystandi, sem þýðir það að okkur er ekki lengur treystandi svo lengi sem að við höldum okkur við þessa stjórn.
Það er ekki þar með sagt að okkar hagur sé best borginn að standa í stjórnar umrótum þegar að björgunaraðgerðir eru í fullum gangi, En engu að síður verðum við að rísa upp sem þjóð og krefjast nýrrar stjórnar þegar að lygnir. Það er ekki forsvaranlegt að við lærum ekki af mistökum okkar og leyfum sama fólki að leiða okkur til glötunar á ný. Að sama skapi er það ekki tími til kominn enn að draga fólk fyrir dóm. Ef Jói klínir á mig mannsaur og hefur af mér 100 milljónir er það mitt fyrsta verk að þrífa af mér saurinn, þegar ég er orðin tandurhreinn og flottur tek ég mig til og elti Jóhann uppi eins og hund og dreg hann til saka, hvernig sem að því verður komið.
Nú er tími til að gera eitthvað, tími til breytinga, tími fyrir Byltingu. Gerum það besta úr slæmri stöðu, reynum eins og við getum að bjarga því sem bjargað verður en það sem mestu máli skiptir er að koma í veg fyrir að lenda í annari eins stöðu á ný.
Lifi Byltingin
Darri
Ok, nú er Blanks fjölskyldan bara að leika sér að taka orð og splæsa saman til þess að tékka hvort það sé ekki hægt að gera fitness trend úr því.
Behold… Cardioke.
Ég og Bergur tókum okkur til og ákváðum að reyna að spá fyrir um næstu bóluna í heilsugeiranum.
Karatador – It’s karate mixed with the quick movements of the Matador. No bull, just intense exercise!
Scu Jitsu – Scuba diving Jiu Jitsu is sure to boost your cardiovascular fitness.
Bob rope – Crank up the intensity by jumping rope on a bob sled. Will help get rid of that stubborn belly fat.
Archoline – Archery on a trampoline will work both your upperbody and your lowerbody – at the same time.
Sqwelding – When playing squash with a lit welding torch you are sure to make immense gains – not only in regards to physical health – but also, mental health and your reflexes.
Persónulega held ég að Bob rope sé the way of the future.
p.s. Það er mjög sniðugt hjá þeim að hafa ekki neitt sánd úr tímunum heldur bara einhvern sándbæt og svo lag. Því annars myndi fólk átta sig á því hvað það er intensely retarded að syngja á meðan þú ert að taka magaæfingar.
Eftir gríðarlega viðtökur af seinasta bloggi, þá hafði maður samband við mig sem hafði setið fund þar sem Níels ræddi framtíð félaga sinna, bankamannana. Og þar voru ýmsir menn mættir. Þetta er það sem fór fram: ”
Níels: Synir Íslands. Ég er Níels Bjarnason
Hannes Hólmsteinn: Níels Bjarnason er 75 kg!
Níels: Já, ég hef heyrt það. Rekur hundruði manna í gjaldþrot, og ef hann væri hérna þá myndi hann eyða ykkur öllum með eldglæringum úr augunum og eldingum úr rassinum sínum. ÉG ER Níels Bjarnason. Og ég sé fyrir framan mig heilan her af bankastarfsmönnum sem er ógnað af landsmönnum okkar. Þið eruð komnir hingað til að berjast sem frjálshyggjumenn, og frjálshyggjumenn þið eruð. Hvað mynduð þið gera án frjálshyggju? Mynduð þið berjast?
Hannes Hólmsteinn: Berjast? Berjast gegn landsmönnum? Nei, við munum flýja land, og við munum lifa.
Níels: Já, berjist og þið gætuð dáið. Hlaupið og þið lifið — Allavega í einhvern tíma. Og þegar þið deyið síðan í rúminu ykkar eftir mörg ár, væruð þið tilbúnir til þess að skipta öllum dögum ykkar fyrir þessum eina degi, fyrir þennan eina möguleika, þann eina möguleika að segja óvinum okkar, landsmönnum, að þeir geti tekið líf okkar, en þeir munu aldrei taka frjálshyggjuna okkar! ”
Á meðan þjóðin leitar að sökudólgum vegna bankakrísunnar og sökudólgarnir segja okkur að vera ekki að leita að sökudólgum heldur frekar einbeita okkur að æðruleysi og umhyggju, þá hef ég ákveðið að þetta gengur ekki svona lengur.
Einhver verður að bera ábyrgð, þaebarrsolleis sko.
Núna þekki ég engan stjórnmálamann (þó ég hafi einu sinni farið á kaffihús með Ingibjörgu Sólrúnu, þar sem hvorugt okkar fékk sér eitthvað ) eða yfirmann banka. En ég þekki Níels.Og Níels, hann er bankamaður. Maðurinn á bakvið gagnagrunnana þeirra. Maðurinn sem stjórnar öllu bakvið tjöldin og heldur utan um allar upplýsingarnar.
Því legg ég til, og hvet alla, til að sameinast með kyndla og hrossabresti fyrir framan heimili Nella í dag þar sem við munum smassa hann í mask.
Þessi mynd kemur fyrst upp ef maður gúglar “Níels Bjarnason” . Það er eitthvað svo… Við lemjum hann samt.
Drengir…. Látum yfirtökuna byrja!
Það er verið að selja íbúð í stigaganginum hjá okkur Önnu Siggu, nú er bara spurning hvor ykkar ætlar að vera fyrstur til að nappa hana, svo koll af kolli munum við eiga allar íbúðir í blokkinni….
hér er línkur á íbúðina:
http://mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/index.html?eign=324175
Kv. Jói

