Það hefur vafalaust ekki farið framhjá neinum dagdreyminum að íslenska krónan hefur fengið að kenna á því á undanförnum misserum. Sérstaklega þeim sem utanlands dvelja þar sem viðkomandi dreymarar treysta á verðleika hennar til eiga fyrir öli, matarkyns festu og öðrum lífsnauðsynlegum gersemum.
Höfundur hefur íhugað málið og þrátt fyrir að æði rann á hann í kjölfarið, með tilsvarandi blótsyrðum og uppköstum, hefur hann komist að niðurstöðu um hvar vandkvæðin liggja. Ástæðan fyrir því að krónan er svona veik, er einfaldlega útaf því að hún er kvenkyns. Vandamálið er ekki flóknara en svo. Krónan á engan sjens á móti sterkum og karlmannlegum gjaldmiðlum sem leynast þarna úti.
Þrátt fyrir að vandamálið sé í raun mjög einfalt þá er lausnin jafnvel enn einfaldari. Við hættum að kalla gjaldmiðil Íslendinga krónuna og köllum hann nafninu KRÓNINN! og skrifum ávallt með hástöfum og upphrópunarmerki og í karlkyni. Tökum einfalt dæmi til að skýra einfaldleikann sem liggur hér að baki.
Hugsum okkur tvo erlenda fjárfesta, segjum Dana og Svía. Þeir hafa hug á því að taka stöðu gegn krónunni sem gæti vel fært þeim peninga í vasann gegn því að krónan veikist. Daninn segir ,,Goddag min svenska ven, jeg tinker vi skulle ødelægge den islanske penge fordi der er en pige ” og Svíinn svarar um hæl ,,Ah, precis”. Venjulega þyrfti ekki meiri viðleitni en þetta til þess að lækka krónuna um tugi prósenta. Hugsum okkur nú ennfremur að Íslendingar fari að ráðum mínum og nefni krónuna KRÓNANN! (svipað og Conan). Þá yrðu eftirmálar fjárfestanna okkar svona.
,,Oh nej, min svenska ven, der er KRÓNINN! Nej det er kedligt, jeg kan ikke lide KRÓNINN fordi han er svo sterk!”
Svíinn svarar ,,Ahh, juste” og KRÓNINN! öskrar “KRÓNINN, SMASH!!”. Lýðskrumararnir geta fátt annað gert nema hætt við áform sín, tekið föggur sínar, hætt að tala sitt eigið tungumál, talað einungis íslensku framvegis og farið þegar þeir standa frammi fyrir mætti og styrki KRÓNANS! Því KRÓNINN! er ekkert lamb að leika sér við. Nei, þvert á móti. Hann er úlfur meðal sauða, járn meðal skíts og engin mun þora ögra mætti hans.
Ef við gerum KRÓNANN! út fyrir að vera heljarmennið sem hann er, munu Íslendingar brátt vaða í auðæfum upp að mjöðmum í stað þessa volæðis sem nú ríkir yfir. Eina sem gengur nú á þessum erfiðu tímum er steita hnefanum í loftið og þruma ,,Við viljum KRÓNANN! SMASH!!” og þrusa svo hnefanum í átt að næsta manni.
KRÓNINN! bjargvættur okkar.
Höfundur ábyrgist ekki stafsetningu eða málfar annarra tungumála, enda þarf hann þess ekki því hann er í slagtogi við KRÓNANN!.




Amish
Allt út
Með tíkó
Aftur með Tíkó
Hercule Pirot 


