Jói (Halldór R. Halldórsson) er atvinnu leigumorðingi en ákveður að hætta drápunum vegna dóttur sinnar (Björg Halldórsdóttir ).
Vinnuveitandi hans, Stóri Stjóri ( Ágúst M. Gröndal ) mislíkar það og lætur reiði sína bitna á fjölskyldu hans.
Nú er Jói reiður og þegar hættulegur atvinnu leigumorðingi verður reiður ætti enginn að verða á vegi hans. Sérstaklega ekki Stóri Stjóri og menn hans því að Jói er fullur af drápsfýsn og það eina sem hann sækist eftir er HEFND.
Dóri að pósa eins og honum er einum lagið.
….Þannig hljómar textinn aftan á coverinu af hinni frábærru 30 mínútna stuttmynd sem ég, dóri og fleiri góðir menn gerðum fyrir rúmum 10 árum. Myndin er uppfull af vondum leik, verri texta, og enn verri upptökum og er þar með hrein og tær snilld. Hún er bara til á einni VHS spólu eins og er en ég mun reyna að koma henni hingað á Dagdrauma eins fljótt og hægt er til að fleirri geti notið hennar.
Blaðamennska á Íslandi er sísökkvandi í nýjar lægðir.
Mér fyndist það persónulega fréttnæmara ef tvítugur sonur Dr. Dre’s hefði fundist látin á heimili sínu, 34 ára að aldri. Það hefði verið fokking freaky.
Sömuleiðis sé ég fyrir mér Wing (Wingmusic.co.nz) lesa upp seinustu línuna. Brill.
Eins og Nelli benti svo réttilega á, er alveg hreint stálið að kíkja á laugarveginn á morgun þegar þeir keyra handboltalandsliðinu til þess að “hylla” þá.
Það sem fer að vísu hrottalega mikið í mig er að borgarstjóri (Hanna Birna), menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín) og fleiri eiga víst að vera upp á vagninum með þeim.
Ég veit ekki um ykkur en mér finnst þetta ekki rétti tíminn til þess að vera með kosninga áróður, heldur tími til að óska landsliðinu til hamingju með árangurinn.
Því datt mér í hug að við Dagdraumar tækjum okkur til og myndum koma okkur fyrir á laugarveginum með skilti.
“Stjórnmálamenn, drullið ykkur af vagninum… við komum hingað út af strákunum”
“Hanna Birna, hvað spilaðir þú marga leiki á Ólympíuleikunum?”
og fleira í þá áttina.
Pæling að vera með með sitthvoru megin á skiltunum. Þá myndi standa hinum megin .. “Logi Geirsson, eini íslenski karlmaðurinn sem má aflita á sér hárið.” Eða einfaldlega “Logi – ég elska þig, hnakkinn þinn!”
Einhver skemmtileg slagorð sem ykkur dettur í hug?
Helgi hefur bloggað mest á þessa síðu, samtals 321 blogg. Ég hef bloggað 2. Það segir þó ekki alla söguna, Helgi hefur bloggað í 3 ár, ég skemur.
Segjum að ég stefni að því að ná einhvern tíma Helga í fjölda blogga. Ég gef mér að Helgi haldi hinsvegar áfram að blogga að sama krafti, eða um 2 blogg á viku. Segjum að ég muni blogga af öllum mínum lífs og sálar kröftum og blogga 3 x í viku.
Þá mun ég, árið 2014 ná Helga, eins og sjá má í töflu.
Þrátt fyrir einstaklega mikil afköst til að byrja með leyfi ég mér að efast um að takmark mitt að ná Helga muni nokkurn tíma takast. Til gamans læt ég þó fylgja jöfnur “trendline-anna” ef það eru einhverjir sem vilja sjá lengra fram í tímann en bara til 2014.
Nú er handboltaæði á Íslandi. Ekki af ástæðulausu enda íslenska liðið að standa sig glæsilega. Mér finnst handbolti ekki mjög skemmtileg íþrótt allavega ekki nógu til þess að ég horfi á heilu leikina. Þessi ekki ást mín á handbolta er litin hornauga og nánast eins og ég sé að svíkja Ísland. Þetta er ekki ósvipað og að styðja þjóð sína ekki stríði að mati margra. Því finnst mörgum tilvalið að skjóta á mig þegar Íslandi gengur vel, svona eins og ég haldi með hinu liðinu og eigi að vera fúll.
Sem er ekki satt auðvitað styður maður íslenska liðið alveg eins og ég styð íslensku sundkappana, sem veldur því þó ekki að ég þurfi að horfa á allar undanrásir í sundi. Ef einhver þeirra hefðu komist í úrslit hefði ég mjög líklega reynt að sjá það sund. Sem er nákvæmlega það sama og ég mun gera núna, eða ég mun allavega horfa á seinni hálfleikinn.
En þessi grein átti nú ekki að vera um mitt álit á handbolta heldur leikinn á sunnudaginn. Á sunnudaginn keppa Íslendingar við lið Frakka sem er talið það sterkasta í heimi. Þeir vinna eins og vél og eru öruggari en þýska stálið. Þar ætla ég að koma að punktinum.
Fyrir handboltaelskandi fótboltahatandi menn ætla ég að rifja um eitt merkilegasta Evrópumótið í fótbolta. Árið er 1992. Í Júgóslavíu er stríð og er Júgóslövum því neitað að taka þátt á mótinu. Þetta veldur því að inn koma Danir. Þeir komust því óvart á mótið og kæmu alltaf heim sem þjóðhetjur, hvar sem þeir myndu detta út. Að spila á mótinu nægði Dönum. Fyrir þá sem voru eldri en ég 1992 muna þeir eftir lífsgleðinni sem fylgdi danska landsliðinu, þeir spiluðu ekki agaðan bolta heldur skemmtilegan og hefðu farið sáttir heim hvenær sem er.
Þeir komust hinsvegar í úrslit gegn Þjóðverjum, þáverandi heimsmeisturum. Þýska stálið, vélin eins og franska handboltaliðið er kallað. Og ef þið eruð ekki ennþá búnir að fatta. Þá unnu Danir.
Hér kemur smá myndband sem upphitun fyrir sunnudaginn (p.s. þetta er fótbolti, vinsælasta íþrótt í heimi)
Ég get ekki endað á myndbandinu, verð ég ekki að enda á ÁFRAM ÍSLAND ! ! ! ! ! jibbíííííííí
Eftir að hafa rætt við lögfræðinga mína hef ég, með trega í hjarta, tekið þá ákvörðun að draga mig úr “Beards, they grow on you” keppninni.
Ástæðan er sú að breytt hefur verið frá upphaflegu hugmyndinni að láta skeggið alveg vera (utan mottu). Þar sem því hefur verið bætt við að raka megi undirhálsinn tel ég það að keppnin muni standa yfir að eilífu og tel hana því ekki henta mér að svo stöddu.
Einn góðan veðurdag verður saga dagdrauma skrifuð. Ekki er ólíklegt að það verði eftir nokkurn tíma og þá verða sögurnar eflaust ekki eins og þær eru í raun og veru, en da verður fólk búið að gleyma því sem gerðist fyrir mörgum árum og allt rennur saman í eitt. Fyrsti hlutinn verður augljóslega upphaf dagdrauma. Þá á ég ekki við upphaf heimasíðu dagdrauma sem verður mun seinna í bókinni.
Nei áður en hægt verður að ræða nokkuð um upphaf síðunnar þarf að kafa mun dýpra og skoða hvernig þessir menn kynntust. Því ef sagan er skoðuð kemur nafn mitt Bjarna Ólafs, nýjasta meðlims dagdrauma, mjög oft fyrir.
Allt byrjar þetta á fallegum haustdegi í skólastofunni þýsk – íslenska þar sem ég settist hliðiná Óla Palla (í raun byrjaði þetta fyrr en það verður rætt síðar). Þar kemur tengingin við Óla Palla en aðeins einn maður í hópnum kannaðist við Ópí áður undir nafninu Óli rappari. Um þann mann verður rætt síðar. Í þessum bekk voru einnig Stainer Hgui sem ég kynntist vel og Hlynur Hallgrímsson. Þarna var einnig Jóhann Þórir en vil ég nú ekki taka heiðurinn fyrir að hann sé í hópnum enda vitum við báðir að vinskapur okkar var ekki mikill á fyrstu árum okkar í Verzlunarskólanum.
Árin líða og einn daginn sest ungur drengur fyrir framan mig í 5. Bekk. Þar er Helgi Jóh á ferð en hann tengist þar snemma mér, Óla Palla og Nella sem sátum þéttingsfast í kringum hann. Helgi tók með sér inní hópinn Dóra nokkurn sem seinna varð forsprakki heimasíðunnar og nafnsins Dagdrauma. Nella hafði ég þá gleypt ári áður og tryggt samband okkar sem varð þó aldrei sterkt fyrr en við fórum saman til Danmerkur ásamt Dóra og Helga.
Kjartan Dór átti einnig sín fyrstu kynni við hópin í gegnum mig en við eyddum saman skíðaferð í 3. Bekk. Tengingar sem hinsvegar eru ekki almennt þekktar eru tengingar mínar við Trausta Stef og Hákon.
Málið er að ég og Hákon Jarl erum báðir utan að landi og utan að landi fólk sækir saman. Því endaði það á Reykjavík Music Festival 2000 að Hákon og ég eyddum mestum hluta hátíðarinnar saman án þess að hafa þekkst svo mikið sem já ekki neitt fyrir. Trausta hinsvegar kynntist ég í Gettu Betur undirbúningi en við vorum hér á árum áður taldir mikil gáfumenni sem áttu framtíðina fyrir okkuar í spurningaleikjum. Blessunarlega rættist aldrei úr því.
Til útskýringar hef ég reynt að búa til skýringarmynd. Hún ætti að varpa ljósi á tengingu allra í hópnum. Einhverjar deilur eiga líklega eftir að spretta upp varðandi þessar tengingar og því mun ég geri ég ráð fyrir að menn eigi eftir að reyna að koma með sínar útgáfur af þessu.
Að lokum vil ég óska ykkur til hamingju en í dag eru Dagdraumar oðrnir 15 talsins. Þetta er orðið helvíti margt og erfiðara verður að finna húsnæði sem rýmir allan þennan fjölda til matarboða. Þess má til gamans geta að einungis 6 eru í föstu sambandi þannig stelpur njóðtið vel.