Archive for July, 2008

Svekk

Posted by Nelli on July 31, 2008
Dagdraumar / 11 Comments

Leiðinlegt að lenda í þessu í beinni útsendingu að kynna nýja lagið sitt!!!

[Lagið tekið út til að valda ekki fleiri heilablóðföllum, og sett hér fyrir neðan sem kóði - helgi ]

<embed src=”http://dagskra.ruv.is/streaming/playlist/?file=4365732/3″ type=”application/x-mplayer2″ pluginspage=”http://www.microsoft.com/Windows/MediaPlayer/” name=”MediaPlayer” autostart=”false” height=”333″ width=”384″></embed>

(c) ruv.is

Ef þú værir Samuel L. Jackson

Posted by Ó3,14 on July 29, 2008
Dagdraumar / 23 Comments

Ef að þú værir Samuel L. Jackson í einn dag, hvað mundir þú gera? Mundir taka upp eitt af hlutverkum hans? Eða bara njóta þess að vera Sammi Jacks. Deilum nú með dagdraumamönnum dagdraumum okkar um Samuel L. Jackson.

Fyrir mína parta þá mundi ég, ólíkt því sem margir halda, ekki taka upp hlutverk Mace Windu heldur Jules Winnfield* úr Pulp Fiction. Það er bara svo sjúklega næs að skjóta fólk í öxlina og segja svo pollrólegur „Does he look like a bitch?”

sammi.jpg

 Það getur reynst gott að vera Sammi Jakcs.

*Ef þú veist ekki hverjir Mace Windu og Jules Winnfield eru þá ertu ekki strákur. Þú gæti þó sloppið með annað eistað ef þú veist hver annar þeirra er.

Eftir að ég…

Posted by Helgi Jó on July 29, 2008
Dagdraumar / 10 Comments

“”"”

To: kastljos@ruv.is
Subject: Frekari barátta er þörf.

Kæra Kastljós.

Ég vil þakka ykkur kærlega fyrir að hafa fengið mig í þáttinn ykkar, enda unnum við mikinn áfangasigur með umræðunni í kvöld. En mér liggur meira á hjarta.

Eftir að Þjóðhátíðarlag Baggalúts er búið að vera í spilun núna um nokkurt skeið, finnst mér eins og nokkrir einstaklingar innan okkar hóps hafi skyndilega fundið fyrir mikilli þörf til þess að fara niður í bæ og nauðga. Þetta er alvarlegt mál og hér þarf að bregðast skjótt við. Mér finnst ég ekki þurfa að hafa 2 árlega daga þar sem við fræðum hvern annan um það að nauðgun sé glæpur, en eftir að meðmælendur nauðganna eins og Baggalútur hafa brotist fram í sviðsljósið, fer það að verða nauðsynlegt.

En eins og áður sagði, mér liggur meira á hjarta.
Það er nefnilega svo að eftir að ég heyrði hinn viðbjóðslega og ósatíriska texta Baggalúts, hef ég verið að skoða betur þetta fyrirbæri tónlist og sé nú að það þarf virkilega einhver að stoppa það sem þar fer fram.

Ég skoðaði tónlist ekki lengi, en á skömmum tíma fann ég ýmislegt.

T.d. finnst mér ekki rétt hvernig lagið Jailhouse Rock með Elvis Presley sér fangelsislíf í hillingum og finnst mér það mikil vanvirðing gagnvart öllum þeim einstaklingum sem hafa látist innan veggja fangelsis. Einnig finnst mér ómögulegt hvernig It’s my life með Bon Jovi horfir fallega til óheilbrigðs lífernis og hvetur fólk til eigingirni og sjálfsdýrkunnar sem hefur valdið skilnuðum og óhamingju. Þá finnst mér algerlega óhæft að lag eins og Killing me softly með Roberta Flack sé úti á markaði fyrir hvern sem er, því að það lag fegrar morð og gæti breytt hverjum þeim sem hlustar á það í kaldrifjaðan morðingja.

Ef Roberta vissi bara hvað hún hefur ollið mörgum dauðsföllum…

Ég krefst þess að Kastljós fái þessa þrjá einstaklinga að ofan, Bon Jovi, Robertu og Prestle, hið fyrsta í viðtal við sig og að þeir biðjist opinberlega afsökunar á þessum textaskrifum sínum á netinu. Í framhaldi af því vil ég að útvarpsstöðvarnar og internetið sjálft biðjist afsökunar á því að gera börnunum okkur það kleift að hlusta á svona sora.

En athugum eitt, þetta eru ekki einu tónlistarmennirnir sem hafa brotið af sér, og vil ég að þið í Kastljósi hvetjið áhorfendur til að vera vel á varðbergi gagnvart þessu og láti mig strax vita um leið og þeir verða varir við eitthvað ósiðsamlegt. Getið náð á mig í hjalmarsongnanny@hjalmarhlustarbaraahujintaoogAhmadinejad.com

En eitthvað meira hljótum við líka að geta gert, við einstaklingar? Jú það er rétt. Til dæmis munum við innan karlaklúbbsins taka höndum saman og búa til bol sem á stendur “Ég segi NEI við tónlist. Hvað um þig?”, því að tónlist er í raun ekkert annað fyrir almenning en það sem biblían er fyrir bókstafstrúarmanninn. Í framhaldi af þessu verður síðan heill dagur tileinkaður baráttunni gegn tónlist og hvet ég alla, karla sem konur, til að taka þátt í því með okkur. Svo skemmtilega vill til að í ár ber hann upp á 9 fulla tungli ársins, en það er á sama degi og bókabrennur Harry Potters fara fram í Bandaríkjunum. Hinir réttlátu sameinast!

Að lokum, kæra Kastljós, í von um góð svör og umfjöllun um baráttu okkar:

Engir glæpir , enginn texti. Gerum Ísland textalaust land 2012 og berjumst til síðasta meyjarhafts. Koma svo!

Kær kveðja,
Hjálmar Sigmarsson, ráðskona (en ég er samt karlmaður, en okkur í félaginu finnst svo gasalega flippað að minna á óréttmæti og óréttlæti orða eins og ráðherra með því að nota óréttmæt og óréttlát orð sjálf. Mega kynjað, marr!!! ) karlaklúbbs femínistafélags íslands.

“”"”

DY-NO-MITE!….Eða svona bréf finnst mér líklegt að hann hafi sent til Ragnhildar Steinunnar núna í kvöld…

EPIC FAIL! EKKERT MATARBOÐ!

Posted by Hlynur 17 on July 27, 2008
Dagdraumar / 4 Comments

Það var verið að greina mér frá því að ég þarf að vinna í kvöld. Ekkert matarboð.

Biðst innilega afsökunar á þessu. Held matarboð sem allra, allra fyrst.

Sendi SMS á ykkur til vara.

So, so, so sorry!

Bara því ég gat það

Posted by Dóri-í-Dós on July 27, 2008
Dagdraumar / 3 Comments

Í sambandi við samkomuna ‘Eat or Die!’

Posted by Hlynur 17 on July 25, 2008
Atburður, Dagdraumar / 2 Comments

Í sönnum “Hlyns-anda” verður minna um matarboð og meira um allsherjar ”pig-out” þetta kvöldið og því bið ég alla um að koma með stómapoka þannig að partýið verði ekki búið klukkan 8.

Einnig vil ég útrétta að þar sem það eru ekki allir jafn heppnir og ég að þurfa ekki að mæta til vinnu fyrr en klukkan 13 næsta dag eru meðlimir beðnir að mæta klukkan 18 svo að við getum eytt sem mestum tíma saman.

Þetta er makalaust pulsuparty og því eru ákveðnir aðilar vinsamlegast beðnir um að skilja betri helminga sína eftir heima.

Sérstakur gestur, Tussi Þruma verður í hátíðarsætinu þetta kvöldið og er hann hvattur að sýna í verki af hverju hann er kallaður “The Natural” í innstu hringum FH-mafíunnar.

Margir skemmtilegir leikir verða í gangi. Til að mynda verður uppnefna-tombóla og drykkju tímasprengja. 

Það eru einungis tvær húsreglur.

1. Enginn Jack Daniels
2. Vertu góður við Drífu – hún er með svo lítið hjarta.

Þar hafið þið það. 

18 – Sunnudaginn – Álfabrekku 15 – Kópavogi.

ATH. Allir sem þekkja Eyþór Loftsson eru vinsamlegast beðnir um að hringja í hann og biðja um gott veður svo það sé hægt að grilla. 

Sökudólgur?!

Posted by Dóri-í-Dós on July 25, 2008
Dagdraumar, Pólitík / 2 Comments

Hver eyddi færslunni hans Jóa sem prýddi síðuna hér fyrir örstuttu síðan? GEFÐU ÞIG FRAM!
Hér fyrir neðan má nú sjá færsluna eins og ég man eftir henni og commentin frá mér og Steinari:

Í beinu framhaldi ef færslunni hans Braga sagði borðtalvan í vinunni minni mér þetta áðan:

Bannað

Steinar kommentaði:
Tölvur sem eru “talva” gera svona.

Ég kommentaði:
Já sjitt mar, fyrst þegar ég ætlaði að kommenta á þessa færslu kom þetta upp:
Skilaboð

Ég kommentaði aftur:
Og fyrst Steinar byrjaði, er borðtölva í henni Önnsku?

Ég er með þá tilgátu að tölvan hans Jóa hafi verið að reyna að fela spor sín..

VIVA LA HOMO

Posted by Bragi Þór on July 25, 2008
Dagdraumar, Nöldur, Tækni / 6 Comments

Nema hvað? Einsog svo margir kannski vita þá sló ég til um daginn og keypti mér eitt stykki ps3 tölvu(sem er btw besta leikjatölva sem gerð hefur verið) og flatsjónvarp með. Eftir að vera búinn að spila GTA IV(sem er btw besti leikur sem gerður hefur verið) í nokkra daga samfleytt, ákvað ég að slá til og kaupa mér líka Metal gear solid4(sem er btw með bestu grafík sem gerð hefur verið). Sem er ekki frásögum færandi nema hvað að…

Núna í kvöld/nótt settist ég niður og spilaði Metal gear solid 4 í nokkra klukkutíma og skemmti mér gríðarlega vel. Þegar klukkan slóg svo fimm vildi svo skemmtilega til að ég kláraði fyrsta kaflann í leiknum. Sem er ekki frásögum færandi nema hvað að…

Eftir þennan fyrsta kafla tók við smá load tími. Sem er ekki frásögum færandi nema hvað að…

Meðan tölvan er að loadast kemur upp texti á skjáinn sem segir: “It’s now after 5:00 am, for your own health, take a break!”

Núna er ég fluttur að heiman. Orðinn fullorðinn maður. Hver í andskotanum heldur tölvan mín eiginlega að hún sé að reka mig í háttinn/pásu?
Þetta er þróunn sem verður að stöðva. Stóri bróðir og róbottarnir mega ekki sigra.

Ze robots

VIVA LA HOMO

Birtingarmynd Ilsku, hugleysis og mannvonsku

Posted by Hákon Jarl on July 24, 2008
Pólitík, Strákastöff, Tíska / 17 Comments

Eftir að hafa lengi fylgst hljóðlátur með Dagdraumameðlimum sveigja út af veg réttlátrar hegðunar og siðgæðis þá get ég einfaldlega ekki setið á mér lengur. Sú þróun sem nú á sér stað innan okkar samfélags verður að stöðvast nú þegar, því annars er ég hræddur um að við munum ekki aftur upp rísa til þeirrar dýrðar og frægðarljóma sem áður við nutum

Nú á ég að sjálfsögðu við þessa fáránlegu skeggdýrkun sem er skjóta rótum í huga dagdrauma manna. Nú er að verða krafa á alla meðlimi að þeir skuli fá sér tattoo, lita neglur svartar, berja í pung, drekka viskí og safna skeggi. Hverskonar andhetju eruð þið að reyna að kalla fram hérna? Þessi gengdarlausa dýrkun á því sem er myrkt og skeggjað skal ekki lýðast lengur og segi ég að nú skuli upp risið gegn því ógnarvaldi og siðlausri stefnubreytingu sem mér þykir eiga sér stað meðal vor.

Ef við skoðum skiptingu okkar þá erum við umþað bil helmingur sem gengur veg ljós og réttlætis í anda Njáls, Steingríms og annara forn íslenskra hetja. Aðrir meðlimir hafa því miður gleymt sér í strákalegri skeggást sem ekkert kitlar nema þeirra eigin Egó. En hve lengi á þetta að fá að viðgangast? Því legg ég til að við rísum upp gegn þessari hegðun og mæli ég til þess að siðgæðisreglur dagdrauma verði teknar til alvarlegrar endurskoðunar í næstkomandi matarboði.

(Nú gæti einhver tekið sig til og bent á að mér vaxi nú ekki mikið skegg, en þar sem ég er afkomandi goðsagnakendra víkinga sem voru svo miklir herramen og gáfumenn að þeir þurftu ekki einu sinni að raka sig! Því geri ég öll slík ummæli um mig ómerk fyrirfram.)

Strákar, komið aftur í ljósið, rakið ykkur, eða í það minnsta snyrtið ykkur í framan og sýnið ykkar rétta andlit í stað þess að fela ykkur bak við viltan hárgróður eins og aðeins villimönnum sæmir. Gerum Dagdrauma að alvöru herramanns klúbbi með siðgæðisvitund og réttlætiskennd

Kv.Hákon

Mættu eða deyðu.

Posted by Hlynur 17 on July 24, 2008
Atburður, Dagdraumar / 26 Comments

Þar sem allir eru að væla en ekki gera neitt í hlutunum þá ákvað ég að það er:

Dagdrauma matarboð heima hjá mér á Sunnudag.

Mæting 19.