
Jæja kæru subbupiltar og skaðræðiskvenndi.. þá er komið að enn öðru ógeðismyndakvöldinu og ég ætla að vera svo djarfur að segja að þetta verði besta kvöldið hingað til!
Ég er búinn að sitja sveittur við að sanka að mér verðugum myndum og nú er staðan sú að myndirnar eru orðnar fleiri en við gætum mögulega innbyrgt á einu kvöldi þannig að hér er planið: Heima hjá mér næsta fimmtudag (um klukkan 19:00) munu allir sem hafa áhuga mæta með fíkniefni að eigin vali, haldnar verða mjög óformlegar kosningar og í kjölfarið horft á tvær atkvæðamestu myndirnar auk einnar myndar sem ég hef ákveðið að horft verði á. Ef einhverjir hafa ennþá ekki fyllt ógeðiskvótann verður afgangurinn af myndunum látinn rúlla fram á rauða nótt eða fram að fyrsta sjálfsmorði.
Hér fyrir neðan eru myndirnar sem um ræðir ásamt stuttri lýsingu og imdb link (ef slíkur er til staðar) í engri fyrirfram ákveðinni röð.
Thriller: En Grym Film -1974- (AKA: They call her one eye [uncut])
imdb linkur

Þessi sænska sexploitation mynd frá árinu 1974 segir hina aldagömlu sögu sem allir kannast við. Stúlka er misnotuð af gömlum gaur, stúlka missir málið, stúlka vex úr grasi, stúlku er rænt af pimp, stúlka ánetjast heróíni og selur líkama sinn, stúlka lærir karate, skotfimi og háskaakstur til að hefna sín, stúlka slæst við alla sem hún hittir í super slow motion. Já já, þó ég viti að allir hafa séð þessa sögu tæklaða hundrað sinnum er ástæða fyrir að Quinten Tarantino segir að þetta sé besta sexploitaion mynd sem gerð hefur verið og það er ekki bara út af því að hann er fíbl.
Tal: Sænska
Texti: enskur
Hefur verið líkt við: Dirty Harry, Kill Bill og allt sænskt klám sem framleitt hefur verið
Gojire-Minira-Gabara: Oru kaijû daishingeki -1969- (AKA: All monsters attack: Godzillas revenge)
imdb linkur

Besta Godzilla mynd allra tíma? Versta Godzilla mynd allra tíma? Ég veit ekki því ég hef ekkert að miða við en þetta er allavega ein umtalaðasta Godzilla mynd allra tíma og það boðar yfirleitt gott (tja eða gottvont). Godzilla (lesist: maður í gúmmí búning) berst hér við öll skrímslin (lesist: Fullt af öðrum gaurum í gúmmí búningum) sem hann mætti í hinum tíu myndunum sem komu á undan
Tal:Japanskt.
Texti: Enskur
Hefur verið líkt við: The Great Yokai War og allar aðrar Godzilla myndir.
Brutalviolence.com : Concrete Cube
enginn imdb linkur (döh)

Sá stillmyndir á netinu fyrir ansi löngu síðan sem vöktu áhuga minn vegna þess hversu fokking súrrealískt þetta leit út fyrir að vera. Á stillunum stóð bara “Concrete cube” og ég er búinn að hafa augun opin fyrir þessu síðan þá. það borgaði sig fyrir tveimur vikum síðan þegar að ég datt inn á torrent link fyrir þessa mynd. Ég er þó búinn að hemja mig og bíð eftir ógeðismyndakvöldi til að horfa á þessa “mynd”. Ég veit ekki hver söguþráðurinn er en myndir segja meira en þúsund orð þannig hlustið bara á screenshotið hér að ofan.
Tal: ?
Texti: ?
Hefur verið líkt við: FTW!!
Svidd Neger -2003- (AKA: Burnt Negro)
imdb linkur

Norsk mynd í anda Pink Flamingos? Ég er skeptískur en til í að kíkja á þetta.. Myndin fjallar um stúlkuna Önnu sem býr með föður sínum Karli í norður Noregi. Karl þessi drap konu sína og henti nýfæddu barni hennar í stöðuvatn vegna þess að barnið var litað. Nú er Karl að fikta við alkahólisma og er ofsóttur af draug konu sinnar. Allir helstu sorasérfræðingar heimsins eru sammála: Besta norska mynd sem gerð hefur verið. Reyndar veit ég ekki hve margar hún er að keppa við en það er sigurinn sem skiptir máli.
Tal: Norska
Text: Enskur
Hefur verið líkt við: Pink Flamingoes
Long Jeanne Silver – 1977-
imdb linkur

Jahá.. Þetta er semsagt klámmynd frá árinu ’77. Það þýðir hárug klof, sveittir rassar og fyndnar klippingar. Það sem hinsvegar gerir þessa mynd sérstaka er sú staðreynd að aðalleikonan er bara með einn fót. Hinn fóturinn stöðvar rétt fyrir neðan hné en það hamlar henni ekkert í kynlífinu eða eins og við munum sjá veitir henni og meðleikurum hennar enn fleiri penetration möguleika. Ef þið viljið sjá karlmann stumpfistaðan í anusinn er þetta klárlega myndin fyrir ykkur.
Fun fact: leikstjóri þessarar myndar hefur frá árinu 1991 leikstýrt um 50 myndum sem byrja á orðinu “Anal”
Tal: Enska
Texti: Enginn
Hefur verið líkt við: John Holmes klámmynd nema typpið er ennþá stærra, breiðara og með hnéskel.
Kataue mashin gâru -2008- (AKA The Machine Girl)
imdb linkur

Þessi japanska mynd frá því herrans ári 2008 fjallar um hina sárasaklausu Asami sem eftir að bróðir hennar er drepinn úr einelti verður eins stúlkna hersveit með það eina markmið að murka lífið úr þeim sem bera ábyrð á stríðninni. Á leiðinni missir hún hendi sem skipt er út fyrir stærðarinnar vélbyssu. Hröð, fyndin, blóðugri en andskotinn og Japönsk.. Þessi mynd lítur út fyrir að hafa allt sem ógeðismynd þarf á að halda!
Tal: Japanska
Texti: Enskur
Hefur verið líkt við: Takashi Miike hittir Shinya Tsukamoto
Dünyayi Kurtaran Adam -1982- (AKA Turkish Star Wars)
imdb linkur

Guð minn almáttugur! Tyrkir reyna fyrir sér í geimmyndabransanum og markið er ekki sett lægra en á sjálft Star Wars. Útkoman er, samkvæmt öllum sem hafa séð myndina, muuuun betri en síðustu þrjár Star Wars myndir til samans. En ekki hlusta á mig og aðra sérfræðinga.. Trailer segir trilljón orð: Holy fucking shit, look at this trailer!!
Tal: Tyrnkeska
Texti: Enskur
Hefur verið líkt við: ehh.. Star Wars á tyrknesku.. Eitthvað flókið við það?
Spider Baby or, The Maddest Story Ever Told- 1968-
imdb linkur

Þetta er ein af þessum klassísku sem ég skammast mín fyrir að hafa ekki séð ennþá. Í niðurníddu mansioni býr síðasti ættarhlekkur hinnar inræktuðu Merrye fjölskyldu við hryllilegan sjúkdóm. Frá 10 ára aldri byrja þau að afþroskast andlega en þroskast áfram líkamlega. Bílsjóri fjölskyldunar verndar leyndarmál fjölskyldunar af bestu getu en allt fer til fjandans þegar fjarskyldir ættingjar mæta til að reyna að erfa peninga fjölskyldunnar.
Þessi mynd á víst að hafa allt sem að maður vill í ógeðismyndunum sínum (meira að segja ungan Sid Haig!!)
Tal: Enska
Texti: Enginn
Hefur verið líkt við: Allar myndir gerðar eftir þessa hafa verið óbeint byggðar á henni. Alveg satt.
C’est arrivé près de chez vous -1992- (AKA: Man Bites Dog)
imdb linkur

Þessa hafa allir heyrt um en allt of fáir séð. Frönsk mocumentary eftir nokkra kvikmyndanema þar sem heimildarmyndacrew eltir fjöldamorðingja á röndum. Súrrealísk viðtöl, fólk drepið og áhugavert samband milli morðingjans og heimildarmyndacrewsins gerðu þessa mynd að Insta-classic.
Tal: Franska
Texti: Enska
Hefur verið líkt við: Henry: Portrait of a serial killer
SWAP.avi
upplýsinga linkur

Linkurinn fyrir ofan segir allt sem segja þarf um þessa mynd. Þessi mynd MUN reyna á hverja einustu ógeðistaug í líkama áhorfenda hennar ef hún verður fyrir valinu og býst ég við að ekki einusinni hörðustu ógeðismyndaáhugamenn muni þora í hana hvað þá ná að klára hana. Ég er jafnvel til í að leggja pening á það að enginn sem mætir á fimmtudaginn muni klára hana (ef það vill til að hún verður valin).
Pink Flamingoes -1972-
imdb linkur

Önnur klassík sem við eigum eftir að kíkja á. Skilst að það sé best að reyna ekkert að lýsa þessari mynd. Basically er þetta shock cinema mynd um fólk sem keppist um titilinn “Filthiest person alive”. Myndin verður víst bara betri með aldrinum, varpandi nýju ljósi á paparazzi og stjörnudýrkunar menninguna.
Tal: Enska
Texti: Enginn
Hefur verið líkt við: Kvöldstund í bænum með Britney og Paris..
Aslan Adam -1975- (AKA: Lionman)
imdb linkur

Ungur konungssonur elst upp hjá norn og lærir vegi ljónsins. Hann notar þessa krafta sína til að hefna morðs föður síns og móður. Önnur Turxploitation mynd sem sögð er lengdar sinnar virði í gulli.
Tal: Tyrkneska
Text: Einhverskonar enska
Hefur verið líkt við: The jungle book á sterum.
Extra Terrestrian: Die Ausserirdische -1995- (AKA: E.T.: The Vagina)
imdb linkur

Ó já þið lásuð þetta rétt.. ET: The vagina er þýsk klámmynda útgáfa af þessari klassísku barnamynd Steven Speilberg nema í staðin fyrir að fljúga yfir tunglið með litlum strák í hjóli er ET beygð yfir rúmið af þýskum hefðarmanni sem svo hamrar hana í rassinn. Já, ET er kvenkyns og hefur verið sent til jarðarinnar að læra mökunarhætti mankynsins þar sem geimverurnar stunda ekki ríðingar lengur (ætli þeir hringi ekki bara í klámlínur? hahahahahahahahahahaahah). Ég er allavega mjög spenntur fyrir þessari og held að hún hafi mikla möguleika.
Tal: þýska
Texti: portúgalskur og svo enskur ofan á honum
Hefur verið líkt við: Górillu að nauðga barnæsku þinni.
Jahá þar hafið þið það.. Áhugasamir hringja í mig eða mæta bara á fimmtudaginn 19. um klukkan 19:00.
takk.
Dóri-í-Dós