Archive for May, 2008

Tailand

Posted by Helgi Jó on May 31, 2008
Dagdraumar / 1 Comment

Thegar eg sit her a mjog finu hoteli i Tailandi, med bjorinn minn og internetid, nybuinn ad horfa ut um gluggann a stelpurnar sem sitja fyrir manni og auglysa ”nuddstofuna” theirra, sny eg hausnum aftur vid og se hotelstarfsmann kremja 15cm fjolfaetlu med skosolanum sinum. Tveir heimar. Tveir mjog mismunandi heimar. Got to love it. 

I gaer drakk eg “Moonshine”, eda landa, sem innfaeddir  gafu mer thegar vid hofdum labbad upp frumskogastig og fundid kofana thar sem their bjuggu.

Jonas Oddur gaf theim sopa af Gin og Tonic i thakkarskyni og tharna attum vid stund thar sem vid toludum saman a eina altjodlega tungumalinu: Afengi. Vid brostum, og their brostu.

Eg var sem sagt staddur a Phi Phi eyjunum, sem er fyrir utan Phuket a Tailandi, en thessar eyjur er su mesta paradis sem eg hof nokkurn timan lent a.

Eftir ad hafa drukkid landann heldum vid afram gegnum frumskogarstiginn, og endudum i tailensku hakki-sakki vid innlenda. Spilad med storum bastbolta, sem er mun svalari en einhver rastafari MH bolti.

Vil og get skrifad mun meira, en latum thetta duga i bili.

P.s. 
Her getur madur hins vegar keypt ser diesel, billabong eda quicksilver fot a um 100-300 kronur, eftir thvi hvad madur er godur ad prutta. Og er samt raendur.

P.p.s.
Og dori, thar sem er omogulegt ad na i thig, tha get eg sagt ther ad klaedskerarnir herna skilja ekki ordid “Zoot Suit” og eg fann ekki nein nogu brjalud efni til thess ad rettlaeta jakkafatakaup.

fimmtudagsbjór

Posted by Kjarri on May 29, 2008
Dagdraumar / 3 Comments

Ég sakna fimmtudagsbjórsins. Ég er ekki einn um það, þess vegna er ég að fara á pubbinn með Braga og Steinari í kvöld. Skemmtið ykkur vel að vera þreitt heima hjá ykkur.

Beers,

Kjarri D.

Jóhann Þórir

Posted by PartýSnáðinn on May 29, 2008
Atburður, Tækni / 6 Comments

Fyrir þá sem stóðu gáttaðir þegar að jörðin nötraði undan fótum okkar áðan ætla ég að koma með vísindalega útskýringu á þessu fyrirbæri.  Nú er svo statt að Jóhann Þórir vinur okkar og vandamaður var að yfirgefa landið laust fyrir kl 16 í dag og mun dvelja yfir helgi í þýskalandi hjá bróður sínum. Það sem að gerist þegar að Jóhann yfirgefur stað of hratt er að það myndast undirþrýstingur í það sem vísindamenn kjósa að kalla “Jóhann-sexdrive continium” Þegar að Jóhann fer á feiknar hraða í flugvél veldur þessi þrýstingur því að umheimurinn nötrar. Þetta mun einmitt vera ástæðan fyrir því að Jóhann fékk ekki starf sem flugfreyja fyrir ári, sem og að NASA hefur hafnað honum sem framtíðar geimfara. En vísindamenn hafa reiknað það út að ef Jói færi í geimskutlu myndi höggbylgjan sem myndast við það hreinlega kljúfa jörðina í tvennt.  Svona lærir maður eitthvað nýtt á hverjum degi.

Sælir

Posted by Kjarri on May 29, 2008
Dagdraumar / 3 Comments

Ein spurning og svo ein beiðni:

 Beiðni: “We´re not alone” biður alla vini sýna að hjálpa okkur að finna æfingarhúsnæði. Ef þið eruð með hugmyndir látið okkur vita. Ef þið eigið geymslu, bílskúr eða hvað sem er sem þið getið leigt okkur. Endilega verið svo væn að láta okkur vita. Einnig ef þið eigið pabba með kontakta þá væri geggjað ef þið gætuð tékkað á þessu.

Spurning:

Hvað á að gera um helgina? Eru þið með eitthvað planað? Ég er ólmur í eitthvað skemmtilegt sumarfun.

kv, Kjarri

Símtal frá Asíu

Posted by Dóri-í-Dós on May 28, 2008
Dagdraumar, Húmor / 10 Comments

Um daginn fékk ég símtal frá Asíu. Símtalið kom að sjálfsögðu á einhverjum óguðlegum tíma eða rétt um hádegisleytið og ég lá hálf sofandi með dúndrandi mígreni. Núna er það oftast ekki til bóta fyrir mann í mígrenikasti að tala í síman en ég er ekki frá því að þetta símtal sé ein af fáum undantekningum. Núna man ég það að sjálfsögðu ekki allt orðrétt þar sem hluti af því var leiðinlegur en ég mun seint gleyma skemmtilega hlutanum af því. Hér á eftir kemur stutt transcript.

Ég: Halló
Helgi: *augljóslega undir áhrifum áfengis* Blessaður, sofandi?
Ég: Já, og með mígreni
Helgi: Svekkjandi, ég veit samt um gaur sem er verr staddur
Ég: Nú?
Helgi: Ég held ég tali ekkert við þennan gaur aftur sko
Ég: Ha hvað?
Helgi: Ég bombaði sko í pungin á honum
Ég: Á hverjum?
Helgi: Hann gubbaði sko
Ég: ummm.. Afhverju?
Helgi: Hann hætti ekki að slá í pungin á mér. Ég hótaði honum öllu íllu en þegar hann jinglaði mig í 3 skiptið þá bombaði ég í hann til baka.
Ég: Já ok
Helgi: Sko bombaði! Hann gubbaði og allt…
Ég: Í hvern?
Helgi: Við eigum örugglega aldrei eftir að talast við aftur.
Ég: ÞÚ OG HVER?
Helgi: Bara einhver gaur þarna í verkfræðinni.
Ég: Já ok

Einhverja hluta vegna sé ég Nella fyrir mér liggjandi í fósturstellingunni með marðar kúlurnar í höndum þriggja tælenskra mannkvenna, blótandi “Clock the Cock” í sand og ösku..

Högg í pung

-Vonandi það sem er í gangi í Tailandi-

Weird…

Posted by Hlynur 17 on May 27, 2008
Dagdraumar / 2 Comments

Eery!

onnotice.jpg

Mmmm

Posted by Helgi Jó on May 23, 2008
Dagdraumar / 10 Comments

Staddur i Shanghai.  Aetla ekki ad koma med neina ferdasogu enda ekki timi til thess auk thess sem ferdasogur eiga ad vera sagdar nokkrum vikum seinna, thegar upplifarninar hafa verid sveipadar ljoma minninganna (sma Lao Tse i thessu)

En allavega, eg er buinn ad leita ad akvednum retti (mat) alla vikuna og er loksins komin med stadsetningu.

290 Ziteng Lu, nalegt Wuzhong Lu, Shanghai.

En a thessum stad get eg bordad supur, grillmat og ofnbakadan mat.

Nanar tiltekid, hundasupur, hundagrillmat og ofnbakadan hund.

Hundsupa i Koreska hverfinu i Shanghai

En adur en eg get bordad hund verd eg ad profa mjog Shanghaiskan rett, Drukknar Raekjur.
Drukknar Raekjur
er rettur med lifandi raekjum sem eru bordnar fram i skal fulla af afengi. Adur en haegt er ad borda thaer eru thaer latnar marinera i afenginu i nokkrar minutur svo thaer verdi orlitid tipsy. Sidan eru thaer etnar hraar og ferskar. Ferskar eins og ferskar lifandi raekjur.

Thessi raekja er buin ad fa ser helst til of mikid af afengi. Tha er best ad borda hana.

Eg laet ykkur vita hvort eg dey eda ekki af thessum mat. Bless.

Evru – vision

Posted by Jóhannsson on May 22, 2008
Atburður, Dagdraumar, Keppni, Tónlist / 9 Comments

Jæja, ég hef ákveðið að halda teiti á laugardaginn fyrir meðlimi dagdrauma. Evru-vision keppnin hefst klukkan 19:00 og því ætla ég að bjóða ykkur velkomna kl. 18:30 ef þið eruð úberspenntir, drykkjuleikir hefjast hins vegar i stigagjöfinni þannig að ekki mæta seinna en það, veit ekkert hvenær það byrjar.

IMG_0762

Þar sem eg nenni ekki að taka mikið til á sunnudaginn þá ætla ég ekki að hafa grillparty i þetta sinn, vinsamlegast etið því mat áður en þið komið.

Þeir sem vilja taka kærustur og/eða vandamenn með sér vinsamlegast hringið og látið vita svo að ég hafi góða hugmynd um mætingu, nenni ekki að fylla placið. Kommentið með mætingu líka her fyrir neðan…

_Jóhann Þórir_

Tal sýgur hundsrass

Posted by Hlynur 17 on May 21, 2008
Dagdraumar, Nöldur / 51 Comments

Tal í Anal

Það tók ekki nema 35 daga, 3 routera og rúmlega 50 símtöl… ég er kominn með Tal internet.

Fyrir þá sem ekki vita hef ég seinustu vikur verið internet laus. Þeir sem þekkja mig gera sér fyllilega grein fyrir því að Hlynur án internets er svolítið eins og Pippen án Jordan.

Hér á eftir kemur löng færsla.. en fyrir Darra og Bjarna… og fleiri sem nenna ekki endilega að lesa þetta allt þá er þetta hér það sem ég vil koma á framfæri: Ekki fara í viðskipti við Tal.

Þetta byrjaði allt 16. apríl þegar Gunna Maja talaði við einhverja stelpu hjá Sko ogvildi koma í viðskipti. Við vorum með internet frá Símanum fram að þessu og var því ákveðið að tengingin frá Sko þyrfti að vera komin 28. apríl því þá myndi Síminn hætta að skaffa okkur neti.

Einhverjum dögum síðar fáum við router frá Sko. Þegar kemur að stóra “skipti”deginum tek ég Síma routerinn úr sambandi (sem var hættur að virka skiljanlega) og set Sko routerinn í samband. Þegar ég fæ ekki inn internetið hringi ég í þjónustuver Sko. Ég er númer 6 í röðinni og fæ því að bíða í heilar 40 mínútur. Þegar ég fæ loksins samband við þjónustuverið byrjar samtalið.

Þjónustugaur: Þjónustuver Hive
Hlynur: Ha? Ég hringd..
Þjónustugaur: Ég meina Þjónustuver Sko

Byrjar vel hugsa ég. Eftir að hafa talað við gaurinn í dágóða stund (hann gerði ráð fyrir því að ég væri þroskaheftur, sem væri flott hefði hann reddað netinu fyrir mig… en það sem ég gleymdi að gera ráð fyrir var að hann væri þroskaheftur)

Að lokum komst hann greinilega að því að hann væri ekki að fara getað gert neitt fyrir mig og var að gera allt til að losna við mig úr símanum og að lokum sagði hann “Bíddu hvar ertu til húsa?”

Hlynur: Ég er í 101, við Snorrabrautina
Þjónustugaur : Já, það útskýrir þetta – það er nefnilega niðri símstöð í 101. Allt internetsamband í miðbænum liggur niðri.
Hlynur: Jahá

Og þannig endaði símtalið okkar. Að sjálfsögðu hringdi ég strax í Braga til að tékka hvort hann væri með internet (fyrir þá sem ekki vita býr Bragi pretty much í næstu götu við mig) og Bragi sagði eins og er að það væri ekkert að internetsambandinu sínu. Og ég hugsa “Hey kannski var þessi gaur að ljúga að mér… nei það getur varla verið hann hefur væntanlega verið bara að tala um allt Sko internetsamband”

Næsta dag hringi ég í þjónustverið: Í þetta skiptið er ég númer 7 í röðinni og bíð í tæpan klukkutíma á meðan þeir éta upp peninginn minn í símreikning.

Annar þjónustugaur: Þjónustuver Hiv.. Sko.
Hlynur: Góðan daginn, ég ætlaði bara að athuga hvort símstöðin væri komin í lag í 101. Ég er ennþá ekki með neitt internet.
Annar þjónustugaur: Ha? Nú skil ég ekki?
Hlynur: Datt ekki niður internetið í miðbænum hjá ykkur í gær?
Annar þjónustugaur: Nei, af hverju hélstu það?

Hérna varð Hlynur pirraður.

Án þess að fara út í alltof mikið af detailum þá kemur það í ljós í níunda skiptið sem ég hringi í þá næstu 3 dag (ég var alltaf búinn að fá “Ég skal láta kíkja á þetta… vonandi að þetta verði komið fyrir lok dagsins”) að við værum með ónýtan router. Gunna Maja fer og fær nýjan router, sem virkaði jafnvel og hálsbrjóstsykur við eyðni.

Hvern einasta dag þurfti ég að hringja í þá til að tékka á statusnum á internetinu hjá mér og ég fékk alltaf “Þetta er í vinnslu, verður líklegast komið í lok dagsins” og aldrei kom það í lok dagsins.

Kemur í ljós að það hafði aldrei verið pöntuð tenging inn í hús til okkar af því að stelpan sem Gunna Maja talaði upphaflega við (um að skipta yfir til Sko) var greindarskertur hálfviti.

Svo var það þetta símtal:

Enn einn þjónustugaur: Þjónustuver Tal
Hlynur: Góðan daginn, ég ætla að athuga með stöðuna á internetinu… bla bla bla … kennitala… bla bla bla…
Enn einn þjónustugaur: Þetta er í vinnslu.
Hlynur: Hvað þýðir ‘þetta er í vinnslu’?

Og þá kemur einhver ræða sem að öllum starfsmönnum Tals hafði verið kennd til þess eins að kovera rassgatið á sér.. hann las þetta upp eins og hann væri að lesa lýsingar fyrir Myndbönd mánaðarins. Einhvern veginn svona.

Enn einn þjónustugaur: Þökk sé frábærum viðtökum hefur Tal fengið mun fleiri nýja kúnna til sín en upphaflega gert ráð fyrir. Þessi mikli fjöldi veldur töfum við að tengja kúnna við internetið og við biðjumst afsökunar á því. Tal fullvissar þig samt um að okkur er ekki drulluskítsama um þig. Taktu eftir því hvernig orð mín og verknaður stangast á.

Hlynur: Heyrðu félagi, þetta nýjir kúnnar kjaftæði virkar ekki á mig. Ég pantaði þessa helvítis tengingu 16. apríl þegar þið hétuð Sko.

Enn einn þjónustugaur: Ó, bíddu ég skal gefa þér samband.

Og kemur í ljós að “internetið á að vera komið í gang, en routerinn sem við létum ykkur fá virðist vera bilaður”. “Ok, má ég koma með hann til ykkar” spyr þá Hlynur. “Við lokuðum klukkan 5″. *Reykur út úr nösunum á Hlyni*

Næsta dag fer ég með routerinn og einungis 35 dögum eftir að við pöntuðum tengingu var komin net í húsið. Einungis 23 dagar án internets.

Mórall sögunnar er þessi: Tal er án efa með verstu þjónustu sem ég hef nokkurn tíman komist í tæri við. Þau ljúga til þess að koma þér úr símanum, vita ekkert um hvað þau eru að tala og gera ráð fyrir að þau séu að tala við 3 ára krakka.

Eini gaurinn hjá Tal sem ég óska ekki alls hins versta er lygarinn sem sá að sér. Þetta var uppáhalds símtalið mitt. Það endaði svona.

Lygara þjónustugaur: Ég er hérmeð búinn að senda ítrekun. Tengingin ætti að koma í dag. Síðasta lagi á mánudag (þetta var 9 maí).
Hlynur: Gaur, þið sögðuð þetta líka seinustu helgi.
Þjónustugaurinn: Uhh….
Hlynur: Er ég að fara fá internet fyrir helgina?
Þjónustugaurinn: Eins og ég segi þá er komin ítrekun á þetta og tengingin ætti að koma í dag.
Hlynur: “Ætti”? Hvað þýðir það? Hvað er “ætti” há prósenta? 80 prósent líkur á að tengingin komi í dag?
Þjónustugaur: Uhhh… sko…
Hlynur: Segðu mér bara eins og er … fæ ég internet í dag?
Þjónustugaur: Ég myndi ekki veðja á það.
Hlynur: OK.

Þakka honum (mjög pent) fyrir hreinskilnina.

Tal, þú sökkar.

Blogg

Posted by Dóri-í-Dós on May 20, 2008
Dagdraumar, Húmor, Nöldur, Tækni / 9 Comments

Jæja þá er loksins komin sól og þokkalegt hitastig hérna á klakann. Þetta gerist víst á hverju ári nú til dags en vegna þess er ég farinn að verða fyrirfram pirraður í febrúarlok hvers árs. Ekki misskilja, ástæðan er ekki sú að ég hata sólskin, þvert á móti reyni ég að nýta sem flesta sólargeislana í að byggja upp tanið mitt. Ástæðan fyrir pirringnum er hins vegar sú að ég hata vatnsslöngur og þegar sólin skín þarf ég að dröslast með vatnsslöngur hingað og þangað í garðinum þar sem vatns er þörf og núna fyrr í dag (áður en það byrjaði að rigna) lenti ég í fyrstu útistöðum þessa árs við garðslönguna.

Bíllinn var orðinn helvíti skítugur þannig ég ákvað að það yrði víst að þrífa hann. Leit út um gluggan og sá að röðin frá Löðri náði rétt niður að Smáralind, nokkuð stutt miðað við veður og tíma dags en ég nennti nú samt ekki að fara og lengja hana. Það var þá sem drungaleg hryllingsmyndatónlist hóf að óma um húsið og hurðin inn í hjólageymslu opnaðist hægt og ískrandi þar sem vatnsslangan beið fyrir innan hlæjandi ógnvekjandi.
“Fjandinn”.
Jæja það þýðir ekkert væl þannig ég klæddi mig í drusluföt og dró helvítis slönguna út og upp á bílaplan. Rölti til baka til að skrúfa frá vatninu en datt um slönguna á leiðinni.
“Djöfull”.
Að sjálfsögðu gat ég ekki bara skrúfað frá vatninu og hafist handa þar sem að einhver hafði fjarlægt breytistykkið af krananum sem hraðtengið á slöngunni smellist á þannig ég þurfti að leita að því í góðar tuttugu mínútur en fann það svo skrúfað á einhvern allt annan vask inni í ruslakompu þar sem það átti andskotann ekkert að vera!
“Helvítis”
Jæja, vatnið komið í gang og ég stekk upp á bílaplan. Þar eru allir bílar orðnir gegnsósa af vatni þar sem að á slöngunni eru 5 ný göt og byssuhausinn skaust af þannig slangan dansar um bílaplanið sprautandi hlandvolgu vatni á allt og alla.
“Fjárinn”
Jæja ég klippi af slöngunni og kem hraðtenginu aftur fyrir og eftir 15 mínútur er slangan loksins orðin “leak proof” og ég byrja að þrífa bílinn. Núna hinsvegar er slangan orðin of stutt og nær ekki í kringum bílinn þannig ég þarf að snúa bílnum við til að geta skolað sápuna af.
“Andskotinn”
Bíllinn orðinn hreinn og fínn en þá er kominn tími til að ganga frá slöngukvikindinu. Slekk á vatninu og reyni að ná sem mestu af vatni úr henni en að sjálfsögðu þegar ég byrja að rúlla henni upp lekur vatn yfir mig allan þannig ég stend eftir blautur, kaldur og fokk pirraður.
“Drulluhóruógeðismelludrasl”
Afhverju erum við ennþá bundin við svona fáránlegt kerfi komin átta ár inn í 21 öldina? “Já en hvernig öðruvísi getur þetta verið?” Mjög góð spurning, ég skal segja ykkur hvernig! Með því að gera þetta drasl þráðlaust! Ó já, þráðlaust vatn!! Ef þeim tókst að gera internetið og rafmagn þráðlaust þá getur þetta ekki verið það flókið. Mér er sama hvort það þarf að tengja vatnsrouter við vaskinn eða bara halda á ofurvatnsbyssu sem dregur raka úr loftinu en þetta slöngusystem er alveg komið á síðasta söludag og vel það! Er ekki meirihlutinn af meðlimum þessarar síðu verkfræðimenntaðir eða í það minnsta í verkfræðinámi? Get on it!

Vatn

takk.
Dóri-í-Dós