Archive for April, 2008

Að kúka og lesa

Posted by Helgi Jó on April 29, 2008
Dagdraumar / 21 Comments

Ég hef aldrei skilið þá sem lesa blöð eða bækur á meðan þeir kúka. Kallið mig skrýtinn, en mér finnst einfaldlega ekki heillandi að kæsa sjálfan mig í eigin skítalykt, auk þess sem að flestir stólar á heimilinu mínu eru þægilegri en hvíta postulínið. Að því sögðu get ég fullyrt að ég hafi hvorki tekið með mér dagblöð, bækur eða póstkort inn á baðherbergið, (nema í tilraunaskyni)

Hins vegar ætla ég að gera undantekningu á þessu á föstudaginn. Á föstudaginn, einhvern tíman eftir hálf fimm til að vera nákvæmur, ætla ég að kúka. Og þegar ég fer á baðherbergið til þess að kúka, þá ætla ég að taka með mér bók. Bókin sem verður fyrir valinu verður hin forláta Simulation Modeling and Analysis, eftir Dr. Law en ég ætla ekki að lesa hana, ónei, því sem ég heiti Helgi Jóhannsson mun ég skeina mér með henni. Og þó að ég nái ekki að maka hverja einustu blaðsíðu þessarar 764 bls. bókar í kúk, þá skiptir það ekki máli því á heildina litið er þessi bók algjör skita. Eini + sem bókin fær er að höfundur hennar er doktor og heitir Law, og það er töff að geta sagst vera Dr. Law. Eða “I am the Law” eins og Stallone.,

Svona á að nota þessar myndavélar

Posted by Kjarri on April 28, 2008
Strákastöff / 3 Comments

Kjarraholt

Posted by Kjarri on April 25, 2008
Atburður / 12 Comments

Sælir félagar

Ég ætla að biðja alla um að taka frá helgina 19-20 Júlí.

Ég var að fara yfir dagskránna í sumar og mér sýnist þetta vera besta helgin. Endilega látið mig vita ef þetta stangast á við eitthvað. 

Flottar síður

Posted by Hlynur 17 on April 25, 2008
Dagdraumar / No Comments

Vildi bara skella inn nokkrum skemmtilegum síðum hér inn svo að þið gætuð haft gaman að í prófatörn.

Hot chicks with douchebags – http://www.hotchickswithdouchebags.com/

Hér er ekki um að ræða klámsíðu með heitum gellum að douche’a sig heldur bloggsíða sem samansafnar myndir af douchebag gaurum með heitum gellum sem að douchebaggarnir eiga ekki skilið.

Stupid gameshow answers – http://sgsa.gameshowvideos.com/

Þetta held ég að sé fyndnasta síða sem ég hafi nokkurn tímann lent inn á. Hlutirnir sem fólk segir í spurningaþáttum. Ekki horfa á þetta uppi á bókasafni eða á hlöðunni því þið munuð hlæja upphátt!

Og síðan ef þið hittið einhvern tíman tímaflakkara frá árinu 2006 er best að vera með þessa síðu sér við hönd til að geta átt samskipti við hann.

The lolcat translator http://speaklolcat.com/

og ef það er ekki nóg er verið að lolcatta Biblíuna sem er akkúrat réttur skammtur af guðlasti fyrir mig (í forrétt)

http://www.lolcatbible.com/index.php?title=Main_Page

Það er aðeins eitt betra en að lesa boðskap Guðs (að það sé í lagi að nauðga konu svo lengi sem þú umskerð þig eftir á og giftist henni svo; Genesis 34) og það er að lesa hann á lolcatmáli.

Eftir atburði gærdagsins

Posted by Helgi Jó on April 24, 2008
Dagdraumar / 4 Comments

Eftir atburði gærdagsins þar sem ég var sá eini í náttfötum í feik náttfata-innflutningspartí hjá Hlyn og Gunnu Maju, vil ég endurlífga Votta Jehóva grínið sem átti sér stað í Versló í 6.bekk. Á því miður ekki allt sem ég gerði (ekki fyrstu bréfin og ekki transcriptið af bréfinu sem fór í póst til Dóra) en ég á fréttabréfið sem ég sendi á hann og heimasíðuna.

Hef ekki tíma til að fara út í þetta mál fyrir þá sem þekkja það ekki, enda er þetta blogg aðallega beint til Hlyns sem þarf að undirbúa sig undir öflugri hefndir en engisprettuplágu og barnadauða.

http://hi.is/~hej2/vottar/frettabref.htm

Posted by Helgi Jó on April 24, 2008
Dagdraumar / No Comments

Ég veit ekki mikið um atburði gærdagsins, enda var ég ekki á staðnum. En hvað er málið með þetta myndskeið?

Lögreglan er komin fyrir innan svæðið sem þeir sögðu mótmælendum að vera inn á, búnir að spreyja maze-i á fólk sem þó stóð þar sem lögreglan sagði þeim að vera, og ræðst síðan á þá.

Eru menn ekki annars hressir?

Við erum öll í hættu

Posted by PartýSnáðinn on April 24, 2008
Dagdraumar / 2 Comments

Fannst réttast að deila þessu með ykkur.

http://www.dhmo.org/facts.html#FACTS

Mæli með að allir lesi vel og vandlega yfir innihaldslýsingar á matvælum svo þið innbyrðið ekki þetta efni í of miklu magni.

mbk. DarriE

Varðandi mótmælabílstjóra og aðra eiginhagsmunaseggi

Posted by Stones Mind on April 23, 2008
Nöldur / No Comments

Flutningabíll á ferð

Þar sem fréttablogg eru almennt leiðinleg ætla ég að gera bullet blog um mótmæli atvinnubílstjóra. Almennt líkar mér mjög vel við flutninga- og vörubílstjóra enda tillitsömustu ökumennirnir í umferðinni. Aftur á móti líkar mér mjög illa við þessa atvinnulausu sem leggja bílunum sínum svo enginn komst neitt.

  • Einn flutninga/vörubíll veldur vegsliti á við allt að 30.000 fólksbíla. Veggjöldin sem þeir borga ná ekki að dekka það sem þeir skemma, fyrir þá er þetta mjög vel sloppið.
  • Bensínverðið er að hækka alstaðar, ekki bara á Íslandi.
  • Það er löngu búið að sækja um undanþágu frá hvíldartímalögunum.
  • Ef einstaklingur kastar grjóti í eða í áttina að lögreglumönnum er alls ekkert athugavert við að hann sé handtekinn. Persónulega finnst mér líka hið besta mál ef löggurnar eru að lumbra á þeim fyrst, efast samt um að það sé að ástæðulausu.
  • Þurfa þeir ekkert að vinna?
  • Hvað var kona með barn að þvælast inni í miðri mótmælaþvögunni? Svo varð hún geðveikt hissa að þegar löggan kom… Svona heimskt fólk á ekki að eiga börn.
  • Er ekki lágmark að þeir sem hafi sig hvað mest frammi í svona mótmælum séu allavega með bílpróf… Þessir eggjakastandi unglingahópur virtist eiga þó nokkur ár í það.
  • Hverju eru þeir eignlega að mótmæla?

Fleira verður ekki í þættinum að sinni, sjáumst að viku liðinni. [Kraftwerk - Home Computer]
Stainer Hgui – steinar@dagdraumar.is

Sumar ‘08 “The Trailer!!!”

Posted by Dóri-í-Dós on April 23, 2008
Dagdraumar / 10 Comments

Já sumarið 2007 var fucking awesome og því ekki skrítið að ég fari hér fram á það að sumarið sem er að byrja verði eitthvað í líkingu við það. Veðrið var hrein fullnæging, fólkið vel í glasi og dagdraumar framkvæmdu hvert ruglið á fætur öðru  jafn hratt og þeir gátu hugsað það upp. Eitt reyndar sem pirrar mig svolítið en það er skortur á vídjó klippum. Allir geta tekið myndir en myndir eru mestmegnis drasl því þær sýna yfirleitt bara þetta eitt uppsett andartak vegna þess að um leið og einhver tekur upp myndavélina brosa allir sínu breiðasta og reyna að looka harðir. Nú erum við allir með tölu með vídjóvélar í vasanum alla daga og það getur ekki verið erfitt að draga síman úr vasanum og skella upptöku í gang. Þetta á reyndar líka við sjálfan mig þó að ég hafi tekið nokkur skemmtileg myndbrot síðasta sumar þar sem það er núna komið ryk á linsuna á símanum. Ég veit það að Helgi er helvtíti duglegur að taka upp á símann sinn líka en hann fær annarskonar skammir í hattinn, drullastu til að koma þessu drasli á netið! Það hefur enginn gaman að þessu læstu inn á símanum þínum! og fjandinn hafi það snúðu símanum þínum rétt þannig það sé ekki allt á hvolfi eða á hlið!

Hér að neðan má sjá nokkur dæmi um þá tegund af geðsýki sem ég vill að sé fest á filmu núna í sumar:

<

Darri Eyjabiti

Posted by Snilldin Einar on April 23, 2008
Dagdraumar, Húmor / 2 Comments