Gott kvöld. Í þættinum í dag verða sýnd tvö myndbönd um vitþjarka í Suður-Frakklandi og nýja uppfinningu í samgöngutækni. En fyrst sjáum við þetta:
Myndband 1.
Hérna er eitt stórvirki í íslenskri landkynningu. Landkynning og Herbalife í sama pakka. Glæsileg enskukunnátta og húmor er einkennandi út í gegnum vídjóið. Horfið á allt og njótið.
Myndband 2
Seinna myndbandið hér að neðan er tónlistarmyndband með lagi eftir einn af ástsælustu mönnum þjóðarinnar. Hér er á ferðinni lag sem slær í hjörtum hvers íslensks mannsbarns og sungið af manni sem hefur brætt þau.
Það er því auðvitað enginn annar en Herbert sjálfur Guðmundsson sem hér um ræðir og lagið “Svaraðu”. Lagið er fyrir löngu orðið sígild klassík (endurtekning á orði? Já, því að þetta er ÞAÐ ódauðlegt) og er hér sveipað í forboðinn myndbandabúning sem inniheldur ógleymanleg augnablik og slík transitions á milli atriða að þau niðurlægja sjálfan Michael Bay með útliti sínu. Takið eftir því hvað Herbert nær miklu flugi á fjórðu mínútu, í lagi sem hægt er að hlusta á aftur og aftur.

-Kickass!-