Archive for November, 2007

Helgi McFly

Posted by Bragi Þór on November 29, 2007
Uncategorized / 1 Comment
Gott djók
 
Langaði bara að skella þessu inn…. gott djók 

Dr. Þorleifs strikes again

Posted by Dóri-í-Dós on November 29, 2007
Uncategorized / 1 Comment
Mother : Doctor Þorleifs, my daughter is sick, what is your analysis?
Dr. Þorleifs : Ahh Yes, the heart rate points clearly to the fact that the child ate too much.
Mother : Thank you doctor, thank you. How can I know when I'm giving her to much to eat?
Dr. Þorleifs : Ahhhh, yes. There is a saying, yes, "if the heart is still beatin', it means your child has been overeatin'"
Mother : So I shouldn't give her to eat again until the heart stops beating?
Dr. Þorleifs : Ahhhhhh yes.

Nú spila ég ekki

Posted by Helgi Jó on November 28, 2007
Uncategorized / 8 Comments

Næst þegar við förum í Guitar Hero strákar, þá vil ég bjóða Andy Mckee með svo ég geti unnið einhvern af ykkur.

 

 

 

Ég meina, kommon, eruð þið að sjá þenna gaur! Hann veit varla hvað gítar er, í helmingnum af vídjóinu þá heldur hann öfugt á gítarnum, ekki alveg með basicinn á hreinu. Síðan notar hann sem trommu og eitthvað. WHAT!!??  L to the a to the m to the e skiljiði.
Afhverju spilar hann ekki bara eitthvað íslenskt? Stál og Hníf eða eitthvað svona gott stöff???

 

 

Hverjir skoða dagdrauma….??

Posted by Skull-Darri on November 28, 2007
Uncategorized / 68 Comments

Mér til mikillar undrunar hefur aðsókn á okkar ágætu síðu (bestu reyndar) verið asskoti drjúg síðustu vikur… Það hafa verið yfir 1000 flettingar á síðunni þetta tímabil, án þess að við höfum eitthvað mikið verið að "auglýsa" okkur…

Til að svala forvitni minni ætlaði ég að biðja fólk, bara svona til gamans, að commenta á þessa færslu svo maður svona fái mynd af því hverjir eru að skoða síðuna… Einnig væri gaman að koma inn á það afhverju þú skoðar síðuna og hvar þú fréttir um hana… 

Ég veit nú reyndar að þetta er líflegasta blogg síðan í dag, með færslum frá hugleiðingum upp í kaldrifjaðan sannleikann um misgóðar staðreyndir..

 

Þetta var staðan kl 16:28 þann 28.11.2007

 

Endilega, allir að kvitta undir, þeir sem eru daglegir gestir, meðlimir, vinir og aðrir sem detta inn.. For science sake… Þetta er hávísindaleg könnnun.. farið verður yfir ip-tölur og athugað sannleikann á bakvið hvert svar***

 

***gert í samræmi við núgildandi lög um persónuvernd (semsagt þetta verður ekki gert) 

Extreme Skipping

Posted by Skull-Darri on November 27, 2007
Uncategorized / 6 Comments

Uþb 1970 kom nýjasta reifið í gang. Það voru snjóbretti. Þetta voru plötur sem að ungir krakkar sem voru mikið á móti kerfinu fóru að renna sér á, þvert á vit venjulega hefðbunda snjó-iðkunnar. Á níunda áratugnum (1980+) var þessi "nýja" iðkun að setja sinn sess í þjóðfélagið. Pönk rokkið var að ná festum sínum í þjóðfélaginu, hljólabretti og unglingadrykkja í hámarki, og að sjálfsögðu var næsta skref að færa þetta yfir á snjóbrettin.

Þetta gerðist við lítinn fögnuð íhaldsamra skíðaiðkenda, þar sem að krakkarnir voru villtir og fylgdu engum reglum. Svo að ég vitni nú beint í viðtal við eina konu síðan um miðjan 9.áratugsins : "those kids with their boards just cut in line infront of me, but i didn't dare to say a thing, they could have been carrying guns"…. Hver fer með byssu á snjóbretta, ALLAVEGANNA… Þá er þetta lýsing á hvernig þjóðfélagið tók í þessa nýju iðkun. Krakkarnir fóru að berjast fyrir fótfestu þessa róttæku íþróttar…

Eins og flestir vita, þá eru snjóbretti virt og mjög vinsæl íþrótt í snjó heiminum í dag. Fullt af ótrúlega góðu snjóbrettafólki er orðið virtrir íþrótamenn í dag….

 

Það nýjasta núna í dag, sem er að mæta sömu mótstöðu og snjóbrettin þá er Extreme Skipping, eða Öfga-Valhopp beinþýtt. Þessi iðkun er ekki að fá mótmæli bara frá íhaldsömum göngugörpum, heldur líka sumra íhaldsamra hjólabretta og línuskautaiðkenda…..

 

En án þess að láta það á sig fá er hinn mikli Extreme Gene að reyna að berjast fyrir viðurkenningu þessarar merku bráttverðandi íþróttar… Ég hef prufað þetta og ég fíla þetta í botn, það er bara spurning um að brjóast upp úr forminu sem að yfirvöldin eru að reyna að halda okkur í og fara út og "ride the world" eins og Gene segir…

En til þess að gera orð að mynd, ætla ég að sýna ykkur 2 vídjó með honum Extreme Gene. Ég þarf ekki að sannfæra ykkur lengur eftir þessa sýningu á þessari miklu snilld og möguleika sem að Öfga-Valhopp gefur ykkur…

 

 

 

Meira má finna á heimasíðunni : http://www.extremeskipping.com

 

Bítlar

Posted by Helgi Jó on November 26, 2007
Uncategorized / 10 Comments

Annar einkahúmorsbrandari, þú veist númerið mitt Hlynur ef þú vilt útskýringu.

 

Here goes:

 

Bítlarnir voru mikið kyntákn (no pun intended) á sínum tíma og voru mjög vinsælir hjá flestum meðlimum (no pun intended ) allra þjóðfélagshópa.
Ef að Bítlarnir hefðu hins vegar verið skapaðar (no pun intended ) fyrir markhópinn Darra Eyþórs og Halldór Ragnar hefðu þeir náð, með vídjóinu hér að neðan, að lima (no pun intended) sig inn í umhverfi þeirra áreynslulaust.
Gaman er síðan að skoða, fyrir okkur áhugamenn um slíkt, míkrófónana í myndbandinu, og þá sérstaklega hausana, hvernig þeir eru forhúðaðir (no pun intended) með krómi til að hindra ryðgun eða slit þegar tognar á málminum í hita og bleytu.

 

 

 

oljlj

Posted by Helgi Jó on November 25, 2007
Uncategorized / 1 Comment

Klámvæðingin er orðin greinileg alls staðar í samfélaginu. Það er varla að maður geti staulast út í búð án þess að rekast á strípaling í mökum við gangstéttahellu eða kveikt á sjónvarpinu án þess að horfa á úrkynjun yngstu kynslóðarinnar.

Klámvæðingin er komin svo langt á veg að hún er meira segja búin að brjóta sér leið inn í menningarsetur miðalda, óperunnar.

Fuss!

Takið eftir ógeðslegu nekt karlmannsins hér að neðan, og kynskiptings í gervi karlmanns sem syngur til hans.

Þegar ég var ungur þá fór fólk í Óperunna til þess að njóta þess að skilja ekki orð í þrjá klukkutíma og telja sér trú um að það kæmi gáfaðra og menningarlegra út eftir það. En ekki lengur, nei, því núna lítur Óperan út eins og langdregin útgáfa af Chippendales. Menn sem krjúpa fyrir framan nakta karlmenn sem fækka fötum. Mér býður við þessu. 

 

 

 

Er það útaf þessu sem þú ert alltaf í Óperunni Haraldur? Nýturðu þess að sjá karlmenn hlutgerða eins og sviðakjamma á útsölu? Þú ert sick… Og þið öll.

 

Dóri skemmta sér

Posted by Dóri-í-Dós on November 24, 2007
Uncategorized / 2 Comments

Dóri vinna. Dóri þurfa eyða tíma. Dóri skoða 69.is því b2 ekki virka í vinna. 69.is vera með of mikið leiðinlega lista. Dóri taka saman lista yfir leiðinlega lista.

nr. 6
Listinn yfir frægustu apa heims
http://www.69.is/openlink.php?id=92730

Þegar þú tekur saman lista yfir "Top x famous … in the world" þá verðuru að velja hluti á listann sem eru frægir. Hér er listi yfir 10 apa og ég, sem tel mig víðlesinn í málefnum prímata, kannast bara við tvo þeirra. Síðan er of mikið af leiðinlegum texta við hvern þeirra. Þegar ég skoða lista á netinu vil ég að þeir séu stuttir, hnitmiðaðir og fyndnir, þessum tekst ekkert af því.

Nr. 5
Listinn yfir 10 hræðilegustu sjónvarpsþættina.
http://www.69.is/openlink.php?id=94226

Alla lista sem setja Unsolved mysteries, Are you afraid of the dark, Most Haunted (!) og teletubbies á stall einhversstaðar nálægt The twilight Zone og Alfred Hitchcock Presents á að draga bakvið hús og skjóta og svo aftur fyrir framan húsið og skjóta þar líka.

Nr. 4
Listinn yfir 5 "mest drauguðustu" bari í Englandi.
http://www.69.is/openlink.php?id=94225

Nú trúi ég ekki á drauga en þykist þó nokkuð viss um að ef þeir væru til þá væru þeir ekki að dippa á einhverjum skítapöbbum alla daga. Ef ég væri draugur væri ég búinn að finna mér lögulegan kvennman og væru fluttur inn í sturtuhausinn hennar. Minntist ég á það hvað myndirnar, sögurnar og draugagangurinn á listanum er slappt?

Nr. 3
Listinn yfir 3 dýrustu bjóra í heimi.
http://www.69.is/openlink.php?id=94227

Núna gæti myndast hér fjörug heimspekileg umræða um sandkorn og hrúgur en málið er einfaldlega að það sleppur að tala um lista yfir fimm hluti en þegar þú ert með þrjá þá er það ekki listi! Svo er ansi kjánalegt að skrifa "This comes second in the list of the world's most expensive beer" við bjór númer þrjú á listanum! 

Nr. 2
Listinn yfir 10 óútskýranleg fyrirbæri
http://www.69.is/openlink.php?id=93279

Að gera lista yfir óútskýranleg fyrirbæri þar sem helmingurinn er útskýrður er ekki töff.

nr.1
Listinn yfir hræðilegustu atburði heimsins.
http://www.69.is/openlink.php?id=92728

Það hefur ótalmargt hryllilegt gerst í heiminum. Reyndar það ótrúlega mikið að ég veit ekki hvar ætti að byrja að taka saman lista yfir það, hvað þá að þrengja hann niður í sex hluti. En ég veit að slíkur listi myndi ekki innihalda flóð í smábæ í Bandaríkjunum þar sem rétt um 2000 manns dóu, loftsteininn sem sprakk yfir eyðimörk í Síberíu og ofureldfjallið undir Yellowstone í Bandaríkjunum (SEM HEFUR EKKI GOSIÐ ENNÞÁ Í TÍÐ MANNKYNS!!!)

 

Hvaða fólk er það sem situr heima hjá sér og ákveður að búa til einhverja svona rugl lista og setja þá fram sem staðreyndir? Eða meira aðkallandi spurning: Hvaða heimski fokking admin er það sem safnar þeim og skellir þeim inn á 69.is?!!! Þessir listar eru alltaf bull, alltaf pirrandi og aldrei skemmtilegir.. Þetta er ekta e-mail matur fyrir skrifstofufólk með of mikinn tíma og of lítið vit. Þarf þá líka að birta það á 69.is? Og svo náttúrulega mest aðkallandi spurningin: Afhverju í fjáranum er lokað á b2.is hérna í vinnunni?!!!!?!!?!!?!11'!!?1lolomgs!!

KÚBA!

Posted by Dóri-í-Dós on November 23, 2007
Uncategorized / 3 Comments

Nú ættu flestir meðlimir dagdrauma að vera farnir að huga að prófalestri… En þar sem ég er ekki í skóla þá get ég einbeitt mér að skemmtilegri hlutum. Núna í dag tildæmis barst mér í pósti nýútgefið vegabréf og farmiði til Kúbu 5.des til 18.des…

-Motherfucking Cuba bitches!-

Það má því með sanni segja að ég ætli að taka prófavertíðina með trompi. Meðal skemmtilegra hluta sem ég ætla að gera þarna úti má nefna: Drekka nóg af Havanaclub rommi, reykja nývafðan vindil, taka skoðunarferð um gamla bæ Havana sem er friðlýstur af UNESCO og geymir ýmsar minjar frá fyrri tíð. Glæsilegur arkitektúr, byltingartorgið, dómkirkjutorgið, markaðurinn, vindlaverksmiðja og fríir kúbverskir kokteilar í þeirri ferð. Síðan mun ég bara labba um með myndavélina og gera einhvern andskotan af mér þessa 6 daga í Havana. Síðan bíða mín 7 dagar á all inclusive hóteli í Varadero sem er í tveggja klukkutímaferð frá Havana og 0 klukkutímaferð frá sólarströnd.

 

-Þessi veit það ekki ennþá en hún á stefnumót við Dórann-

Já vona svo sannarlega að þið njótið próflestursins sem og prófanna sjálfra strákar því ekki verð ég hérna til að halda í ykkur lífinu.

takk
Dóri-í-Dós

Ég fann flottasta snjóbrettið!!!

Posted by Kjarri on November 22, 2007
Uncategorized / 3 Comments

 

Þetta bretti er til sölu á ebay. Og bara svona til skemmtunar þá er þetta X yfir brjósinu á Jennu bara tape, hann gaurinn setti það þarna bara svo að hann mætti sýna brettið.