Kona líttu þér fjær!
[EDIT]
Rakst á snilldarpælingu um þetta mál allt. Þegar Sóley og félagar voru að krefjast þess að KSÍ mótmælti vændissölu á HM í fyrra þá stóð meðal annars í bréfinu sem þau sendu KSÍ:
"Þögn er sama og samþykki"
sem þýddi þá að með því að mótmæla ekki vændissölu í kringum HM þá samþykkti KSÍ það. En hvað er gerast núna, það heyrist ekki neitt frá Sóleyju um vopnasölufólk, er hún þá ekki bara samþykk þessu og vopnasölufólki, allavega miðað við sín eigin rök?
[EDIT LÝKUR]
Sóley Tómas fer á kostum í einum af nýjustu bloggfærslum sínum. Sjá hér http://soley.blog.is/blog/soley/entry/352870/#comments
Bloggfærslan heitir "Arfaslök blaðamennska" og þar ræðst hún af alkunnri ritsnilld (lesist með kaldhæðni ætla ég rétt að vona) á þá sem hafa gagnrýnt hana fyrir að hafa ekki gagnrýnt fyrirhugaðan fund vopnasölumanna hér á landi. Aðalgagnrýnin á hana er auðvitað sú að hún barðist harðlega gegn klámráðstefnunni en hefur lítið sem ekkert sagt um þessa ráðstefnu sem er haldin á Hilton Nordica. Sóley ver þessa afstöðu sína með eftirfarandi rökum:
"
…En sem stjórnmálakona get ég ekki beitt mér á sama hátt og ég gerði í klámráðstefnumálinu, enda eðlismunur á heimsóknum hópanna.
Þeir blaðamenn sem hér um ræðir virðist fyrirmunað að skilja að markmið klámráðstefnugesta var ekki að skoða Gullfoss og Geysi, þó sömu blaðamenn hafi reynt með ráðum og dáð að telja almenningi trú um það á sínum tíma. Markmið með ráðstefnunni var að:
- Framleiða klám – en það fullyrti talskona hópsins í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins þann 15. febrúar síðastliðinn.
- Að flytja inn klám – þar sem kostunarmöguleikar voru margir og gestir áttu að fá pakka með ýmsum varningi frá klámframleiðendum á hótelinu.
- Að dreifa klámi – með kostunarpakkanum.
Allt er þetta ólöglegt. Þegar fólk kemur hingað til lands með það yfirlýsta markmið að brjóta lög ber stjórnvöldum að fordæma slíkt. -Og það gerðu þau.
Enn hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að vopnaframleiðendurnir séu hér í hvataferð. Engin áform virðast vera uppi um að framleiða, flytja inn eða selja vopn hérlendis, né heldur beita þeirra.
"
Mér finnst persónulega gott og blessað að hún skildi mótmæla klámráðstefnunni. Ég er ekki sammála henni en ég er heldur enginn aðdáandi klámráðstefnu, en allavega, það er ekki aðalatriði hér. Það sem er aðalatriði hér er að hún segir að hún sem stjórnmálakona geti ekki beitt sér á sama hátt og áður (eins og hún beitti sér vegna klámráðstefnunnar). Það hins vegar gengur bara ekki upp. Hvaða munur er nefnilega á þessum tveimur fundum? Ekki sé ég það. Tveir hagsmunahópar með ákveðin markið koma saman á hótelum til að ræða stöðu sína. Er eitthvað sem er ólíkt með þessu?
En Sóley þegir og mótmælir bara þeim ráðstefnum sem skipta mestu máli, enda þjáðust þær milljónir af konum og börnum sem hafa dáið af völdum byssukúlna og jarðsprengja ekki af kynbundnu ofbeldi.
Síðan finnst mér lokasetning í þessu best, þar sem engin áform eru um að flytja inn eða selja vopna hérlendis eða beita þeim (what?) þá segir hún ekki neitt.
Vopnasalar bera mikla ábyrgð á þjáningum þessa heims og hafa haft áhrif á milljón sinnum fleiri en klámráðstefnufólkið mun nokkurn tíman gera.
En af því það er ekki hér á landi þá þarf víst ekki að segja neitt, af því það er ekki fólk hér á landi sem þjáist vegna vopna og stríðsreksturs þá er fínt að halda bara kjafti og segja : "Þetta er ekki hérna á Íslandi svo mér er alveg skítsama" Sóley, líttu þér fjær, það má líka gagnrýna fólk sem veldur þjáningum annars staðar en á Íslandi. Af því að markmið vopnasalanna er ekki að dreifa cluster-sprengjum á Íslandi þýðir ekki að þeir semji ekki um sölu á milljón aflimunarsprengjum á meðan þeir eru hérna! En auðvitað Sóley, á meðan þeir selja ekki hérlendis, heldur bara út í heimi, þá þarf ekkert að mótmæla þessu.
Til að setja þetta fram á fyndinn hátt : "Sóley vill ekki að fólk ríði, en henni er sama þótt að fólk drepi" (sem er auðvitað ekki rétt per se, en það er gaman að horfa á þetta svona)

Þessu þarf ekki að mótmæla, mér er illa við þetta, en ég meina, só what þó stelpan hafi öll
brennst, napalm-sprengjur eru ekki karlkyns og geta ekki beitt kynbundu ofbeldi. Svo er þetta
líka einhvers staðar úti í heimi."

Ef Jenna mætir til landsins þá fer Ísland til helvítis, hvernig er hægt að valda
meiri skaða en hún gerir? Svo er hún líka þvinguð í þetta starf, því allar, já allar
konur í klámi eru þar gegn eigin vilja.
Síðan fer Sóley á kostum í commentakerfinu sínu a&e
th; vana. Fyrstur til að kommenta er einhver ómálefnalegur maður og Sóley svarar honum og segir "Marti. Málefnalegur og hress – að vanda…" til að benda á að hún vilji málefnaleg skrif. Þá kemur næsti og skrifar langt komment og er mjög málefnalegur og hvað gerir Sóley þá? Sóley : "Ingólfur. Skelltu þér í mótmæli. Hafðu samband við Egil Helgason – hann iðar í skinninu. Styð ykkur." Þ.e., hún gagnrýnir fyrst commentara fyrir að vera ómálefnalegur og loksins þegar hún fær málefnaleg skrif þá svarar hún ómálefnalega. High five!
Síðan má benda á það að næsta blogg fyrir ofan þetta er gert til þess að dissa Egil Helgason, sem gerir ekkert annað en að mótmæla þessari vopnaráðstefnu.
Glæsilegt Sóley, málefnaleg og hress – að vanda.
Það er enginn að segja að Sóleyju sé ekki illa við vopnasölur, hún segir það sjálf, en síðan segir hún að hún sem stjórnmálamaður vilji ekki gagnrýna það sem gerist ekki hér á landi. Stoppum aðeins hér. Lesum þetta yfir. Hversu oft hefur Sóley gagnrýnt klámiðnaðinn? Það er ekki eins og það sé einhver risa klámiðnaður hér á landi (þá meina ég löglegur, svo sem útgáfa á myndefni osfrv), svo þegar hún gagnrýnir klámiðnað þá er hún að gagnrýna það sem gerist út í hinum stóar heimi. En það vill hún hins vegar ekki gera í þessu máli. Tvískinnungur dauðans.
Síðan sagði hún í samtali við fréttablaðið að "Flokkurinn væri ekki búinn að mynda sé skoðun á málefninu" Þurfa vinstri-græn í alvörunni að taka sér tíma til að mynda sér skoðun á vopnasölu, flokkur sem hefur verið á móti Nató og Hernum alla tíð? Að auki hefur Sóley svo sannarlega ekki legið á skoðunum sínum hingað til hvort sem að flokkurinn hefur myndað sér eitthvað eða ekki.
Það má síðan reyndar spyrja sig, þarf Sóley að mynda sér skoðun á þessu, má hún ekki bara einbeita sér að öðrum vettvangi?
Svarið getur í fyrstu sýn verið já, en við þurfum samt að horfa á eitt. Sóley er formaður mannréttindanefndar á Íslandi og vopnasala og vopnanotkun er beintengd þeim málaflokki. Þannig að í raun sem formaður þessarar nefndar ætti henni að bera skilda til þess að mótmæla þessu, þar sem það eru óteljandi dæmi um mannréttindabrot vegna notkunar á vopnum sem er jú framleidd af þeim sem koma hér á ráðstefnu.
Þannig að plís, fullorðnastu Sóley og hættu að stjórnast af duttlungum og farðu að skrifa málefnalega og takast á við hluti á málefnalegan hátt.
Og já, bara til að hafa disclaimer. Mér finnst persónulega alveg nauðsynlegt að skrif þingmanna eða embættismanna séu málefnaleg, og allt annað er barnalegt. Og ef ekki, þá er allavega ágætis kurteisi ef viðkomandi krefst þess að aðrir séu málefnalegir að hann sé það einnig líka sjálfur(eða sjálf í okkar tilfelli) . Fólk verður þ.e. að vera málefnalegt ef það krefst þess af öðrum.















