Horfði á þátt á E Channel í gær. Þar var talað við mann sem býr til erótískar myndir í samstarfi við konuna sína. Sem væri kannski ekki merkilegt nema að þessar erótísku myndir eru af alklæddum konum sem blása upp blöðrur. Og vil ég setja stórt upphrópunarmerki fyrir aftan það.
Heimasíðan sem hann rekur heitir balloonbuddies.com, og er rekið í kringum þetta balloon fetish, sem hann sjálfur segist hafa haft alveg síðan hann var lítill. Heimasíðan er mjög vinaleg og er meðal annars með mynd af konunni hans umkringd blöðrum. En sem sagt, þeim sem aðhyllast þessu fetish-i finnst sexy að horfa á þegar blöðrur eru blásnar upp, og svo ég vitni í konu mannsins sem stofnaði síðuna:
"…after a little foreplay, I grab one[blöðru] and then I blow it up. It excites him and
I'm not scared of them as he is."
Þetta segir hún á meðan hún opnar skúffu við hliðina á rúminu þeirra og sýnir okkur svona 100 blöðrur.
Síðan segir maðurinn okkur frá sögu sinni og segist alltaf hafa verið hálfhræddur við blöðrur og hluti sem springa, t.d. flugeldasýningar, en hafi á sama tíma einhvern veginn fengið eitthvað út úr því.
Þegar hann kynntist konunni sinni þá sagði hann henni eftir svona 2-3 mánuði frá hræðslu sinni gagnvart blöðrum og hlutum sem springa og eitt leiddi á eftir öðru og eftir smá stund var hún byrjuð að blása upp blöðrur í kynlífinu hjá þeim…. ég veit ekki, en þetta er eitt alveg sveitt fetish. Hver í andskotanum æsist kynferðislega á að sjá plastblöðru blásast upp?
Blöðruorgía, hérna er greinilega farið að hitna í kolunum.
Síðan var sýnt þegar var verið að taka upp vídjó fyrir heimasíðuna, og þá var einhver kona í bleikum buxum að blása upp blöðru og talaði á meðan "then I blow him up like this, make him really big and *pop* then he explodes just like this"
Sjáiði þetta ekki fyrir ykkur, eruð þið ekki æst kynferðislega núna? Mmmm…. kona í bleikum buxum að blása upp græna blöðru….yummie…
Eftir þetta vídjó var síðan viðtal við módelið, konuna sem blés upp blöðruna. Hún sagði að fyrst þegar balloonbuddies.com hefðu talað við hana þótti henni það fáránlegt að einhver myndi borga hennji fyrir það að blása í blöðrur(sem það sjálfsögðu er) en hún hefði vanist þessu.
Það erfiðasta fyrir hana var þó að læra lingó-ið á bakvið blöðru fetishið, enda máttu hún ekki kalla blöðruna "it" heldur þurfti að kalla það "he" eða "she".
OOHHH, þetta er svo bilað!!!
Svo er gaman að lesa það sem stendur á heimasíðunni, en þar er hægt að panta blöðrur í öllum stærðum:
Do You Have A Latex Balloon Fetish? Thousands of Other Folks Do Too! You Should Join Us Today! Even before the Internet existed, Balloon Buddies has been the number one place for adults who have an erotic fetish for toy balloons to meet and share their common interest. On the Web since '93, the Buddies is the oldest, largest discussion forum
and image site for straight, bi, and gay folks who love the erotic suspense of a simple toy balloon.
Það sem er í raun skemmtilegasta við þetta er að þessu fetishi er skipt upp eftir því hvort þú ert samkynhneigður eða ekki. Þ.e. hvort þú vilt horfa á menn eða konur blása upp blöðrur. Þannig að það er eins og athöfnin, að blása út og halda utan um eitthvað sem stækkar og stækkar og er úr latex-i, æsi þetta fólk. Eða ég veit ekki, og ég vil helst ekki vita það.

Hérna erum við virkilega að tala saman. Kona í fallegum fötum að blása
upp blöðru í ró og næði. Takið eftir því hvað hún heldur þokkafull utan um
stútinn á blöðrunni og hvað vinstri hendin á henni gælir við latex yfirborðið á
gulu, heitu og slutty blöðrunni. For more steaming hot blowing action, go to
balloonbuddies.com and join today. It's free and it's balloons! With hot chicks!
Persónulega þekki ég engann sem er haldinn þessu fetishi, en Jón Örn Loðmfjörð sagði mér þó einu sinni í trúnaði að sko, eiginlega, já, einn af vinum hans væri sífellt að blása upp blöðrur fyrir hann þegar þeir væru tveir einir.
Ég gæti trúað því, eða haldið því fram sem er örugglega rétt, að Jón Örn sé alltaf að blása upp blöðrur sjálfur, nakinn fyrir framan spegil.



