Archive for June, 2007

Bolir á tilboði

Posted by Dóri-í-Dós on June 29, 2007
Uncategorized / No Comments

Er að byrja að selja boli á lúxusprís.. Í rauninni er ég að borga með þeim en það er annað mál..

Bolirnir fást í lit að eigin vali með áprentuninni:

"Ég drap Lúkas!" 

 og með myndasögu á bakinu sem í grófum dráttum er:

 

 hundur =

Þyrfti bara að vita sem fyrst hve margir hafa áhuga.

takk.
Dóri-í-Dós
edit: Gífurlegur áhugi virðist hafa skapast og símtölum hefur ringt inn.. Vegna þessara anna treysti ég mér ekki til að taka við fleiri pöntunum í óakveðin tíma

 

 

FOKK

Posted by Helgi Jó on June 29, 2007
Uncategorized / 2 Comments

ÉG HATA ALLT SEM VIÐ KEMUR ÞESSU DJÖFULSINS ANDSKOTANS MYNDBANDI.

Fullur uppi í fjalli!!!!

Posted by Kjarri on June 28, 2007
Uncategorized / 4 Comments

Þá er fundurinn búinn og það er komið plan. Við erum að fara 2. Janúar. Ferðin kostar 100.000 krónur og svo má reikna með svona 20.000 kalli í skíðapassa.

 Innifalið inni í þessum 100 kalli er gistingin, hálft fæði og flug.

Þetta er 10 daga ferð og það eru nú þegar 4 búnir að ákveða að fara í ferðina, þessir menn eru Kjarri, Darri, Dóri og Helgi. Við munum gista í 2 manna herbergjum.  Þar sem þessi ferð er fáránlega vinsæl þá verðum við að borga snemma og panta snemma þessa vegna erum við 4 allavega að borga innan við 2 vikur. Þeir sem mættu ekki á fundinn og viljið brettast og drekkast með okkur í flottustu fjöllum ítalíu þá hringið í mig eða Helga. Svo getið þið líka bara commentað, það virkar alltaf best.  

Madonna fundur!!!!!

Posted by Kjarri on June 26, 2007
Uncategorized / 26 Comments

Helgi hringdi í mig í gær með svakalega góðar fréttir, hann reyndar hringdi í mig klukkan 1 um nótt til að segja mér frá þessu og mér fannst það mjög eðlilegt. Það sýnir bara áhuga okkar Helga á þessari svakalegur ferð sem er í skipulagningu. Málið er það að allir vilja fara á snjóbretti og drekka bjór og við ákváðum strákarnir að fara til Madonna í Ítalíu. Helgi var greinilega í vinnunni ekki að vinna og skellti sér á úrval útsýn síðuna og fann þar verð og allan pakkann fyrir ferðina.

 Það sem ég er að segja ykkur er að við erum að fara til Madonna og við þurfum að hafa svona „let´s fucking plan this thing“ fund. Svo að við Helgi höfum ákveðið að það verður fundur klukkan 6 í miðvikudaginn í skúrnum hjá Kjarra. Ástæðan fyrir því að fundurinn er svona snemma er vegna „Whatever“ æfinga hjá mér, Darra og hugsanlega Nella ef hann vill fara í ferðina.

Ef þú ert að lesa þetta og ert að hugsa „vá hvað mig langar með, en ég var samt ekkert inn í þessu í byrjun“ þá skal ég segja þér að það eru góðar líkur að við viljum hafa þig með þannig að allir sem vilja fara í þessa ferð, mætið klukkan 6 til kjarra á miðvikudaginn.

Þið sem voruð með í upphaflega planinu eru þið kannski að hugsa það sama og ég…..

Banner

Posted by Dóri-í-Dós on June 25, 2007
Uncategorized / No Comments

Hey guys!

I'm working on a new banner so I need all of you to send me new pictures of yourself!
If you don't send me a picture before wednesday I will use your naked ones! Penis and all!

Pís out y'all!!
Dóri-í-Dós

Asía

Posted by Helgi Jó on June 25, 2007
Uncategorized / 1 Comment

Fólk frá Asíu, t.d. kínverjar og kóreubúar eiga mjög erfitt með að greina á milli R og L. Til dæmis Turn to Right verður Turn to Light osfrv. Stundum sleppa þeir hins vegar alveg R-inu og setja ekkert í staðinn.
Ég æfði einu sinni í mörg ár Taekwondo og æfði oft með einhverjum kóreskum þjálfurum sem maður átti mjög erfitt með að skilja.

Einu sinni var ég út í Noregi og þar var kóreskur munkur að kenna okkur. klukkan var rétt yfir 6 að morgni og eftir að hafa æft 3-4x á dag og sofnað klukkan 2 á nóttunni var ég oftast næstum sofnaður standandi á þessum morgunæfingum. Þessi munkur var alveg sjúklega slæmur í ensku og talaði einmitt með ofangreindu R/L syndrómi. Æfingarnar hans voru frekar steiktar og við vorum að gera alls konar hluti sem maður hafði aldrei gert áður og því kom næstum því ekkert á óvart.
Í eitt skiptið lágum við á bakinu á gólfinu og með fæturna hjá öxlunum og vorum að teygja.

Þá segir munkurinn
"And now, contract anus"

Þetta var mjög vandræðalegt móment og menn lágu á bakinu og reyndu að halda aftur af sér hlátrinum.

Ónefnd færsla

Posted by Helgi Jó on June 24, 2007
Uncategorized / No Comments

Keypti mér bjór í gær, sem er ekkert sérstaklega merkilegt.

Nema jú, ég ætlaði að drekka hann í kvöld. Endaði hins vegar á því að drekka hann nánast allan yfir daginn og síðan var ég edrú um kvöldið. Ástæðan var sú að ég var að vinna um daginn en síðan fór ég í partí um kvöldið.
Það er reyndar ákveðin rómantík yfir því að vinna vinnuna mína. Ég get mætt hvenær sem er, unnið eins lengi og ég vil og gert hvað sem er í vinnuni(t.d. eins og að setja smá bjór ofan í mallakút). Það eina sem ég þarf að standa af mér er að skila verkum á einhverjum skikkanlegum tíma. Þetta hljómar allt rosalega djúsí og skemmtilega(finnst mer allavega) enn þetta er samt frekar mikið helvíti. Endar alltaf á því að ég er of kærulaus og sef lítið og fer seint að sofa og vakna alltof snemma eða ég þarf að vinna á einhverjum óheyrilega ókristilegum tíma. Ég er náttúrulega maður sem meika ekki að vakna klukkan 8, vill frekar sofa til svona 2 á daginn og því endar þetta nánast alltaf þannig að ég er a vinna þegar aðrir eiga frí.

Svo að basicly, freelance er ekkert sérstaklega heitt shit, enn það er samt betra en skrifstofuvinna frá 8-4, því það er ekkert jafn óspennandi. Ef að ég verð ekki atvinnulaus auðnuleysingi í framtíðinni, þá kemur ekki til greina að ég vinni í banka eða á einhverri verkfræðistofu í einhvers konar náttúrulausri og óskapandi vinnu ( já ok, þessar vinnur geta svo sem alveg verið skapandi(þó ég efi þa&eth0, en þegar ég meina skapandi er ég að tala um vinnu eins og að vera rithöfundur eða hönnuður eða leikstjóri osfrv.) Freelance getur verið fínt borgað, eiginlega bara mjög vel, þó það sé samt helvítis hark. Fínt að minnsta kosti á meðan maður byr ennþá heima hjá mömmu og pabba, en djöfull gæti ég ekki verið með kærustu núna, því að vinnutíminn minn er basicly frá Alltaf til Alltaf.

það myndi samt reddast og auglýsi ég hér með eftir stelpu sem er til í að vera með strák sem hún sér aldrei. Blindar stelpur ættu þvi að sjá(haha) kjörið tækifæri í mér.

 

 

Veit samt ekkert hvað ég er að væla, ég hef það gott.

 

Tvennt að lokum,

Þú veist að þú ert ekki hommi þegar þú hefur eytt nokkrum klukkutímum í að teikna útlínur eftir öllum líkama páls óskars án þess að fá neitt út úr því.

Var í partíi áðan og partíihaldarinn þekkir Pétur Ben. Sem er töff af því Pétur Ben er töff. Það sem er hins vegar meira töff er að hafa Pétur Ben sem einka DJ að stjórna lögum á tölvu á milli þess að grípa aðeins í hljómborð.

 

 

 

"The Word of today is Quarantine, Q u a r a n t i ne "

 

 

 

Allt fyrir aurinn

Posted by Helgi Jó on June 22, 2007
Uncategorized / 12 Comments

Nú var Hnakkus, www.hnakkus.blogspot.com, valinn annar besti bloggari á Íslandi í fréttablaðinu fyrir nokkrum vikum. Það vill svo skemmtilega til að ég þekki hann og veit hvað ykur öllum langar að hitta hann(sérstaklega bjarna). Nú veit ég hvar hann á heima og hef meira að segja komið heim til hans og hef því búið til leik.

Leikurinn felst í því að sá sem er seinastur að commenta hér á síðunni í dag (föstudag) fær að launum 500 krónur. Þessar 500 kr. eru akkúrat nóg til þess að komast í strætó fram og til baka til nethetjunnar hnakkusar og falla í stafi af fegurð og æðisleika.(Sjálfur hef ég t.d. skipt út sjónvarpinu mínu fyrir mynd af hnakkusi).
Það eina sem þið þurfið sem sagt að gera er að skilja eftir comment hérna, sem verður að vera nákvæmlega 37 orð og það þarf að meika sens. Síðan skiljið þið eftir bankanúmer og kennitölu og 500 krónurnar eru ykkar ef þið eruð svo heppin að vera seinust.

Þannig að, basicly, þetta er win-win situation. 37 orð, 500 kall, hitta Hnakkus.

 

 

Ég áskil mér þann frábæra rétt að dæma um hvaða comment meika og meika ekki sens.

 

 

Til hamingju Darri!!

Posted by Dóri-í-Dós on June 21, 2007
Uncategorized / 6 Comments

tekið af visir.is 

mynd                                  Betri mynd af Darra

Hestafrettir.is, 21. júní. 2007 09:32                         Hér sést Darri hita upp fyrir
                                                                            keppnina með hanann úti



Darri fær heiðursverðlaun

Stóðhesturinn Darri 1021 frá Kampholti fékk heiðursverðlauná kynbótasýningu í Hedeland í Danmörku nú fyrir stuttu. Í Damörku er dæmt ennþá eftir gömlu íslensku reglunum sem voru í gildi til ársins 1989, þar sem skilyrðin fyrir því að fá heiðursverðlaun eru meðaleinkunn upp á 8,10 fyrir 12 bestu afkvæmin. Darri fékk meðaleinkunn 8,11 fyrir 12 bestu afkvæmi sín.

Nýi kærasti Páls

Posted by Stones Mind on June 20, 2007
Uncategorized / 4 Comments

 

 

 

Fréttablaðið, Miðvikudagur 20. Júní 2007

Nýtt myndband Páls Óskars í anda Sin City

Nýtt myndband með Páli Óskari Hjálmtýssyni við lagið Allt fyrir ástina mína hann Helga verður frumsýnt á föstudaginn og fullyrðir söngvarinn sjálfur að um "flottasta tónlistarmyndband sem gert hefur verið á Íslandi" sé að ræða. Gríðarlega mikill tími og fjármunir hafa verið lagðir í myndbandið en í því er stuðst við svokallaða "green-screen" tækni þar sem allur bakgrunnur er þrívíddarteiknaður.

"Þetta hefur verið tveggja mánaða stanslaus vinna og ég vona að árangurinn verði eftir því," segir Páll Óskar en útlit myndbandsins þykir minna nokkuð á kvikmyndina Sin City eftir Robert Rodriguez, sem markaði ákveðin tímamót í notkun slíkrar tækni.

Hannes Þór Halldórsson leikstýrir myndbandinu og þótt hann taki sjálfur ekki alveg eins djúpt í árinni og Páll Óskar segir Hannes að meiri vinna sé lögð í bakgrunninn en áður hafi þekkst hér á landi. "Það er gríðarlegur metnaður fyrir þessu verkefni og við erum að feta nýjar slóðir hér á landi hvað varðar eftirvinnslu. Grafíkin er mjög flott," segir Hannes.

Helgi Jóhannsson, ástmaður Páls Óskars, og Hlynur Ásgeirsson eru grafísku hönnuðirnir sem hafa umsjón yfir þrívíddarteikningunum sem notaðar eru í bakgrunni myndbandsins og hafa þeir varla litið upp frá tölvuskjánum síðustu daga, enda stuttur tími til stefnu. Gerð myndbandsins hefur staðið yfir frá því í miðjum apríl og er því gríðarlega mikið undir. "En við náum að klára þetta með sóma. Við sleppum því bara að sofa ef með þarf," sagði Helgi í samtali við Fréttablaðið.

Allt fyrir ástina hann Helga er fyrsta smáskífan af væntanlegri sólóplötu Páls Óskars en hljóðblöndun á henni stendur nú yfir.

MySpace.com/palloskar

- vig