Archive for April, 2007

Fokk

Posted by Snilldin Einar on April 30, 2007
Uncategorized / 10 Comments

Vill bara benda á að ég og Steinar erum greinilega fokk ljótir ef marka má þessa könnun á síðunni.

-Einar

Edit

Stainer Hgui: Vandamálið er leyst frá mínum sjónarhóli

Þegar þú þarfnast góðra að

Posted by Helgi Jó on April 29, 2007
Uncategorized / 8 Comments

Traustir vinir geta gert kraftaverk, og þegar prófin fara illa með mann þá er ekki annars að vænta en að vinir þínir noti styrk sinn til þess að róa mann niður og geri mann glaðann.

 

Tökum dæmi:

 


Helgi er hér einsamall og líður einstaklega illa og er við það að fríka út af vonleysi og áhyggjum.

 


Hér hins vegar nýtur Helgi stuðnings frá tveimur af sínum betri vinum, Smirnoff Vodka
og Íbúfen verkjatöflum, en myndin sýnir hér Helga öllu rólegri og ánægðari með lífið og tilveruna.

Við skulum vona að það endist.

 

Full fyndni

Posted by Dóri-í-Dós on April 29, 2007
Uncategorized / No Comments

Hahaha… Djöfull verð ég fyndinn á BlackOuti.

 Fyllerís fyndni
Skrítið að enginn hafi minnst á það við mig hvað ég verð skemmtilegur ofurölvi..

takk.
Dóri-í-Dós

Feis í klessu

Posted by Dóri-í-Dós on April 28, 2007
Uncategorized / No Comments

Ég: "Helvítis fokking tölva er að gera mig geðveikann" *kýli í skjáinn af öllu afli*

Frænka mín (sem á ekki að vita neitt um tölvur): "Rólegur, hvað er eiginlega að?"

Ég: "Hún er alltaf að frjósa og svo er hún svo fokking hægvirk inná milli að ég gæti alveg eins bara verið með slökkt á henni!" *lem skjáinn aftur* (hey.. það virkar)

Frænka mín: *Hugsi á svip* "Hmmm.. kannski þ.."

Ég: *Gríp frammí*   "Hahahahaha.."   *í hæðnistón* "Engar áhyggjur hún er í sambandi.." *hæðnistón lýkur* "haha"

Frænka mín: "Ég ætlaði nú bara að spyrja hvort þú værir ekki pottþétt með ServicePack 2"

Ég: *hik*  "hehe jú auðvitað…"

*Löng bið og glamur á lyklaborð*

Ég: "Fjandinn."

 

takk.
Dóri-í-Dós

USA vs. Ísland

Posted by Kjarri on April 27, 2007
Uncategorized / 14 Comments

Nú hef ég ágætis reynslu í því að sjá verðmuninn á íslandi og USA. Ég hef verið að pæla í svona alskonar hlutum hérna úti og svo heima og hvað þeir kosta og hvort það meiki eitthvað sense í þessum verðmun. Tökum bara nokkur dæmi og sjáum hvort ykkur finnst þetta eðlilegt.

Ca. 2 litrar af vodka:
Island 8700 kr.
USA 15,8 dollarar eða 1058 kr

Toyota bifreið:
Island (ný toyota corolla bifreið ) : 2.350.000 kr.
USA (ný toyota corolla, kraftmeiri og með öllum aukabúnaði): 16.000 dollara eða 1.072.000 kr.

Lítill Bjór á bar:
ísland: minnir að það sé 450 kr
USA: 2.5 dollarar eða 167.5 kr

Puma skór:
Island: ja gott gisk er svona 12.000 kr
USA: dýrustu skórnir sem ég fann var 90 dollarar eða 6030 kr.

3 litrar af bensíni:
Island: 123.8 * 3 = 371.4 kr
USA: 2.78 dollarar eða 186.26 kr.

Big Mac máltíð (large)
Island: minnir að það sé ca. 1280 kr.
USA: 4.89 dollarar eða 333.66 kr.

Alltaf gaman að skoða muninn, mér finnst þetta vera algjör klikkun en ef maður skoðar málið aðeins betur þá er þetta ekkert svo vitlaust. Þjónn á veitingastað hérna er að fá 2.75 dollara held ég í tímakaup og svo plús tips en þjónn á íslandi ólærður er líklega að fá svona 1300 kall á klst.

Ef það er eitthvað sem mæti breyta þá myndi ég segja að ríkið mætti taka skattinn af tóbaki og áfengi heima, þetta er rugl hvað áfengi er mikið dýrara heima.

Þrátt fyrir þennan verðmun þá er ísland samt betra, ég meina USA er ekki með menn eins og Dóra Dissmaster, Darra Gigadong og Einar Edit.

Létt ósofinn og nýskitinn,
Kv, Kjarri D.

*Sorry, bara baðst um þetta 

Forbidden love

Posted by Snilldin Einar on April 26, 2007
Uncategorized / No Comments

Nýlegt í bíó

 

Leikstjóri mynda á borð við Hvar er húmorinn?, Þýskur hreimur og Eldtungur frá himni kynnir hér nýjasta verk sitt Forbidden love

Myndin hefur verið í vinnslu síðustu 3 ár í samvinnu við Hedo pictures og Íslandsbanka og skarar leikurum á borð við Halldór R. Halldórsson, einnig þekktur fyrir myndir á borð við Frá jörðu.

Halldór hefur lengi verið viðriðinn kvikmyndagerð og leik og hefur ósjaldan sést án kvikmyndavélar á öxli sér.

Júlía Skagfjörð er nýliði hópsins og er ekki þekkt á íslenskum markaði, en hefur unnið við litlar smámyndir í suðaustur- Asíu síðustu ár.

Darri Freyr er þekktur fyrir hlutverk sitt í bandarísku þáttaröðinni Boston legal, þar sem hann leikur sjálfan sig.

Einnig kemur Jóhann Þórir fram í gestahlutverki sem "horfðu til framtíðarstrákurinn".

Myndin gerist á umbrotatímum í íslensku samfélagi, þrjátíu árum eftir hryðjuverkin í Bandaríkjum sem urðu þúsundum að bana.

Samfélög manna hafa breyst mikið, stökkbreytt DNA hafa gefið 2% mannkyns hæfileika sem að hingað til hafa einungis þekkst í biblíusögum. Kjarnorkusprengjum rignir yfir mannkynið og berst fólk í bandaríkjunum um saltnámur.

Stefán, leikinn af Halldóri er dimmur og þungur listamaður sem að betlar á götum Reykjavíkurborgar sem að verður ástfanginn af ríkri og fágaðri stúlku sem að flýgur heimsálfa á milli. Ást þeirra heggur þau leiftursnöggt en bæði vita að framtíð þeirra saman er óráðin. Þar sem Stefán á enga peninga eftir listanámið.

Hvernig fá þau sér íbúð?

BYR lánar þér fyrir því! Spjöllum um það á msn

Ég er farinn að læra

Venjulegur dagur á bókasafni?

Posted by Skull-Darri on April 26, 2007
Uncategorized / 3 Comments

Núna er ég búinn að vera uppi á bókasafni myrkrana á milli síðustu daga… Reiknandi stærðfræði..

Dagurinn í dag var ekkert öðruvísi… Kom uppí skóla, fór að reikna og já.. reikna.

Svo lifnar dagurinn aðeins við þegar ég fæ símtal frá honum Helga, hann spyr mig hvort að ég verði uppi í skóla á eftir, því hann ætli að læra með mér… ég svara honum játandi með bros á vör, því núna verður kannski aðeins skemmtilegra að læra. Ekki frásögu færandi þá að sjálfsögðu mætir helgi ekki fyrr en kl að verða 22 (hann hringdi kl hálf 6).

Svo þegar Helgi loks kemur, við eigum ánægjulegt samtal, svo spyr hann hvort ég nenni ekki útí sjoppu.. ég fagna þeirri uppástungu, þar sem að prófalesturinn var alveg að gera útaf við mig. Við tökum okkur rólegt rölt út á Select. Verslum og spjöllum saman á leiðinni.

Þegar við komum aftur uppí skóla, fer ég og sest aðeins við tölvuna mína, til að athuga tölvupóstinn minn.. eftir c.a. 2-3 mínútur kveður hann Bjarni mig og segist vera að fara heim. Ég held aðeins áfram að skoða í tölvunni og sný mér svo að honum Helga, sem situr mér á hægri hönd…

Mér til mikillar undrunar þá kem ég auga á svartann kassa sem stendur á borðinu mínu (tölvan mín var á öðru borði innar á ganginum, ég semsagt þurfti að fara framhjá mínu borði til að komast að tölvunni). Ég gat svo svarið það, þessi kassi var ekki á borðinu mínu þegar ég kom inn, þetta var fallegur pakki umvafinn rauðum krullu-borða. Frekar flottur fannst mér. Augljóslega brá mér svoldið í brún og giskaði strax að Júlía hefði komið með hann, ég stend upp og nálgast pakkann, virði hann fyrir mér…. Svo ákveð ég að senda Júlíu SMS til að athuga hvort hún hefði sent mér þennan furðulega pakka… Samt örlítill vafi lék mér í huga er ég nálgaðist pakkann meir. Skoðaði hann nánar, og sest þvínæst niður fyrir framann hann… Það er í raun ekkert undarlegt við þennann kassa, annað en það að hann birtist uppúr þurru á miðju skrifborðinu mínu!!

Ég hugsa með mér… hmmm… það sakar ekki að athuga hvað er í honum, ætla fyrst að taka hann upp og hrista hann (því einhvað inní mér sagði mér að það myndi sennilega eitthvað skjótast uppúr kassanum). Ég lyfti honum upp, en hann var frekar léttur, í raun eins léttur og það væri bara ekkert inní honum… Mér til ennþá meiri undrunar þá leyndist GUL-GRÆN-HVÍT-BLEIK KLESSA á borðinu, hálf blaut, í raun eins og einhver hafði skitið á borðið mitt, einhver með frekar undarlegar matarvenjur… Frekar hissa horfi ég upp, þá stendur hann Halldór þarna með Video vélina sína… þá varð mér allt ljóst..

Öll atburðarrásin frá því að Helgi hringdi í mig fyrr um daginn var sett upp, sérstaklega til að ég yrði á réttum stað á réttum tíma.. Meiraðsegja það að Bjarni kvaddi var leikið, bara til að reyna að fá mig til þess að horfa í áttina að kassanum… En allt kom fyrir ekki, ég SÁ BARA EKKI HELVÍTIS KASSANN!

Eftiráað hyggja var þetta hin ánægjulegasta upplyfting úr prófalestri, og vill ég þakka Dóra og Helga fyrir að leggja svona mikið á sig til þess að lyfta mér upp (þó svo að þetta hafi klárlega ekki verið gert mín vegna, heldur einungis til þess að sjá viðbrögðin mín við tyggjóklessunni á stærð við Kúamykju á borðinu mínu).

Venjulegur dagur á bókasafninu…

4 ára gutti sem getur húkkað fleiri gellur en við allir til samans

Posted by Kjarri on April 26, 2007
Uncategorized / 8 Comments

http://www.youtube.com/watch?v=LQPEsa5e7K0&mode=related&search

 Mér var bent á þennan og ja hann er ansi góður verð ég að segja, ég væri allavega til í að vera svona svalur bara einhverntíman á ævinni.

ef þið lesið ekki moggann

Posted by Kjarri on April 25, 2007
Uncategorized / 5 Comments

 

rlent | AP | 25.4.2007 | 21:37

Fjöldamorðinginn skaut rúmlega 170 skotum á níu mínútum

Bloggað um fréttina

Maðurinn sem varð 32 að bana í Virginia Tech háskólanum í Bandaríkjunum hleypti af rúmlega 170 skotum og myrti 30 manns áður en hann svipti sig lífi. Árásin stóð í níu mínútur, að því er lögregla greindi frá í dag. Maðurinn hafði skömmu áður orðið tveim að bana á heimavist skólans.

En lögreglan sagði rannsókn málsins enn ekki hafa leitt í ljós neinar vísbendingar um hvers vegna morðinginn, Seung-Hui Cho, lét til skarar skríða gegn samnemendum sínum.

„Við höfum rætt hugsanlegar ástæður og kenningar og hvaðeina, en við höfum engar vísbendingar um neitt,“ sagði talsmaður lögreglunnar.

Lögreglan hafi leitað í tölvuskjölum, farsímtalaskrám og tölvupóstum. Auk þess hafi 500 einstökum gögnum verið safnað í Norris-byggingunni, þar sem ódæðisverkið var framið. En ekkert hafi fundist sem gefi til kynna ástæðu verksins eða að tengsl hafi verið á milli Chos og fórnarlamba hans.

Fyrsta fórnarlamb Chos var 18 ára nýnemi, Emily Hilscher, á heimavistinni. Lögregla segir ekkert hafa komið fram sem útskýri hvers vegna Cho hafi myrt Hilscher.

Lögreglan telur að rannsókn málsins kunni að standa í nokkra mánuði.

Feis

Posted by Helgi Jó on April 25, 2007
Uncategorized / No Comments

Sorry strákar, Darri og Einar, en ég bara varð. Þið skrifuðuð báðir undir bloggið hér að neðan og fyrst þið hafið nú verið að væla seinustu daga yfir því að fólk bloggi yfir bloggið ykkar, hvernig haldiði þá að ég geti sleppt því að ná ykkur tveimur í einu höggi?

 

 

HAHAHAHAHAHAAHAH HAHAH AHA HAH AH AHA HAH AH AH AHAH AHAHAH AH AHH AH AHA HA H HAHAH AHA HAH AH AHA HAH AH AH AHAH AHAHAH AH AHH AH AHA HA

H HAHAH AHA HAH AH AHA HAH AH AH AHAH AHAHAH AH AHH AH AHA HA

HAH AH AHA HAH AH AH AHAH AHAHAH AH AHH AH AHA HA

A HAH AH AHA HAH AH AH AHAH AHAHAH AH AH H HAHAH AH

 AHA HAH AH AHA HAH AH AH AHAH AHAHAH AH AHH AH AHA HA

 

 

 

 

Double feis, eins og frægt er orðið.