Svona í tilefni þess að það styttist í jólin aftur
Archive for February, 2007
Hjónin Elsa og Jónas skella sér í skemmtisiglingu, það vill svo óheppilega til að skipið lendir í slysi og byrjar að sökkva, allir í skipinu hlaupa til og ná í björgunarvestin sín, allt í einu heyrist svo út úr herberginu hjá Elsu og Jónasi, "JÓNAS, ÉG FINN EKKI BJÖRGUNARVESTIÐ MITT" þá sést Jónas vera troða golfsettinu sýnu í björgunarvesti. bottom line: ef þú ferð í skemmtisiglingu með golfara ekki leyfa honum að taka settið með sér
Það fær mig til gráta út í annað þegar að 22 ár af lífi mínu er tekið og klippt saman í 8 mínútna vídeó en ég brosi út í hitt.
En ok, ég ætla að hafa smá getraun… Hver getur nefnt nafn allra/flestra myndanna sem að eru í þessu vídeói og þar sem að það er mjög auðvelt að svindla og kíkja á lýsinguna með vídjóinu á youtube þá vil ég fá það í réttri röð? Sá sem er fær um það hlýtur 20 virðingarstig hjá mér og því til mikils að vinna..
Sumar myndir koma oft fyrir en endilega þá bara nefna þær aftur.. þær eiga það skilið.
ps. bannað að kíkja í svör frá öðrum fyrst…
pss. Þessi nýji textaritill á blog.central er endanlega búinn að fokka þessu kerfi upp.. Til þess að setja inn þetta youtube video þá þurfti ég að afrita kóðann á youtube, búa til bloggfærslu á minnsirkus, opna nýju færsluna, copera sjálfan "object"-inn úr færslunni og pastea honum inn í ritilinn hér á blog.central… og ekki koma með eitthvað bull eins og "ýttu bara á html takkann og settu kóðann inn þar" því ég fokking gerði það en það virkar ekki….
takk.
Dóri-í-Dós
Heilahimnubólga er bakteríusjúkdómur sem er læknaður með sýklalyfjum.
Núna er ég á sýklalyfum og ein af aukaverkunum þess er heilahimnubólga.
That's like, twisted.
Hérna kemur blogg sem að ég vona að flestir lesi(þó ég viti að enginn nema kannski Bjarni geri það þar sem hann hefur bloggað um pólitík í ca. 8 ár)
Bréf til Katrínar Jakobsdóttur, Vinstri Grænnar stelpu.
Sæl, við sáum þig ræða um “aðgerðaráætlunina í kvenfrelsismálum” í Kastljósinu í kvöld. Þú ræddir þar við Formann SUS og þó hvorugur okkar geti talist hægri menn, þá vorum við sammála formanninum í þessu máli(kraftaverk gerast)
Hann spurði þig meðal annars : “ef á að setja lög um að konur og karlar eiga vera jafn mörg á þingi, á þá ekki líka að setja lög um að ákveðin prósenta þingmanna þurfi að vera samkynhneigðir, eða ófaglærðir”
Þú svaraðir þessu ekki, í það minnsta ekki nógu afgerandi og því spyrjum við einfaldlega, hvar viltu setja mörkin?
Afhverju eiga að gilda svona boð og bönn um konur og karla, afhverju ekki líka um heyrnarlausa, eða feita eða mjóa? Ef að einn tíundi þjóðarinnar er samkynhneigður, ættu þá ekki einn tíundi alþingismanna að vera samkynhneigðir fyrst að konur og karlar eiga að vera jafn mörg á þingi? Þetta er ekki útúrsnúningur þar sem samkynhneigðir er mjög stór þjóðfélagshópur og afhverju ættu ekki að gilda 1/10 lög um hann ef 50/50 lög ættu að gilda um konur og karla?
Núna er eitthvað sem heitir jafnræði í gangi, og ég sé ekki hvernig það getur verið ósanngjarnt. Það er alltaf hægt að finna eitthvað að öllu, en er ekki réttlátast að konur og karlar eigi að hafa sömu möguleika?
Ég sá einu sinni athyglisverða grein eftir kynjafræðing þar sem hún bar saman uppeldi hjá strákum og stelpum. Þar kom meðal annars fram að stelpur væru minna hvattar áfram að vinna sem einstaklingar sem börn og auk þess ekki ýtt jafn mikið á þær að gera eitthvað upp á þeirra einsdæmi og meira væri lagt í að þær gerðu allt saman í hópum. Strákar voru aftur á móti meira hvattir áfram sem einstaklingsverur. Þetta fannst kynjafræðingnum, sem var kona, hafa áhrif á sjálfstraust kvennana og nefndi það sem mögulega ástæðu fyrir því hvers vegna konur væru ekki jafn áberandi í stjórnunarstöðum.
Hvort sem þessi kenning er rétt eða ekki, og auðvitað er þetta ekki algilt, finnst mér alls ekki rétt að setja reglur um svona mál. Tökum sem dæmi eitthvað sem gerðist í Bandaríkjunum þar sem settar voru reglur um 50/50 skiptingar í íþróttir í háskólum. Sem sagt, það þurftu að vera jöfn kynjahlutföll í öllum íþróttagreinum. Þetta leiddi af sér að Wrestling, Ballet og m.a. kappróður lagðist af á mörgum stöðum og afburðaríþróttamenn þurftu að hætta að æfa. Háskólar reyndu sem þeir gátu að fá konur og karla inn í íþróttir þar sem þá vantaði, en náðu ekki. Sama er ég mjög hræddur um að gæti gerst með boðum og bönnum um kynjakvóta hér á landi. Hugsunin er rosalega falleg, að konur og karlar séu jafnir, en það getur haft mjög slæmar afleiðingar að innleiða lög um það.
Undafarna áratugi hafa konur og karlar með feminista í fararbroddi verið að meitla niður þann stall sem karlkynið hefur staðið á í áraraðir(sem er, ekki misskilja, mjög gott). Svo nú loksins þegar að upp er að alast kynslóð sem að mögulega gæti staðið upp og haldið uppi merkjum jafnréttis, þá finnst þér og félögum þínum í Vinstri Grænum samt tímabært að koma fram með jafn þveröfuga hugmyndafræði og raun ber vitni. Í kastljósinu sagðiru að Jafnrétti væri ekki nóg og vilt nota það sem réttlætingu fyrir því að beita óréttlæti og jafn hálvitalegu hugtaki og kynjakvóta. Það er ekki jafnrétti ef það er þvingað fram með boðum og bönnum og reglugerðum. Þá ræður enginn neinu lengur, og ekki mikið jafnræði lengur þar á ferð.
Reglugerðir eru að sjálfsögðu nauðsynlegar og ágætar sem stuðningstól en jafnrétti verður að myndast náttúrulega með skoðanabreytingu og almennri vitundarvakningu í samfélaginu, en svona hugsunarlaus reglusetning verður einungis til þess að samfélagið missi trúna á því sem að þið eruð að berjast fyrir.
Jafnrétti mun aldrei verða náð fram með óréttlæti. Óréttlæti er óréttlát og aldrei verður það tekið í sátt. Og það er nákvæmlega það sem að kynjakvóti og óréttlæti er þrátt fyrir góðan vilja á bakvið reglusetninguna. Kommúnismi er gífurlega rómantísk hugmynd en gengur ekki upp í raunveruleikanum. Það sama gildir um hugmyndafræðina á bakvið 50/50 reglur. Þú sérð fyrir þér hóp af 50/50 fullkomlega jafn hæfu fólki en í raunveruleikanum mun það aldrei verða þannig með þvingunum.
Hvað um t.d. ef einstaklingur sem sækir um að komast á þing er kannski miklu hæfari en einstaklingur sem fer á móti honum, en bara af því að hann er af því kyni sem er í meirihluta á þingi, að þá er honum neitað inn á þing. Gaman væri að sjá hvernig þú réttlætir þess háttar mismunun? Hvar er t.d. réttlætið og jafnræðið í því sem hefur verið barist svo fyrir seinustu áratugina?
Kv, Helgi og dóri.
Hvaða fokking vesen er þetta á íslandi. Ætlar Íslenska ríkisstjórnin að fara láta eins og einhver helvítis barnapía þegar það kemur að því hvernig íslendingar eyða peningunum sínum og skemmta sér. Ég er orðinn fokking þreyttur á svo kjaftæðis lögum sem banna mér að gera það sem ég vill. Ég er að tala um veðmálin, maður á víst að geta fengið 2 ár í fangelsi fyrir að halda skitið pókermót í húsinu sínu. Hver annar en ég á að ráða því hvað ég geri við peningana mína, hvernig ég fer að því að eyða þeim og hvar ég geri það. Þessi lög eru einfaldlega stórt „ÞIÐ ERUÐ HEIMSK“ skilti frá ríkinu til þjóðarinnar. Ég skal segja ykkur það að um leið og ég kem á þessa sístækkandi eyju okkar mun ég mótmæla með því að halda pókerkvöld svona 2 til 3 í mánuði þangað til að ég er búinn að tapa öllum peningunum mínum til ykkar. Þetta er svo mikið rugl að segja að veðmál séu eitthvað verri heldur en hver önnur keppni. Við skulum byrja til dæmis á golfi. Ég skelli mér í golfmót borga 4000 kall fyrir það og keppi í 4 til 5 tíma. Ef ég vinn þá labba ég í burtu með eitthvað voðalega verðmætt og allir hinir labba heim 4000 kalli blankari. Ef fótboltalið tekur þátt í móti borgar það þáttökurétt og ef það vinnur kemur það til baka með verðlaun, öll hin liðin fara heim grátandi og fátækari. Og svo er það gamli góði pókerinn, þú mætir á svæðið með þann pening sem þú ert tilbúinn til að eyða og sest við borðið með þinn bjór. Þú spilar í svona 4 tíma og annað hvort ertu sóttur, tekur leigara eða labbar heim, því þú ert fullur, með allan helvítis pottinn eða ekki. Hvernig er það öðruvísi en allt hitt helvítis ruglið. Það er bara enginn munur. Og by the way þá er ógeðslega gaman að spila póker með vinunum og að borga skitinn 1000 kall til að sitja og drekka í 4 tíma og skemmta sér er ekki neinn peningur svona miðað við svona týpíska bíóferð með kærustunni eða út að borða eða eitthvað þannig. Svo að fuck the rules we are fucking playing…..Kv, Kjarri
Ég kynntist nýjum vin í gærnótt. Hann er hvítur og lófastór og heitir Leak Detector. Honum þykir vænt um fjölskyldu mína og eigur okkar og vakti mig þess vegna klukkan 3 í gærnótt með angurværu öskri. Þannig vildi hann segja mér að uppþvottavélin okkar læki.
Leak Detectorinn, sem lítur nokkurn veginn svona út

Við eigum það sameiginlegt að drekka vatn.
Leak Detector virkar á eftirfarandi hátt: Ef það kemur vatn inn á hann þá byrjar hann að pípa ógurlega. Síðan þegar vatnið er farið, þá slokknar á honum.
Horfði á Ísland í dag rétt áðan þar sem talað var um áhrif tónlistarmyndbanda og auglýsinga á líkamsímynd ungra stúlkna. Í sófan voru mættar þær Ingunn Ásta Sigmundsdóttir og Eva Harðardóttir sem að eru nýbúnar að gera BA verkefni um málefnið. Viðtalið má sjá hér en í stuttu máli þá sögðu þær að ekki skipti máli hversu lengi stúlkur horfðu á tónlistarmyndbönd heldur er það áhorfið sjálft sem að hefur mótandi áhrif á líkamsímynd unglingsstúlkna og að fyrirmyndir þeirra væru þvengmjóar og léttklæddar konur líkt og Paris Hilton.
Ég hef tvær athugasemdir við þetta viðtal og þá BA verkefnið í leiðinni sem ég ætla að koma með hérna. Ég er ekki búinn að lesa BA-ritgerðina. Hún er örugglega mjög lekkert.
Í fyrsta lagi.. Eftir að viðtalið byrjaði og þær stöllur hófu að kynna niðurstöðurnar sínar þá byrjaði kunnugleg tilfinning að skríða upp mjóbakið á mér. Þetta er sama tilfinning og þegar ég sé tilfinninganæma umfjöllun um Önnu Nicole eða Steve Irwin eða þegar að "Parental Control" er í sjónvarpinu. Þið þekkið þetta líklega sem kjánahroll. Ég var ekki alveg viss afhverju en unglingsystir mín benti mér listalega á það þegar hún sagði um fréttina "Hey já.. Þær komu eitthvað í skólan hjá okkur og voru að spyrja okkur og tala við okkur um of mjóar konur og pressu að vera eins og stelpurnar í myndböndunum en svo eru þær sjálfar bara gegt mjóar og í þröngum fötum". Auðvitað, þarna sátu þær báðar, heitar, vel málaðar en jú ágætlega klæddar og töluðu með nokkrum hneykslunartón um hvað ungar stúlkur teldu að þær yrðu að vera mjóar og flottar á meðan það var nokkuð augljóst að þær Ingunn og Eva eru ekki ókunnugar ræktinni. Ég veit að auðvitað áttu þær ekki að vera ílla til hafðar og feitar en ég spurði sjálfan mig hvernig ætli spurningalistinn hafi verið upp settur? Var bara spurt um tónlistarmyndbönd og megrunarauglýsingar eða var líka spurt um flottar, vel til hafðar og sexý konur í fréttunum og/eða í stjórnmálum eða annarsstaðar í sviðsljósinu? Einhverra hluta vegna held ég að það hafi verið fócuserað á tónlistarmyndbönd.
Svo í öðru lagi þá gerðu þær ekki greinarmun á konum og bitches en það er eitthvað sem að þær og þá líklega unglingsstúlkur líka þurfa að hafa á hreinu. Fyrir þá sem ekki vita þá er semsagt til tvær tegundir af kvennkyni: Konur og Bitches. Konur eru konurnar og stelpurnar sem þú sérð dagsdaglega í skólum sem og annarsstaðar í samfélaginu þær ganga um, hugsa, verzla og gera aðra hluti sem konur gera. Bitches hinsvegar eru gellurnar sem þú sérð í tónlistarmyndböndum, klámmyndum og rapheimildarmyndum. Bitches eru alltaf heitar og lítið klæddar. Bitches eru aldrei í vondu skapi og það eina sem þær þrá er typpi og typpi sem er áfast við gaur sem á mikinn pening, flottan bíl og gulltennur.

-Tvær Bitches í góðu stuði-
Bitches þrífa alltaf bíla í svo til engum fötum, hvítum bol og skvetta vatni á hvora aðra.. Í rauninni þá þrífa þær yfirleitt hvora aðra meira en bílinn. Bitches hlaupa bara í slow-motion og eiga ekki pirrandi tengdamæður. Ég held meira að segja að Bitches eigi ekki einu sinni mæður, þær eru bara búnar til í einhverri rannsóknarstofu. Bitches eru ekki venjulegar konur og það á ekki að líta á þær sem slíkar því þær eru alveg sér kapituli út af fyrir sig.
Svo virðist vera (samkvæmt þeim stöllum) að Bitches séu ekki nema 10% af kvennkyni heimsins.. Það reyndar finnst mér ekkert lág tala því að meirihluti heimsins er asískur og það eru ekki til asískar bitches því þær eru of gáfaðar.
Það að ungar stúlkur vilji vera Bitches er náttúrulega algert rugl því að annaðhvort fæðistu Bitch eða verður Bitch eftir mörg ár af aðgerðum en til að stoppa það þýðir ekki að gera einhverja rannsókn til að mæla afhverju eða halda fyrirlestra með útlitssamanburði .. Það eina sem virkar er að sýna þeim að Bitches eru ekkert frekar raunverulegar en jólasveinninn… og já, það myndi líklega hjálpa ef að þær sem benda á vandamálið séu hluti af 90% því að unglingsstúlkur nefnilega skilja hræsni…
takk.
Dóri-í-Dós
p.s. annað ár mælist af lífi mínu í dag.. Það er hresst
Ég elska inn að beini Vörutorg á Skjá Einum
Þegar er verið að auglýsa líkamsræktartæki:
"Loksins er komið tæki sem þjálfar alla vöðva líkamans á sama tíma". Nokkrum sekúndum síðar segir kynnirinn aftur "Jú, tækið reynir á næstum alla vöðva líkamans í einu"
Fyrir utan jú að báðar setningarnar eru jú harðari lygi en prestur á leikvelli. (ójes)
Og að lokum:
"Komdu þér í frábært form á fáeinum dögum"
"Á flestum heimilum eru til inniskór og inniskór eru til í flestum stærðum og gerðum". Maður fær svona upplýsingar ekki hvar sem er.
P.s Dóri á afmæli eftir 3 daga. Er ekki málið að halda surprise partí? Hittumst á næstu dögum og ræðum það svo hann viti ekki af þvi.
Ég hef ákveðið að taka saman svona allt það mikilsverða sem ég hef gert í lífi mínu hingað til, þetta er svona mín leið til að kljást við það að við erum allir orðnir svo gamlir að hármissir er farinn að hrjá marga okkar, og þar á meðal mig. Fyrsta stigið er að sætta sig við ellina.
Ég er að reyna núna að muna það fyrsta mikilvæga sem ég hef gert, en það er erfitt að lenda á einhverju einu, en svona það sem ég enda á var þegar ég málaði mynd í 6. bekk grunnskóla sem endaði á mynlistarsýningu og lenti í 9. sæti….alveg magnað.
Eftir það var allt upp á við, sendi inn ljóð í 7. bekk og var það gefið út í einhverju skólariti, heimsfrægðin alveg að verða að raunveruleika.
Þegar ég var svona 13 ára….þá sprengdi ég næstum því pulsuvagn með að kasta snjóbolta í gasgrillið þeirra. Næstum búinn að drepa tvo menn, en því miður varð ekki svo, þannig að það var aldrei skráð í neina annála.
13 ára lærði ég að rúnka mér.
Eitt sem stendur uppúr var þegar fermingin var að nálgast og síðasta fermingaræfingin var að nálgast, og nóttina áður gisti ég heima hjá æskuvini mínum og endaði það með að við vorum að spila GTA(nb. Þetta var leikur nr. 1) alla nóttina yfir serial kapal. Svona kl 8 um morguninn erum við svangir og opnum alla skápa í eldhúsinu og finnum einhvern 80% vodkaskratta og ákveðum að smakka þetta, og blöndum 50/50 út í kók….sem var soldið sterk, svo við tókum það og blönduðum því öllu 50/50 út í sprite. Eftir það varð það svosem drykkjarhæft.
Við kláruðum 2L af þessu sulli og urðum rúllandi fullir, aldrei kynnst Bakkusi áður(elska þig Bakkus)
Kl 12 á hádegi fatta ég að ég á að vera mættur út í kirkju á síðustu fermingaræfinguna, með fulla kirkju af stoltum foreldrum. Svo að ég hleyp þangað eins hratt og ég mögulega get, sem var frekar erfitt miðað við hvað ég var ógeðslega fullur, og næ þangað á 10 mínútum, skelli mér í fermingarskokkinn og hoppa í röðina og labba yfirvegaður og fullur af guðlegri ást inn kirkjugólfið og fer með mínar línur og geri þetta allt voðalega vel. Held ég.
16 ára byrja ég að reykja.
17 ára fæ ég að ríða.
Tvítugur útskrifast ég úr menntaskóla og smakka Absinth í fyrsta skiptið….kláraði ekki flöskuna.
21 árs hætti ég með kærustunni eftir að hún fór að tala um trúlofun og börn, besta ákvörðun sem ég hef gert….
síðan þá ekkert mikilvægt, jújú fór í skóla aftur og svona.
Orðinn 22 ára og hef ekkert afrekað í heilt ár sem er þess virði að minnast á. Reyndar hef ég ekki afrekað neitt mikilvægt á ævinni nema drekka, reykja og ríða….og jú er hættur að reykja svo að þetta er allt á niðurleið núna.
En þetta var mitt líf. Vona að þið skemmtuð ykkur að lesa þetta, þar sem ég hef ekkert skemmt mér neitt rosalega að komast að því hvað ég lifi innihaldslausu lífi.