Gífurlegt hneyksli skekur nú bókmennta- sem og listaheiminn allan. Eins og fréttastofa Dagdrauma greindi frá núna rétt fyrir jól þá hefur stórvirkið "Sock my cock, rekkjusögur Jóhann Þóris í sokkum." öllum að óvænt trónað á toppi allra metsölulista og er þegar þetta er skrifað einungis örfáum eintökum frá því að slá út Biblíuna sem mest selda íslenska bók allra tíma. Bókin er einnig sú fyrsta í veraldarsögunni sem hefur verið tekin inn af bókaklúbbi Opruh áður en hún hefur verið þýdd yfir á ensku.
Höfundur þessa óvænta smells er eins og áður hefur verið greint frá Þeh nokkur Þorleifsson, rólegur og feiminn strákur með heillandi stam og lítinn bláan stein sem hann skilur aldrei við, en hann hefur þrátt fyrir lágan aldur sinnt listinni á hina ýmsu vegu og með því vakið meðalmanninn til umhugsunar um sinn eigin dauðleika. Meðal verka hans má nefna gjörninginn "Hjarta Mitt Dælir Hinu Svartasta Blóði/Meðvirkni Meðvitundar" en þar hætti hann að anda þar til að það leið yfir hann, Expressionisma verkið "Hvað af höfði mér fellur, Höfðalíki hvílir" þar sem safn hans af höfuðfötum var nelgt upp með 9 tommu nöglum en það er einmitt einnig lengdin á getnaðarlimi hans og svo er ekki hægt að enda yfirlit yfir verkum hans án þess að nefna félagsfræði verkefnið "Upp í hundrað eða Dauði!".
Bókin sem rokið hefur út hraðar en ellitefjandi krem úr fóstrum í Beverly Hills fjallar líkt og titillinn gefur til kynna um sannsögulega reynslu Jóhanns Þóris nokkurs af ástarmökum og þá nánar tiltekið þá staðreynd að hann tekur aldrei af sér sokkana er hann smyr upp kvennpeninginn.
Í kjölfar gífurlegra vinsælda bókarinnar hefur skapast umgangsmikil umræða á netinu um sannsögli hennar. Gífurlegur fjöldi kvenna á barnaland.is heldur því fram á spjallborði vefsins að þær hafi aldrei orðið varar við neina sokka. MistyTopB42 segir "Málið er nú bara svo einfalt að ef hann hefði verið áfram í sokkunum þá hefði ég hent honum út í þeim einum klæða", Luvebrrd19 tekur undir og bætir við: "Það eina á svæðinu sem tengist sokkur er smokkur.. Og hann var ofan í skúffu!"
Háværasta gagnrýnisrödd bókarinnar hlýtur þó að teljast vera Jóhann Þórir Þorleifsson sjálfur en á heimasíðu hans blog.central.is/amigos bloggar hann daglega um stöðu málsóknar hans gegn bókinni, útgefanda hennar og Þeh Þorleifssyni sjálfum. Á heimasíðunni hefur hann einnig birt mynd sem hann kallar "sönnun á því að [ég] (Jóhann) hyl ekki táslurnar mínar með sokkum þegar ég er að setja hann".

-Sönnun þess að Jói "Sokki" ekki?-
Glöggir segja þó að þetta sé einungis fótur GILF-sins á myndinni
Jóhann heldur áfram og spyr heimspekilegu spurningarinnar "Hvernig ætti ég þá að finna táfýluna til að aðstoða mig með stinningu?"
Fréttastofa Dagdrauma leitaði svara hjá Þeh Þorleifssyni í alla nótt en hann varðist svara. Þó lét hann hafa eftir sér að "Bókin er fullkomin eins og hún er, Hvað er eiginlega sannleikur? Ætlar þú að skilgreina það fyrir mig? Hvað ert þú?". Eftir þetta skellti hann á og vökvaði vafalaust bláa steininn sinn.
Hver svo sem sannleikurinn er er ljóst að "Sock my cock, rekkjusögur Jóhann Þóris í sokkum." er meistaraverk og yfirgnæfandi risi í íslenskri svo og erlendri bókmenntasögu þar sem að bókin verður sú fyrsta í veraldarsögunni til að verða þýdd yfir á öll tungumál heimsins. Spennandi er að sjá hvort að Þeh Þorleifsson taki á ásökunum í sinn garð í framhaldi bókarinnar sem bráðum verður gefið út en kunnugum þykir líklegt að hann þrói listina bara áfram og leyfi gagnrýnendum að rífast um það sem engu máli skiptir.
Ekki náðist í Opruh í dag vegna þessara frétta en talsmenn segja að hún sé á spítala með "Hægðar- og Kvennavandamál"
Þetta hefur verið brjótandi fréttaskot frá Fréttastofu Dagdrauma
takk
Dóri-í-Dós