Archive for September, 2006

Meðlimur dagdrauma dæmdur sekur eftir að hafa bloggað keðjubrandara

Posted by Kjarri on September 29, 2006
Uncategorized / 1 Comment

Síðasta færsla var fjarlægð af blogginu vegna ásakana um keðjubrandara. Þar sem afbrotamaður er erlendis og var ekki meðvitaður um núvernadi keðjubrandara íslands biðst hann afsökunar á þessu lagabroti. Vegna afbrots á reglu númer 4 þarf afbrotamaðurinn hlusta á 2 klukkutíma af fimmaurabröndurm frá Darra. Þar sem afbrotamaður var ekki var um þennan keðjubrandara sleppur hann við að þurfa að heyra "mamma þín" milli hvers og eins brandara.

Við biðjumst velvirðingar á þessari hryllilegu lífsreynslu sem þið lesendur þurftuð að ganga í gegnum.

Stálfskipaður dómari í mínu eigin máli,
Kjartan Dór Kjartansson

Myrkur

Posted by Dóri-í-Dós on September 28, 2006
Uncategorized / 3 Comments

Hjálp, ég sé ekki neitt… Hvert fóru allir?

I feel great pleusure sitting in the dark with nothing but myself……

Posted by Jóhannsson on September 27, 2006
Uncategorized / 8 Comments

Rakst á þessa skemmtilegu grein áðan og mér finnst tilvalið að við slökkvum allir ljósin heima hjá okkur i virðingu við myrkrið…..

Innlent | mbl.is | 27.9.2006 | 12:25

Myrkvað víða um land

Annað kvöld klukkan 22:00 – 22:30 verður slökkt á allri götulýsingu á höfuðborgarsvæðinu, frá Akranesi til Reykjanesbæjar og á öllum Suðurnesjunum. Dalvíkurbyggð, Borgarbyggð og Fljótsdalshérað taka einnig þátt.

Í fréttatilkynningu kemur fram að Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur mun lýsa himninum í beinni útsendingu á Rás 2.

Allir landsmenn eru hvattir til að taka þátt og slökkva ljós í heimahúsum. Enn fremur eru fyrirtæki til að slökkva á allri sinni lýsingu.

Haldið verður stjörnuteiti í Elliðaárdalnum í tilefni myrkvans á fimmtudaginn við minjasafn Rafstöðvar við Elliðaár. Það hefst klukkan 21:00 og stendur fram eftir kvöldi.

…………
"Mun ég þá og þegar njóta myrkursins með þér, hver sem þú ert, sem situr í myrkrinu á kvöldin og vakir yfir mér" ´
- _Jóhann Þórir_
Hvet ykkur svo alla að mæta með mér á óákveðin stað og njóta myrkursins…
kv. _Jóhann Þórir_

Modified 13 year old blog

Posted by Dóri-í-Dós on September 26, 2006
Uncategorized / 5 Comments

Hæææj;;!*

Já halló allir þetta er Dóri hér!!” ég ætla að segja ykkur frádeginum mínum í dagJ..já ég vaknaði klukkan 7:15..og klæddi mig burstaði fór síðan yfir og lagaði te svo lagði ég á stað klukkan 7:40 af því að ég nennti ekki að vera fastur í umferð í 20 mínútur.. svo þegar ég mætti í tímann var farið yfir próf sem ég vann heima, ég var sko með fullt rétt,,þannig ég var bara að hanga í sætinu með einari,,svo fór ég ínesti og,,eftir það fór ég í bíltúr upp í vinnu og var að brenna af jörðu á disk til að skila inn í stuttmyndasamkeppni 0..mmmm,,;;nenni samt ekki að segjaallt frá því en svo var ég og helgi að tala við pródúser fyrir aðra mynd..geðveikt,,en ég þurfti svo að drífa mig upp í skóla að lesa klukkan 120..já svo eftir það fór ég og einar og jói að lesa meira og geranákvæmlega ekki neit annað…og svo héldum við bara áfram að lesa..haha..allveg svartamirkur þar og þetta er sko gett leiðinleg lesning…við ætlum að gera eikka sonna áfram fram að jólum…=)..en svo sé é gekki fram á að gera neitt annað næstu árin..svo kom ég heimog ég fór að læra og borða smá,,og núna er ég bara hér ..en verð að fara að læra
Bææj!!”

edit: Allstaðar þar sem ég segi læra eða lesa stóð kynlíf áður

Stainer.no

Posted by Dóri-í-Dós on September 23, 2006
Uncategorized / No Comments

www.steinar.no

Hvernig líst ykkur á?

Stainer.dk

Posted by Helgi Jó on September 23, 2006
Uncategorized / 7 Comments

www.steinar.dk

Hvernig líst ykkur á?

becoming a southern redneck

Posted by Kjarri on September 22, 2006
Uncategorized / 2 Comments

Nú er búíð að vera allt vitlaust að gera hjá mér síðustu 2 vikur. Próf og golf alveg vilt og galið. EN það er ekki það mikilvæga. Það mikilvæga er fríið. Ég fer svo langt að segja að "hvernig þú eyðir fríinu þínu lýsir hvernig persóna þú ert". Ég kynntist til dæmis jóa fullur, dóra líka, helga líka, Steinari ójá þegar ég var ekki fullur þá ætlaði ég að drepa hann með skíðunum sínum en síðan drakk ég með honum og núna elska ég kvikindið. Darra kynntist ég í tíma með því að taka mér frí frá lærdóm og vera að henta pappírsboltum í staðinn, Braga kynntist ég með því að taka mér pásu frá dönskugerð og borðaði aðeins með honum. Og Einari kynntist ég í prófunum en ekki meðan ég var að læra, ég held nú síður. Ég kynntist honum frekar þegar við vorum að gera eitthvað allt annað en að læra, eins og að tékka á öllum 3 bekkjastelpunum á nfvi.is, já öllum. Svo að ég skal stoltur segja að ég er hver ég er út af því að ég kann að eyða fríinu mínu rétt.

Núna þegar ég er í Louisiana þá hef ég ekki kost á að vera eyða fríinu mínu með ykkur þannig að maður verður að finna sér aðrar lausnir. LOUISIANA LAUSNIR. Þar sem ég er í louisiana verður maður að fylgja hefði, þið vitið:
The image “http://www.cultural-expressions.com/thesis/confederate.gif” cannot be displayed, because it contains errors.

Þess vegna ætla ég að fara horfa á svona á laugardaginn:
The image “http://www.truckworld.com/Monster-Trucks/Monsters-Monthly/2003-dec/maximum.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

Og svo, næsta fimmtudag ætla ég að fara hlæja mig máttlausan af þessum manni:
The image “http://www.orbitcast.com/archives/larry-the-cable-guy.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

Larry the cable guy og monster trucks, ef ég á ekki eftir að fitta inn eftir þetta þá er það bara ekki hægt að láta íslending fitta inn hérna.

upfærsla frá suðuríkjunum lokið, takk fyrir
Kjarri

The Tenor’s

Posted by Helgi Jó on September 20, 2006
Uncategorized / 5 Comments

Þetta er Tenor-fjölskyldan. Pabbinn, Tedd Tenor, var eitt sinn markaðstjóri verslunarfyrirtækis í Frakklandi en söðlaði um fyrir 5 árum og fór þess í stað að njóta tímanum með fjölskyldunni. Líf Tedd breyttist og blóðþrýstingurinn lækkaði að sama skapi, enda hafði hann þarna fundið tilgang lífsins. Hann var velstæður eftir velheppnaðan starfslokasamning hjá verslunarfyrirtækinu og gat því eytt öllum sínum tíma með fjölskyldunni. En skjótt skipast veður í lofti. Einn morguninn þá vaknar Tedd við hliðina á konu sinni látinni í rúminu. Tedd verður bjargarlaus af sorg og læsir sig inn í herbergi ásamt látinni konu sinni í nokkra daga áður en her manns þarf til að rífa hann frá henni. Mikill var gráturinn næstu vikurnar en dætur hans veita honum ómældan stuðning enda hafði hann verið þeim góður faðir og þá sérstaklega seinustu ár eftir að hann hætti hjá fyrirtækinu. Tedd nær sér því fljótlega og kaupir konu frá Spáni til þess að bæta upp missinn. Hann ákveður að hann geti ekki búið á sama stað því að allt minni hann á konu sína og kaupir sér snekkju og leggur af stað í ferðalag ásamt fjölskyldunni og aðkeyptu konunni. Ferðalag sem þau eru enn á. Eins og hann segir sjálfur "We are on a journey, journey of a lifetime. We are inhaling all the goodness in the world." Þau hafa ferðast, börnin hans og aðkeypta konan um allan heim og fagna fjölbreytni og tilverunnar sem við lifum í. Þau segja að heimurinn hafi opnast fyrir þeim öllum á gjörbreyttan hátt. Á myndinni hér að ofan sést Tedd ásamt Alice, Clare og Aim(aðkeypta konan) þar sem þau eru á siglingu við Íslandsstrendur en þar komu þau við fyrr á þessu ári. Tedd og hans fjölskylda fagna eins og við endurkomu www.bjarniolafur.com og vona að sú síða muni halda áfram að lifa. Lifa eins og minningin fyrrverandi konu Tedds.

Smá innskot

Posted by Skull-Darri on September 19, 2006
Uncategorized / No Comments

Núna er ég staddur uppi á þjóðarbókhlöðu og er að gera heimadæmi í efnisfræði, var að ljúka við einn kafla og ákvað að taka mér svona eins og 5 mínútna pásu fyrir vel unnið verk. Ákvað ég þá að setja inn smá öl pælingar eftir nokkra merkustu menn okkar samtíma og fyrir þann tíma líka ….

Kv. Efnisfræðingurinn

Stainer.is

Posted by Stones Mind on September 17, 2006
Uncategorized / 7 Comments

www.steinar.is

Hvernig líst ykkur á?