Eins og hver Dagdreymari ætti að vita fórum við kærustuparið í rómantíska ástarferð til Tyrklands í byrjun mánaðarins. Ég hef komið til tveggja annarra sólarlanda; Portúgal og Mallorca. Eflaust eru ekki allir sammála mér en Marmaris, litli Tyrkneski ferðamannabærinn sem við fórum til, var engu líkur. Í raun skiptir staðsetningin ekki öllu máli, ég er engu nær um Tyrkneska siði, hætti og svoleiðis enda slétt sama… Þarna er alltaf gott veður (yfir ferðamannatímann), fallegt landslag (miðað við sólarlönd), vingjarnlegt fólk og allt, gjörsamlega allt, snýst um að gera túristunum til geðs. Það eru óspjallaðarlöggur út um allt sem virðist leiða til þess að engu er stolið. Maður lifir eins og konungur fyrir 2.500 kr á dag. Það er nóg að rétta upp hönd á ströndinni og maður fær ískaldan bjór í glansandi króm fötu hálfullri af ísvatni. Vissulega var okurverð fyrir þá þjónustu, hver bjór á rúmar 200kr. Piparsteik (mitt á milli Argentínu og Hereford í gæðum) 1000 kr með öllu meðlæti (á dýrasta veitingastaðnum vissulega, íslendingar láta ekki bjóða sér annað). Ég skildi myndavélina eftir heima (á Íslandi, fyrsta myndavélalausa vikan mín í… langan tíma) og læsti gemsann inni í öryggishólfi. Mitt erfiðasta verk alla ferðina var að ákveða hverskonar steik ég fengi í kvöldmatinn að hverju sinni. María þurfti að blása hárið sitt daglega sem verður að teljast töluvert meira afrek, samt ekki.

Sætu stelpurnar: María Sif, Matta og Silla, EKKI partýsysturnar
En jæja, partýsysturnar. Sko, við María kynntumst frábærum fjórmenningum sem voru á sama hóteli og við. Með söng á svölum (Sameinumst hjálpum þeim) og tilheyrandi tókst okkur að fá lögregluhótun og það allt saman ef við lækkuðum ekki í okkur, frekar hefðbundið fyrir ungt fólk í sólarlöndum. Þrátt fyrir það vorum við ekki partýfólkið á hótelinu. Ónei, partýsysturnar voru þrjár íslenskar systur sem rúlluðu inn í lobbíið milli 6 og 7 á morgnanna, yfirleitt með mismunandi Tyrkja á eftir sér. Það sem gerir þetta sérstaklega óvenjulegt er að tilefni Tyrklandsfarar þeirra var 40 ára afmæli einnar þeirra, sem ég hef öruggar heimildir fyrir því að sé ekki elst af þeim systurm. Klæðnaður þeirra var í "Britney Spears fyrir óléttu" stílnum, glennulegir magabolir með blingbling og allt of stutt pils. Álíka spánskt og hestur í sokkabuxum. Svo sáum við þær á ströndinni á daginn í góðu yfirlæti tyrkneskra kyntrölla (nb ekki sömu og sáust með þeim kvöldið áður) ýmist á sólbekkjum eða í eldheitu keleríi í sjónum. Í Marmaris er gata sem heitir Bar Street, þröng gata stútfull af klúbbum. Samkvæmt slúðrinu sem gekk um hótelið (og reyndar samtali við eina þeirra) voru þær að djamma inni á einhverjum þeirra. Eftir því sem barþjónarnir á hótelinu sögðu mér er Extacy (er það ekki skrifað svona?) jafn algengt á klúbbunum og áfengi, ekki það að ég sé að gefa eitthvað í skyn… Bara einkennilegt að fertugar, ja segi ekki kerlingar, endist á djamminu lengst af öllum. Þess má til gamans geta að þær eiga allar börn, en engin þeirra á mann.
Og já, ég geri mér grein fyrir því að Ísland er lítið og nokkuð líklegt er að einhver systranna eigi eftir að sjá þetta blogg, one way or another. Smá ráðlegging til þeirra. Næst þegar þið ætlið í svallferð til útlanda, farið á eigin vegum (ekki með ferðaskrifstofu) á stað það sem Íslendingar eru ekki þekktir fyrir að leggja leið sína. Svona lagað spyrst út.
Eitt að lokum, Plúsferðir eiga hrós skilið fyrir toppferð á ótrúlegu verði. Vonandi er ég ekki að svindla á neinum blogg reglum, er amk. að gera mitt besta.
- Stainer Hgui