Archive for June, 2006

Störf .. frh.

Posted by Dóri-í-Dós on June 29, 2006
Uncategorized / 5 Comments

Já, Áfram halda vangaveltur mínar um störf. Núna er ég hinsvegar að spá í launamálum mismunandi starfa. Í búðarvinnu ertu annaðhvort með fast tímakaup og svo yfirvinnu eða ákveðnar vaktir með fyrirframákveðnum launum. Á sjó og annarsstaðar færðu bara borgað eftir því hvernig fiskar. En hvernig ætli þetta sé í klám bransanum?

Nú eru nefnilega nokkrir möguleikar í stöðunni. Einbeitum okkur fyrst að kjörum kvenna innan stéttarinnar (þar sem að ég er gallharður stuðningsmaður jafnréttis). Segjum sem svo að ein sílikonbomba ráði sig í vinnu hjá klámmyndaveri. Það þýðir að hún er bara í venjulegri 6 til 9 vinnu og á föstum launum og mætir bara á nýtt sett á hverjum degi. Auðvitað bætist svo á það yfirvinna ef að farið er yfir ákveðin typpafjölda og svo áhættukaup ef að unnið er án smokks eða ef að það á að cumma í andlit og slíkt. Hún væri að öllum líkindum með sjúkratryggingu og færi frítt til kvennasjúkdómalæknis svo jafnvel ef hún er nógu góð að kyngja þá fengi hún sitt eigið handklæði á settinu.
Annar möguleiki í stöðunni er sá að hún fær bara visst mikið borgað fyrir hverja mynd en svo bætist bónus ofan á það eftir því hve mörgum typpum er hægt að stinga í hana í einu , hversu stóru og breiðu typpi eða hve mörgum lítrum af sæði er dælt á hana. Í svæsnari myndum væri svo auka stórhátíðarálag eftir því hve marga cm hún spreddar á sér vinkonuna.
Svo er það mér líka mikið hugans mál hvort að klámbransinn úti sé eins og módelbransinn hérna heima.. Þ.e. Fyrstu þrjú til fjögur verkefnin eru frí eða mjög ílla borguð á móti því að þú er að koma þér á framfæri. Og annað, eru gerðir kjarasamningar á tveggja ára fresti, eins árs fresti eða bara alls ekki?
Já, Mér finnst að þessi mál séu eitthvað sem að feministar í Bandaríkjunum ættu að einbeita sér meira að heldur en að fá konu kosna sem forseta, allavega svona fyrst í stað, því að auðvitað þurfa konur að fá almennileg laun fyrir störfin sem þær kunna og eru góðar í áður en þær fara að hoppa beint í djúpu laugina. Ég er tildæmis nokkuð viss um að ef að Hillary Clinton yrði kosinn forseti næst þá fengi hún lægri laun og minni frítíma en Bush og klárlega færri lærlinga en Clinton.

Magnað.. Annað lélega bloggið í röð.. en þó blogg

takk.
Dóri-í-Dós

Humarhátíðin mikla

Posted by Skull-Darri on June 28, 2006
Uncategorized / 3 Comments

Jæja gott fólk, nú eru nokkrir sögulegir hlutir að fara að gerast…!!

1) Ég er actually að blogga, það er alveg fréttnæmt… það er frí í fótboltanum fram á föstudagin, þannig ég get setið við tölvu 0 hence, i blogg….

2) Ég er að fara ásamt flestum sem ég þekki á Humarhátíð á Höfn, ekki kannski fréttnæmt svona við fyrstu sýn, en það fréttnæma við þetta allt er það að ég er þar af leiðandi EKKI að fara að vinna þessa helgi, sem hefur ekki gerst í mjööög langan tíma (spurjiði Júlíu, she will confirm it)

3) Það sem er fylgjandi því að fara í útilegu og Humarhátíð er áfengi, sem kemur inná næsta ótrúlega hlut, ég ætla að drekka líka. Með einföldum útreikningi má sjá að ef ég er að vinna allar helgar, og má ekki drekka í vinnunni, hef ég ekki drukkið neitt af viti í mjööög langan tíma…

En nóg í bili… Það má ekki ofgera þessu strax..

Meira eftir Ferðina..

Kv.
Mr. Vacation

Stutt blog…..

Posted by Jóhannsson on June 26, 2006
Uncategorized / No Comments

Vorum ad detta inn i rom, italia er geggjud!! Vorum pissfullir med Brandon, nyja ameriska vini okkar, a batnum a leid fra grikklandi, tad var mjog gaman, kiktum svo a Pompei, tad er mognud sjon! Igaer forum vid svo aftur a fylleri med Brandon og tveimur gaurum fra Kanada, endudum a golfinu i herberginu hans brandons og vinum hans tar sem hostelid okkar lokadi kl. 1 og vid vorum ad til 4….. Dagurinn idag er buin ad vera tunnur en vid tokum lest i morgun til Rom.. tad er ennta um 40 stiga hiti og sol, eg er ad bradna. A morgun aeltum vid bara ad liggja i solinni drekka bjor og ekkert annad!!!

Italia- Astralia i dag!!!! Forza Italia!!

kv. Joi og halfur darri, hef aldrei sed hann jafn tunnan!!!!

Störf..

Posted by Dóri-í-Dós on June 24, 2006
Uncategorized / No Comments

Nú vill ég halda því fram að ég sé í besta starfi í heimi. Þrátt fyrir lág laun (hlutfallslega miðað við ábyrgð), langa vinnutíma og platónskt ástarsamband við Helga þá hafa síðustu tveir mánuðir verið frábærir. Vegna þessa hef ég mikið verið að spá í störfum annarra og hverskonar lífsfyllingu fólk getur verið að fá úr þeim. Í þessum pælingum mínum hef ég rekist á nokkur störf sem að ég skil ekki hvernig fólk endist í en dropinn sem að fyllti mælinn kom inn um póstkassan hjá mér um daginn.

"Sorphreinsun Vilhelm Harð ehf. Sérhæfum okkur í hreinsun á sorptunnum í heimahúsum og fjölbýli"

Ok. Nú er ég forvitinn. Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að stóru svörtu sorptunnurnar þarf að hreinsa öðru hvoru svo að ógeðisfýlan fari ekki um alla sameign. Ég veit líka að Íslendingar eru latir og eiga of mikinn pening og því ætti sorptunnuhreinsun að geta verið arðvænlegur bransi. En hvað fær einhvern til að íhuga þetta tvennt af fullri alvöru og ákveða að þetta sé eitthvað sem að hann vilji eyða lífinu í? "Sæll, ég er heilaskurðlæknir hvað gerir þú?" "Ég? ég er nú bara hérna til að hreinsa sorptunnurnar þínar".
Hljómar þetta voðalega asnalega, snobbað og yfirborðskennt? Það gæti vel verið þar sem að ég er Verzlunarskólagenginn, með ríkann pabba og vinn við auglýsingagerð en ég hef samt sem áður skolað sorptunnurnar fyrir sameignina með háþrýstidælu og það var A) ekki eitthvað sem ég myndi nokkurn tíman vilja vinna við B) Þroskaheftur múkki með niðurgang ræði ágætlega við þetta og C) … maður bara verður bara að hafa c) ef að maður byrjar svona upptalningu.

æi þetta er lélegt blogg.. en þó blogg

takk.
Dóri-í-Dós

Gris

Posted by Jóhannsson on June 23, 2006
Uncategorized / 1 Comment

Hallo Hallo Hallo

This is Darri speaking from Gris.

Nuna erum vid ad fara i sjoferd til Italiu i Evropu. Vid erum ekki med svefnplass thannig ad vid thurfum ad treysta a hlyjuna fra bjornum i nott. A batum gerist alltaf eitthvad spennandi, sumir reyna vid laerifedur sina adrir lenda i tugthusi og enn adrir detta fyrir bord, en eitt eiga allir sameiginlegt og thad er ad a batum eru allir ofurolvi.

Vid hofum verid i Grikklandi i 2 langa og heita daga nuna, og fengid ad kynnast Griskri bjormenningu naid, hun er ekki jafn god og i Tekkland eda i Thyskalandi en hun slaer ut Bulgarska bjormenningu med hestalengdum. Eg mun muna eftir Gris sem endurhaefingarlandinu, en her hefur einn adili stadid i strongu vid ad lata ser batna af "bakverkjum" sem hafa herjad a hann sidan Islendingar slogu ut Svia i undankeppni HM i handbolta.

Thad fer nu bradlega ad styttast i thad ad vid komum heim til klakans og vid litum a thad sorgaraugum ad vid eigum nuna bara 11 daga eftir til thess ad drekka thangad til a iskaldur raunveruleikinn blasir vid okkur heima. Ad medaltali eigum vid eftir ad drekka 15 bjora a dag thessa daga og aldrei minna en 4 nyjar tegundir a dag. Hlutfallslega eigum vid eftir ad sja 3900 blokkumenn, 453 betlara og 712 flaekingshunda thad sem eftir af ferdinni.

Annars hef eg voda litid fra ad segja

kv. Darri, thvi Joi er buinn ad gleyma hvernig a ad skrifa

Margt og ekkert

Posted by Helgi Jó on June 22, 2006
Uncategorized / 1 Comment

Jæja, nú breytast allar bílgerðir á hverju ári eða oftar. Hver bílaframleiðandi kemur með nýtt eða breytt lúkk og margir bílar eru teknir í gegn. En það er eitt sem hefur ekkert breyst í bílum öll þessi ár, og þykir mér það mjög miður. Það eru loftpúðarnir. Afhverju eru þeir t.d. bara til í hvítu, það er svo dull eitthvað. Engin stemmning, bara szzvúss, loftpúðinn blæst út og svo hengur hann þarna bara, hvítur og leiðinlegur. Ég vil sjá breytingar, og því legg ég til eitthvað í þessa áttina:

Auglýsingin fyrir nýja loftpúðann:

"Ertu ekki orðinn þreyttur á sama gamla loftpúðanum þínum?"
"Ójú"
"Ertu ekki orðinn þreyttur á því hvað hann er litlaus og leiðinlegur?"
"Ójú, en hvað get ég gert?"
"Það get ég sko sagt þér, því við kynnum hér byltingarkennda hönnun í loftpúðagerð. Dodge í samvinnu við George Lucas kynnir á markaðinn nýjasta loftpúðann, The Death Star."
"Nú getur þú notið þess að lenda í bílslysi og látið líkamann falla ljúflega á loftpúða sem lítur nákvæmlega út eins og The Death Star í Star Wars. Samkvæmt rannsóknum eru það bara lúðar sem deyja í hvítum loftpúða. Vilt þú vera lúði? Ég hélt ekki.
Að skilja eftir sig fallegt lík er töff, en það skiptir öllu máli að skilji það eftir sig í fallegu umhverfi.

Skildu við heiminn í fallegu umhverfi, skildu hann eftir í The Death Star loftpúða

Death Star loftpúðinn, fyrir falleg lík"

Annað, afhverju eru loftpúðar í bílum ekki bara svona lofthylki sem myndi umlykja mann allan og koma í veg fyrir að maður fengi ó ó. Bílar væru þá seldir eftir stærðum einstaklingins, t.d. eins og

Ford Sport Ka Medium
eða
Subaru Avensis XXL

Spurning hvað væri gert við Austin Mini, en það er önnur saga.

ég og dóri leikstýrðum okkar fyrsta myndbandi núna á þriðjudaginn. Alveg ágætlega stórt production, í það minnsta miðað við byrjendaverk. Upptökurnar fóru fram í safnaðarheimili í Mosfellsbæ og síðan í stúdíói út á Granda. Síðan á föstudaginn förum við í sundlaug hafnarfjarðar og klárum það sem eftir er.

Ég persónulega held að ég sé með bestu sumarvinnu í heimi(þ.e. hvað ég geri, ekki hversu mikill tími fer í hana). Ég geri nánast ekkert nema að vera í vinnunni sem lýsir sér að ég hef tekið mér 3 frídaga síðan 15.maí og flestir dagarnir eru að lágmarki 10 tíma vinna, en flestir um 12-15. En ég get samt ekki sagt annað en að ég fíli þetta í botn.

Sumarið lítur annars helvíti vel út. Humarhátíð á höfn fyrstu helgina í júlí, 6-X útilega þriðju helgina í júlí og Eyjar um verzlunarmannahelgina. Margt er lagt á blessaða lifrina, en þó örugglega ekki jafn mikið og aumingja lifrar jóa og darra þurfa að þola þessa dagana. Búnir að vera hvað, fullir núna í tæpar þrjár vikur og enn tvær vikur eftir af stanslausri drykkju og barlegu. Djöfull öfunda ég þá.

Bless bless,
Helgi

Erfidir timar…..

Posted by Jóhannsson on June 20, 2006
Uncategorized / No Comments

Tessi ferd verdur avallt meiri spennandi og alltaf verdur hitinn meiri… sidan sidasta blogg var skrifad hofum vid farid til Krakau i polandi, kiktum tar til Auschwitz sem var mjog merkileg lifsreynsla, maeli eindreigid med tvi. Hittum tennan aedislega bilstjora sem skutladi okkur baedi til auschwitz og birkinaun og beid svo a medan ad vid skodudum og skutladi okkur svo aftuir til baka, samtals 7 klukkutima ferd, allt fyrir einungis 4000 kr.svo forum vid i baein bordudum finan mat fyrir ekki neitt a torginu tar i bae og komumst sameiginlega ad teirri nidurstodu ad Krakau er borg fallegu kvenmanna…. held eg hafi aldrei sed jafn mikid af fallegum konum!!!gistum tar i eina nott og skelltum okkur svo med naetur lest til Budapest. Merkileg borg tar a ferd ‘otrulega stor og gedveik umferd, en vid letum okkur hafa tad og fundum mjog falleg mannvirki og fjall til ad labba uppa (darri hatar mig fyrir ad hafa latid hann gera tad ) hehe. nenntum ekki ad hanga tar tannig ad vid tokum aftur naetur lest til rumeniu, nanar tiltekid Sighisoara, en tad er 30 tus. manna baer tar sem Vlad Tepes a.k.a Drakula aldist upp. Tad er odyrasta land sem vid hofum komid til, tildaemis forum vid ut ad borda a mjog finun stad, fengum okkur tveggja retta maltid vinflosku, vatnsflosku og borgudum saman 1500 kr. Svo a laugardagin var komid ad tvi, kallin atti afmaeli og islendingar slogu svia ut ur HM i handbolta!!! ja svo var tjodhatidardagur skillst mer heima… dagurinn endadi svo med fyllerii med skrautlegum listamanni fra Rumeniu og logfraedingi… tad endadi hins vegar tannig ad eg vard veikur, fekk hita og magapest og la i ruminu i tvo daga og er ennta slappur… en eithvad er sambandid lelegt ter i bae tvi ekki fundum vid netkaffi ne virkadi ad senda mms skilabod…. i nott skelltum vid okkur svo til Sofiu i bulgariu og her sit eg i svita badi ad skrifa tetta blog. Inott forum vid svo aftur i naetur lest til Athenu!! nokkrir skemtilegir punktar: – hofum smakkad samtals 50 tegundir af bjor i ferdinni – hofum einungis ferdast med naeturlest… – Darri saknar kaerustu sinnar – erum bunir ad horfa a yfir 80% af leikjunum a HM – Joi tapadi vedmali og gaeti turft ad fa ser annad tatoo :/ – tad eru ekki girnilegar lestir i austur evropu, hvad ta klosettin i teim… dont nenn more… kv. Joi og Darri

A tribute to Joey

Posted by Bragi Þór on June 19, 2006
Uncategorized / 1 Comment

Blablablablablablablablablablablabla
Just watch the fucking video!

Gaman vídjó já
P.s. þetta er fyrsta bloggið mitt 0

lille blog

Posted by Helgi Jó on June 18, 2006
Uncategorized / 4 Comments

Held ég taki eitt blogg hér. Einn tveir og byrja.

Margt búið að gerast seinustu vikurnar, vinnan gjörsamlega að stjórna lífinu enda er ég heima hjá mér ca. 6 tíma á dag sem ég nýti í svefn. Þyrfti helst að koma mér upp dýnu hérna á lækjartorgi(já, ég vinn þar) svo ég gæti alveg sleppt því að fara heim til mín.
Ég lýsi því eftir kærustu sem er tilbúin að sætta sig við að sjá mig aðeins 6 tíma á dag, og þá aðeins að sjá mig sofandi(móðir mín segir að ég sé fallegur þegar ég sef). Ef svona kærasta er til, vil ég samt eiginlega ekki hitta hana, því hún hlýtur að vera alveg kolklikkuð að fá allt sem hún þarf útúr sambandi með því að horfa á mig sofa.

Að vinna í bænum er slæmt myndi ég segja. Allt fullt af endalausum freistingum og sérstaklega núna í HM-tíðinni. Ég get ekki farið út í hádeginu án þess að eyða minnst 2000 krónum í hádegismat því að framboðið af matsölustaðum er alltof mikið. Sem betur fer gerðum við skipti díl við Gauk á Stöng í vinnunni svo núna get ég alltaf farið og fengið mér ókeypis að drekka og borða á Gauknum. Sem skapar annað vandamál, þ.e. hversu feitur ég á eftir að verða að borða bara hamborgara, franskar og bjór í öll hádegismál þetta sumar. Ég giska á að ég bæti á mig alveg heilum Níels eða svo(ca. 40 kg) og það, það er ekki svalt. Samt sem áður er aldrei slæmt að eiga nóg af Níels.

Annað slæmt við að vinna í bænum eru að sjálfsögðu bílastæði. Darri Freyr var kominn með perfect trixið við því að sleppa við að fá sekt og hún var eftirfarandi:

Hver bíll má aðeins fá eina sekt á dag og því fær maður eina sekt og notar síðan alltaf þessa sömu sekt og leggur hana á bílrúðuna sína. Þannig halda stöðumælaverðirnir alltaf að þeir séu búnir að sekta mann og labba því grunlausir framhjá. Works like a charm.

Jájá, þetta var alveg fokking frábært blog.

Prag…

Posted by Jóhannsson on June 12, 2006
Uncategorized / 4 Comments

Tvaer naetur her i Prag, leggjum i hann til Pollands i nott, Ausswitch og Krakauw aetlum ad na tveimur borgum med einni nottu og svo aetlum vid ad sofa tvaer naetur i lest eftir tad og drifa okkur til Rumeniu tar sem vid munum sennilega vera kongar, en ein isl. kr er 375 lei, sem er gjaldeyrir tar.

Anywho, tvaer borgir ad baki, Amsterdam og Prag, og taer eru hvor annari glaesilegri. Prag er kanski ekki borgin til ad djamma i en her er til nog af tegundum af bjor, og svo er borgin bara eithver fallegasta borg i heimi, tokum allan dagin igaer og gengum um allan baein, eda tad heldum vid… lobbudum svo adeins uppa fjall og saum ta ad vid vorum ekki bunir ad sja nema svona 1/5 af Prag. Hostelid okkar her var med eindaemum gott, sama verd og i hollandi en gaedin svona 6 sinnum betri her. svo a kvoldin hoppum vid inna naesta pub og horfum a HM med allskonar folki, og tad er otrulegt hvad bretar eru bunir ad leggja undir sig evropu til ad horfa a tetta mot, teir eru allstadar!!!! Aetlum ad fara i batsferd i dag og horfa svo a HM i kvold, Tekkland-USA med Pragbuum, tetta verdur gaman…

hvernin er annars hja ykkur a islandi?? kommmentid nu eda bloggid eithvad fiflin ykkar, eg nenni tessu annars ekki hahahahaha…

Kv. Joi & Darri