Archive for May, 2006

Snjór i lok Maí…

Posted by Jóhannsson on May 22, 2006
Uncategorized / 1 Comment

Skrapp uppá spítala um daginn og gat ekki komist hjá því að yfir heyra skemmtilegt samtal tveggja manna…. ætla að láta það flakka hér…

Joey´s E.R.

Intern: Doktor, doktor, this man needs immediate attention…

Dr: mmmm, What seem to be the problem?

Intern: Lost his leg in a car accident, what do you think?

Dr: ahh this is a clear cut case of O.E….

Intern: dr. What is O.E.?

Dr: hehe, you have a lot to learn young man, O.E. is a disease, short for Over eating, this is getting very serious. It´s my 4 case today, making 20 this week…

Intern: Do you mean that he lost his leg because of Over eating??

Dr: Yes.

Intern: But, I just told you that he was in a car accident!!

Dr: Probably on his way here because of the over eating, poor man there´s no saving him now..

Intern: what do you mean? Arent you going to do anything to help him?

Dr: I´m sorry, but at this stage there´s nothing I can do. I will alert the family.

Intern: ………….. Yeah, about that……

Eftir þetta sofnaði ég…

kv. Jóhann Þórir

Pussydick mellublogg…

Posted by Dóri-í-Dós on May 18, 2006
Uncategorized / 1 Comment

Ég neita að blogga meira áður en ég fæ fleiri komment á síðustu færslu sem ég skrifaði… Eeen svona fyrst ég er byrjaður.. Frítími okkar Helga hefur verið formlega aflífaður… Síðasta tækifæri sumars til að sjá okkur í okkar náttúrulega stressfría tilverustigi verður núna á Laugardaginn í Eurovision partýi í sumarbústaðnum hans Darra.. Mér skilst að öllum sé boðið (ath. takmarkað svefnpláss)..
Mér finnst að fólk eigi að hætta að væla út af henni Sylvíu Nótt… Sá viðtal við e-h bitra gellu sem hætti með aðdáendasíðu um Sylvíu vegna þess að Sylvía mætti ekki á Esso stöðina og einhverjir krakkar fóru að væla vegna þess að foreldrar þeirra stóðu öskrandi eins og hálfvitar. Í alvöru talað.. takið krakkana ykkar undan þessari bómullar ábreiðu og hættið þessu væli. Þegar ég var lítill langaði mig líka rosalega að hitta Van Damme og fá eiginhandaráritun hjá honum.. Svo fór hann bara í kókaín og varð aftaníossi og drasl.. Ekki eins og það hafi haft varanleg áhrif á mig. Foreldrar sem leyfa heimsku áhrifagjörnu krökkunum sínum að tilbiðja þessa eigingjörnu, sjálfsdýrkandi og uppspunnu mellu eiga bara ekkert betra skilið en að Sylvía troði skítugri og berri borunni upp í munninn á krökkunum þeirra. Það er þetta sem þið kusuð og þið skuluð uppskera svo sem þið sáðuð heimsku fíbl…

Miðstræti.. FUCK YEA!

takk.
Dóri-í-Dós

Svekking……

Posted by Jóhannsson on May 12, 2006
Uncategorized / 1 Comment

Já það er gaman að vera til… Eftir tæpar þrjá vikur þá ætla ég að flýja land og skreppa til minns heima, Svíþjóðar… þegar ég hef dvalið þar i tvo daga mun ég hringja i mann, engan merkilegri en Darra nokkurn kenndan við Eyþór, ég mun segja við hann: "Darri, drullaðu þér til Svíþjóðar, her er frábært!!", og mun hann þá svara: "veistu… ég held ég geri það bara….". Nokkrum klukkustundum síðar mun hann vera komin til landsins þar sem Svíar búa. Eftir nokkurra daga veru þar mun okkur vera farið að leiðast, við ákveðum okkur þá i sameiningu að fara í Interrail, en heppilegt mun það reynast að við eigum báðir einmitt þannig miða… þetta mun reynast hin skemmtilegasta reynsla þar heimsótt verða lönd á borða við Pólland, Tékkland, Rúmeníu, Búlgaríu, Grikkland og Ítalíu þó ekki séu þau talin öll. En á Ítalíu mun ég heimsækja gamlan vin, en hann mun hafa eflt þessa síðu með skrífum sínum, sá vinur, Fabrizio, ætlar að sýna okkur helstu staði til að snæða þjóðarétti Ítala þá Pizzu og Ís… ég mun sennilega leggja til snemma í þessu ævintýri að við Darri skulum festa kaup á dýri tæknilegu tæki, vídeókameru.. þetta tæki hefur þá hæfileika að geta bent á atburð sem er að gerast og sýnt svo öðrum seinna… Við skulum þá nota þetta tæki þegar við skemmtum okkur í hinum ýmsum löndum og þannig sýna öllum frá ferðum okkar og drykkjarleikjum i Evrópu fjær… Svo vinir mínir, ekki fella tár þó að ég láti mig hverfa af klakanum i nokkurn tíma, því þið fáið að fylgjast með öllum skandölum sem Darri mun framkvæma, og já ég sagði Darri, á meðan að ferðalögum okkar kumpána mun standa…

Do not be afraid, do not be very afraid…

kveðja,

_Jóhann Þórir_

Hið lifandi sjálf er vöndull skynjanna..

Posted by Dóri-í-Dós on May 10, 2006
Uncategorized / 2 Comments

Í mannlegum samskiptum er persónan falin á bakvið grímu. Ófáir notast við nokkrar grímur og geta þær verið mismunandi eftir því við hvern er rætt. Þegar að rætt er við móður sína vill maður að hún skynji sakleysi og ráðvendi, pabbi á að sjá hversu stór og karlmannlegur maður er. Systkinin verða að sjá góða fyrirmynd. Bestu vinir fá fyndna gaurinn og þeir sem standa enn nær fá sjálfstraust og einlægni. En með þetta margar útgáfur af sjálfinu hvernig er þá hægt að kalla það "sjálf". Þegar að þetta margir hafa ómæld áhrif á "sjálfið" og hver og einn fær einstaka sýn á það tilheyrir "sjálfið" þeim ekki? Og ef svo er er þá nokkur möguleiki að geta nokkurntíman þekkt sig sjálfan í raun og veru? Ég tel að eina leiðin til að hafa innsýn inn á við þurfi maður að horfa út á við og skynja sig sem endurspeglun í þeim sem standa þér næst. Með því að horfa á hverja þú velur að hafa í kringum þig og þeirra persónuleika ætti að liggja í augum úti hver þú ert. (Hér er ég basically að segja: Sjitt hvað ég hlýt að eiga frábæra vini þar sem að ég er svo frábær persónuleiki)

Ef ekki er hægt að horfa á velgengni í leitinni að sjálfinu liggur ekki beint við að miða við mistök sín í staðin? Hversu stór mistök þarf að gera til að geta séð skýrt? (Hérna er ég að spá í hvort ég eigi að láta umskera mig)

-fyrir fólk í prófum-
Í sólinni í dag labbaði ég út í Smáralind, keypti mér tvo Bavaria, labbaði til baka og settist út í sófastólinn fyrir framan skúrinn. Ég tengdi græjurnar við lappann og botnaði draslið.. renndi svo nokkrum góðum diskum í gegn á meðan ég drakk bjórinn og blaðaði í gegnum Requiem for a Dream sem Tetsuo lánaði mér.. Lífið getur verið svo gott!
-próflesningu lýkur-

Til að létta aðeins á þessari þungu færslu ætla ég að skella inn mynd af Steinari sem ég tók um daginn…

takk.
Dóri-í-Dós

Líf mitt sem módel/pródúser/módel…

Posted by Dóri-í-Dós on May 08, 2006
Uncategorized / 6 Comments

Já, undanfarna daga hafa tveir menn með of mikinn frítíma, frjótt ímyndunarafl og dash af metnaði leitt hesta sína saman og riðið feitum… Ég er að tala um "Ég er atvinnulaus og mér leiðist " -Dóri og "Tek mér ekki frí frá ljósmyndun" -Steinar. Þetta skemmtilega samstarf byrjaði með litlu saklausu símtali. "Hey koma á rúntinn og taka myndir?" "Uh.. ok". Frá því var ekki aftur snúið. Í þessum bíltúr voru þessar myndir teknar:


Sagði einhver Hotboy?


Vá, Allar tilfinningarnar sem streyma frá myndinni yfirbuga mig..

Daginn eftir vaknaði ég við aðra símhringingu frá Steinari þar sem að hann bað mig um að aðstoða hann við aðra mynd, í þetta skiptið fyrir aftan myndavélina sem pródúser. Fyrir þá sem vita ekki nákvæmlega hvað pródúser gerir þá sjá þeir til þess að ljósmyndaranum vanti ekkert þegar á hólminn er komið. Reyndar tók ég líka mikinn þátt í hugmyndavinnunni og möndlaði saman búninginn á Darcy the Pirate Cop. Afraksturinn af þeirri vinnu varð svo þessi stórfenglega mynd:


Takið eftir Jóa í bakgrunninum með negra-klútinn um hausinn..
(Einar er líka á bakvið hattinn)

Svo í dag var Steinar í fríi frá Blaðinu og þessvegna tókum við smá bíltúr og ég sat fyrir á nokkrum myndum af því tilefni.. Sú mynd sem þar bar af verður sett inn seinna en hér er ein ágæt til að sefa forvitnina…


My precious….

takk.
Dóri-í-Dós

Lífíhald

Posted by Dóri-í-Dós on May 06, 2006
Uncategorized / 4 Comments

Það er alltaf gaman að vera atvinnulaus og aðgerðarlaus. Þegar ég segi alltaf meina ég aldrei.

Það sem að er að halda í mér lífinu þessa dagana (fyrir utan vondar fréttir, svefnleysi, mígreni, vini í prófum og óhagstætt veður þegar ég þarf að stóla á það) er þetta:

Ég uppgötvaði þennan hérna aftur um daginn. Þetta er besti mp3 spilari í heimi…
Nei, hann er ekki með almennilegt geymslupláss, rétt slefar upp í 256 mb.
Nei, hann er ekki smábyggður og fer vel í vasa, hann er í raun fáránlega stór og fyllir upp í alla vasa auk þess sem að það er ekki "hold" takki á honum þannig að hann skiptir reglulega um lög.
Nei, hann er ekki með góð hljómgæði, í raun eru þau "léleg" miðað við flesta staðla en sjáið til.. það er einmitt þetta sem ég elska við hann.
Nú hlusta ég nefnilega mikið á pönk og pönkskotið rokk. Öðru hverju gerist ég jafnvel svo góður að gleðja tóneyrað með smá Hardcore hér og þar. Ástæðan fyrir því að þetta skiptir máli er að mér finnst pródúsering og tölvur og .. tja.. gæði hafa drepið sálina í uppáhalds tónlistinni minni. Sem er svei. En þarna reddar gamli góði RCA Lyra flash spilarinn mér. Með því að converta mp3 yfir í mpx sem spilarinn les þá gerast mjög undarlegir hlutir. Að segja að gæðin í upptökunni tapist er rétt að vissu leyti .. en þó alls ekki þar sem að þetta er miklu meira. Smá suð hér, smá brestir þar, lagið hikstar og þetta fokking glans er hreinlega raspað af með sandpappír og í ljós kemur hið raunverulega lag sem býr undir. Þetta er svona eins og að hlusta á lagið tekið live, nema í gegnum headphone tengd beint í mixerinn og hljómsveitin er bara eilítið ölvuð. Algerlega að bjarga geðheilsunni.. btw. Tékkið á Test Icicles og gömlu Misfits.

Þorsteinn J. "wtf mf wits sb?!!!?!1!" Jú, ég fór nefnilega að horfa á Ísland í dag. Í Íslandi í dag er Þorsteini J hleypt út á lífið með myndavél og mic. Ekki spyrja mig afhverju þetta er heillandi því að ég get eiginlega ekki útskýrt það sjálfur. Málið er að ég veit ekki og hef aldrei vitað nákvæmlega ég hef hann Þossa. Er hann svona sullandi kaldhæðinn og ótrúlega svalur á því eða er hann tilfinningalega oförvaður kjáni? Um daginn fór hann á Reyðarfjörð vegna borgarstjórnarkosninganna þar. Þeir sem sáu þetta ekki misstu af miklu því að ég hló svo mikið að ég pissaði aðeins á mig og þurfti að skipta um nærbuxur. Á milli þess sem hann sýndi myndbrot af tómum götum, tómum búðum og tómum byggingalóðum, talandi um iðandi mannlífið á staðnum þá spjallaði hann við fólk á götunni og spurði um "mikilvæg málefni sem brenna á þjóðarsálinni".. Ég er kannski ekki að koma þessu neitt rosalega vel frá mér en hvort sem hann er kaldhæðinn mörður eða hreinn og beinn rómantíkus þá hvet ég alla til að horfa á hann alla virka daga.

Ég áttaði mig á því um daginn að það eru til tvær tegundir af mönnum.. Menn sem segja skál og skála og svo menn sem eru nýbúnir úr glasinu, missa af skálinu(?) og biðja um meira að drekka. Þessari uppgötvun fylgdi að ég sá í gegnum áfengisvímuna að ég tilheyrði seinni flokknum.. Af tilefni af því hef ég undanfarið drukkið hægar og drukkið lengur og er betri maður fyrir. Ég held að dagar trektarinnar séu liðnir.. tja.. þeir verða allavega færri.
Hvernig er þetta að halda í mér lífinu? hmm.. ætli ég sé ekki bara farinn að hugsa fram í tímann?

Ég gæti haft þetta mun lengra og minnst á t.d. Steinar og myndatökuna, internetið, Laugarásvídjó, miðnæturheimsóknir, PD-170 og svo að sjálfsögðu eina bestu Kvikmynd allra tíma: Tetsuo: The Iron man sem er ein af mjööög fáum kvikmyndum sem ég hef upplifað en ekki séð (hinar verandi: Requiem for a dream, Three Amigos, Die Hard, Ôdishon og af jörðu svo dæmi séu tekin) en ég finn það allt í einu að það sækir á mig þreyta og þar sem að ég hef ekkert getað sofna í nótt þá er kominn tími að halla aftur augum og krossa fingur.

takk.
Dóri-í-Dós

The Italian guy

Posted by Jóhannsson on May 05, 2006
Uncategorized / 3 Comments

Im Fabrizio, I want to tell you about a dream i had the other night…..

I was walking down the street, just like handsome italian men like me do, and suddenly a man in a tuxedo appears in front of me and starts talking, and when I say man I mean giraffe….

Giraffe: Wow, you´ve got to tell me your secret…..

Fabrizio(me): I can´t, not until I´ve seen a hippopotomus walking down the street…..

Giraffe: Well just my luck, there is a hippopotomus right there….

Fabrizio: Aah too bad I can´t see him…

Giraffe: What do you mean?? He is standing right there in front of that wall….

Fabrizio: you see, I´m color blind and the wall is apparently the same color as him, therefore I cannot see him….

Giraffe: well… I guess I won´t hear your secret then….

Fabrizio: sorry, that life for you….

So, after meeting this enchanting giraffe I keep on walking down the street, until I get to a sign that says: NAKED WOMEN JUST AROUND THE CORNER….

And then I woke up…… So swekking…

Anywho, until my next dream, have a nice life…

Fabrizio, The Italian guy

Heija

Posted by Helgi Jó on May 04, 2006
Uncategorized / 3 Comments

Aðeins vinna og enginn leikur.

Factor, nei nei, factory.

Weekend!!

Posted by Jóhannsson on May 01, 2006
Uncategorized / 1 Comment

Nei helgi, þetta blogg er ekki um þig…..

Þetta blog er alfarið um mig, frá mér, til mín. Það var árshátið í Bónus ígær, ég var hauslaus, eins og ég ætlaði mér…. haha, man ekkert!!! Byrjuðum kl. 5 í íbúðinni hans Nonna (verslunarstjórin), hann lét mig fá lyklanna sína og fór norður. Þegar klukkan var að detta i átta lá leiðin á broadway þar sem boðið var uppá mat, sem ég man btw. Ekkert eftir hvernin bragðaðist eða neitt… svo voru skemmtiatriði sem voru vægast sagt ömurleg, enda í boði Bónus!!!! Hahaha me make funny….

Stuðmenn og Birgitta Haukdal heldu svo uppi fjöri á ballinu…. man ekkert eftir því frekar en annað…. svo kíktum við í bæin ég darri og binni mjög gaman, en eins og þið sjáið þá er ekki mikið meira um það að segja…..

Yeahh, About that…. I´m gonna have to ask you to sit over there at the kids table…. yeah, that would be great….

Fékk vitrun um daginn…..

Kv. Jóhann Þórir

Daydream Dinner Tour ‘06

Posted by Dóri-í-Dós on May 01, 2006
Uncategorized / 8 Comments

Nú er nokkuð langt síðan að meðlimur Dagdraumar.net hefur boðið í forláta sunnudags matarboð með framandi mat. Það er svo sem skiljanlegt þar sem að dagdraumar eru ýmist erlendis, í prófum eða ekki búnir að plögga sér kellingu til að aðstoða við matseldina. Það var hluta til þessvegna sem að ég og Darri ákváðum í gær að fá okkur hamborgara. Ég er sko ekki að tala um neina venjulega hamborgara heldur.

Hérna er smá uppskrift svona svo að hinir andlausu geti skellt sér á svona risa..

Byrja á að skella 3 pönnum á hellur og kveikja undir, gomma vel af matarolíu.
þegar olían er orðin heit er byrjað að steikja beikonið, Venjulegt beikon á pönnu1, á pönnu2 fer Enskt Beikon og á pönnu3 fer danskt beikon. Pakki af hverju ætti að duga á 3 hamborgara. "afhverju ekki bara steikja allt á einni pönnu og spara uppvask?" – vegna þess að fita er ekki bara fita og við viljum ekki blanda saman 3 mismunandi tegundum af beikonfitu saman, það á að gerast í munninum.
Hrúgið beikoninu svæðaskipt á stóran disk og þvoið tvær pönnur.
Pönnurnar fara aftur á sjóðandi heitar hellur og olía með.
Á aðra pönnuna fer 1 dós af svona sveppum. Á hina fara skinkusneiðar (jafn margar og borgararnir). Á þessum tímapunkti skal setja BBQ-smurða borgarana á grillið. Passið að halda sveppunum á hreyfingu á pönnunni og þegar skinkan er farin að taka smá lit skal snúa henni við, skella osti ofan á og toppa með brúnum sykri.
Þegar að borgararnir koma af grillinu er kominn tími til að byggja, svona er röðin frá botni: brauð, hamborgarasósa, enskt beikon, sveppir, venjulegt beikon, hamborgari, skinka með osti og brúnum sykri, danskt beikon, kál, tómatsósa og brauð.
borið fram með sjitloads af frönskum og tveimur lítrum af kók á mann.
Áttími: Tímaeiningin "Event Horizon".
Hnífapör? – Nei, hommar og löggur borða hamborgara með hníf og gafli

Betri mat er ekki að finna austan né vestan Alpafjalla og mig verkjar ennþá í kransæðarnar. Einn B B B hvað?

takk.
Dóri-í-Dós