Archive for April, 2006

Botnlangi

Posted by Helgi Jó on April 30, 2006
Uncategorized / 3 Comments

Hvað um að ef í stað klassísku T-myndanna sem tákna botnlangagötu þá væru myndir af botnlanga núverandi borgarstjóra á þessum skiltum. Þannig að nú prýddu botnlangagötur bæjarins myndir af botnlanga Steinunnar en myndir af botnlöngum Ingibjargar Sólrúnar og Markúsi Erni væru þó jafnvel enn til staðar í eldri götum bæjarins, kannski til einhvers konar minningar um góða botnlanga fortíðarinnar.
Þetta væri líka fínt í kosningabaráttu, t.a.m. ef einn af frambjóðendunum væri búinn að láta taka úr sér botnlangann, væru mótframbjóðendur sífellt að nota setningar eins og
"Viljið þið botnlangalausa framtíð?", "Botnlangalaus = Getulaus?" osfrv. Þetta myndi svo aftur koma fram hjá kjósendum þar sem þeir myndu kjósa eftir fegurð botnlangans, því hvern langar að láta ljótan botnlanga prýða skilti bæjarins. Botnlangakosningar myndu svo líka hafa áhrif á þá kjósendur sem láta ekki ytri fegurð blekkja sig heldur kjósa eftir innri manni. (náðuð þið þessum, so funny!!)

Hægt væri að þróa þetta betur og jafnvel hafa myndir af stjórnmálafólki á fleiri skiltum, t.d. væri hægt að setja Björn Inga á skiltið sem táknar að Reykjavík hætti eða Steinunni Valdísi á skilti um 25% veghalla eða jafnvel Vilhjálm Þ. á skiltið "Hundar ekki leyfðir". Möguleikarnir eru því endalausir og ekkert ætti því að stoppa þessa framkvæmd.

Jei jei, prófin eru ekki að hafa áhrif á geðheilsu mína. Fögnum því.

Og þá voru þeir sjö…

Posted by Dóri-í-Dós on April 29, 2006
Uncategorized / 3 Comments

Já ég hef ákveðið það í atvinnuleysi mínu að fjölga aðeins á meðal okkur gæðablóðanna hérna á Dagdraumar.net. Hinn nýji meðlimir er að sjálfsögðu góðkunningi okkar allra og með réttu hefði hann átt að vera með á síðunni frá byrjun. En svona getur gerst þegar að báðum aðilum finnst kjánalegt að spyrja og því setti ég hann bara inn og skipaði honum svo að skrifa í kjölfarið. Ég veit að sumir af ykkur strákunum eruð nú þegar búnir að giska á hver þessi herramaður er en fyrir ykkur þykku þarna úti er maðurinn að sjálfsögðu:

Einar Örn.. cronic drunk og bangsinn okkar allra. Þá er bara að lifa og vona að hann verði aðeins stórtækari an aðrir sem nýlega hefur verið bætt við. Æ já Einar, dagdraumar.net er ekki Star Wars compatible umhverfi.. just to be clear.

takk.
Dóri-í-Dós

Skylduáhorf..

Posted by Dóri-í-Dós on April 27, 2006
Uncategorized / 3 Comments

Ég hvet alla til að horfa á þetta litla myndbrot, líta í eigin barm og hætta þessum kynvillingshætti..

http://www.grapheine.com/bombaytv/play_uk.php?id=1125041

takk.
Dóri-í-Dós

Austantjaldsríkið Sauðárkrókur – Ferðasaga

Posted by Dóri-í-Dós on April 25, 2006
Uncategorized / 2 Comments

ath. eftirfarandi saga hefur verið gerð læsileg fyrir lesblinda.

Páskar 2006

Þessir páskar verða lengi í minnum hafðir á mínu heimili og liggja þar nokkrar ástæður að baki. Ein sú mikilverðasta er sú að á þeim 21 árum sem ég hef litið dauðadag frelsarans augum þá er þetta fyrsta árið sem ég kýs/mér er boðið að troða mér, mínum og öllu okkar hafurtaski inn í eitt stykki lánaðan Land Rover og keyra eitthvert út á land. Þegar ég meðtók boðið var mér sagt að förinni væri heitið Norður. Eins og allir vita er ekkert fyrir norðan nema Akureyri og því sá ég fram á 5 daga af spikaðri sukkun og loftköstum á snjóbretti í höfuðborg landsbyggðarinnar. Ég hóf samstundis að íhuga hvernig ég gæti tryggt mér óstöðvandi tónlist í eyrun á meðan ég þeystist niður hrímhvítar brekkur Hlíðarfjalls án þess að eiga á hættu að drepa 20 gb Iriver H320 spilarann minn í einni af mínum fjölmörgu byltum. Ég gróf upp 6 ára gamlan RCA compact flash spilara sem reyndar virkaði ekki sem skildi. Eftir 5 googletíma (2 raunklukkutímar) fann ég hugbúnaðarpatch fyrir WMAplayer svo ég gæti dælt tónlist inn á 256 mb kort sem ég átti til. Þetta virkaði og því leið mér einhvernveginn svona. Þegar að hinn örlagaríki brottfarardagur rann upp vaknaði öll fjölskyldan í sameiningu við fyrsta hanagal og hóf að koma innbúinu fyrir í farangursgeymslu Roversins. Um hádegisbil voru allir búnir að ganga örna sinna og troða sér fyrir á sinn stað í bílnum. Þar sem ég sá fram á nokkra klukkutíma pissustoppslausan bíltúr ákvað ég að hafa á hreinu hversu langur hann væri í raun og veru. Hversu langt er eiginlega til Akureyrar?", "Akureyrar?, hvað meinaru? Við erum á leiðinni á Krókinn!". Og áður en ég gat losnað úr líkstjarfanum, rekið upp örvæntingaröskur og rokið á dyr þá vorum við komin í Hvalfjarðargöngin. Þegar að við keyrðum í gegnum Borgarnes einskorðaðist líkstjarfinn við einn af mikilvægari líkamshlutum mínum og hélst þar alla leiðina mér til mikils ama.

Eftir rúma 3 tíma keyrðum við holótta malarveginn sem færði okkur inn fyrir bæjarmörk Sauðárkróks. Þar hittum við frændfólk mitt og affermdum inn í litla sumarhúsið þeirra. Ég hafði föður minn sterklega grunaðan um að hafa lagt af stað í þetta ferðalag áfengislaus og vatt mér því listalega úr bílnum og ætlaði að "nella" mér í ríkið. Ég labbaði götuna á Króknum á enda án þess að verða var við ríkið og það var þá sem að skelfing greip mig. "Hvernig getur verið að enga áfengisverslun sé að finna í bæ þar sem nokkur fermingarbörn voru lögð inn á spítala með áfengiseitrun?". *hér hefst útgáfa af sögunni sem ég heyrði eftir að hún hafði farið í gegnum 10 einmanna konur á króknum* Ég féll sveittur á hné mér fyrir framan smápolla í stígvélum og með geðveikisglampa í augunum hristi ég hann til og öskraði fyrirspurn um hvar í fjandanum ríkið væri. Pollinn barst í grát og benti kjökrandi í átt að vínbúðinni. Við það tók ég á rás og hljóp með froðu í munnvikum beint á sjálfvirku hurðina sem var bara alls ekki sjálvirk þar sem ríkið var lokað. Í gegnum móðukennda maníu mína get ég lesið svo af bréfsnifsi í rúðunni að lokað væri fram á Laugardag. Stuttu seinna sást ég liggjandi dauðadrukkinn á nærbuxunum einum fata undir bjórdælunni á Hótel Tindastóll *hér líkur sögunni í meðförum kjaftakellinga*. Eftir þessar sorgarfréttir og rólegan bjór á hótelinu rölti ég heim og hlýddi á þessa skrautlegu útgáfu af ferð minni í ríkið. Þá ákvað ég að reyna að halda mig sem mest innivið í þessari ferð. Næsti dagur hófst mun betur en sá fyrri endaði því að þótt ótrúlegt megi virðast tókst mér að sofna um sex-leytið á 2cm útileigu dýnunni sem mér var skaffað. En því miður var þessari frábæru morgunstund spillt fyrir mér er ég var vakinn 2 tímum síðar. Reyndar, svona okkar á milli, þá fylgdi því viss ánægja að vera vakinn því ég vissi að þá væri ég einu skrefi nær því að komast loksins á bretti. Stuttum bíltúr síðar horfði ég á merkilega gott skíðasvæði, fyrir utan það að brekkan var jafnbrött, það var ein diskalyfta, "skíðaskálinn" var álíka stór og bílskúrinn sem ég bý í og svo var öll landsbyggðin mætt á svæðið. Eftir að hafa velt mér aðeins um í þessari neikvæðni batt ég brettið við mig
og velti mér niður brekkuna nokkrum sinnum og ég held það séu engar ýkjur að segja ég hafi aldrei skemmt mér jafn vel á bretti (Madonna di Campiglio að sjálfsögðu ekki tekið með). Næstu daga gerðist fátt markvert ef frá er talið rafmagnsleysi allan Laugardaginn þannig að skíðasvæðið, ríkið og kaffi Krókur með enska boltan var allt lokað. Ég hef sjaldan verið jafn tæpur á mörkum sjálfsmorðs og fjöldamorðs en endaði á að gera hvorugt. Á þriðjudaginn undirbjó ég brottförina um kvöldið með því að skella mér á einn kaldann í Ólafshúsi. Mér fannst óneitanlega furðu hart að vera rukkaður um 600 kr í ljósi þess að ég hafði verzlað mér samskonar öl á 400 krónur um helgina. "Fólk hér drekkur ekki á virkum dögum" var tilsvarið.. Já á Króknum drekkur fólk ekki á virkum dögum og því er bjór dýrari helganna á milli.

guði, allah og búddah sé lof fyrir þéttbýli!

takk.
Dóri-í-Dós
ps. Við vinnslu þessarar færslu naut ég dyggs stuðnings Google og MS paint

Björn Ingi er vélmenni

Posted by Helgi Jó on April 24, 2006
Uncategorized / 14 Comments

Við skulum skoða hér tvær myndir af Birni Inga Hrafnssyni (bjorningi.is) sem er í fyrsta sæti í framboði "Bé-listans" í Reykjavík.
Fyrri myndin var tekin þegar hann var aðstoðarmaður forsætisráðherra fyrir einhverjum árum en sú seinni er tekin þegar hann er kominn í fyrsta sæti "Bé-listans". Ég held persónulega að núverandi "Björn Ingi" sé ekki maður heldur einhvers konar vélmenni, enda er sláandi munur á gamla alvöru Birni Inga og VélBirni Inga.

Myndir segja meira en þúsund orð:

Hér sjáum við alvöru Björn Inga, töffara innað beini í leðurjakka með alþekkt framsóknarglott á vör. Hann er í röndóttri skyrtu og hneppir frá efstu tölunni, ásamt því að háraliturinn hans er ljósbrúnn. Þarna er hann augljóslega alvöru manneskja, enda væri kjánalegt að búa til vélmenni með aukakíló sem staðalbúnað.


Á þessari mynd er "Björn Ingi" (Ath. "björn ingi" er til vinstri) hins vegar orðinn allt annar maður. Ef hann er ekki vélmenni hefur hann breytt algjörlega um fatastíl enda er hann kominn í jakka, hneppta hvíta skyrtu og bindi og breytingin frá leðurjakkatöffaranum er sláandi. Húðliturinn rekur ættir sínar til Ítala og hann hefur borið skósvertu í hárið á sér. Gleraugun hafa þá fengið að fjúka ásamt ca. 15 kg af fitu. PR-fólkið hefur svo nælt í hann enda sést hér í sjaldséð tannabros hjá framsóknarmanni.

Núverandi Björn Ingi er gervilegur og alltof steríll til þess að vera alvöru manneskja og því hlýtur hann að vera einhvers konar vélmenni, eða allavega cyborg.
Ásamt fyrri rökum og myndum má svo geta þess að í heilsíðuopnu auglýsingum "Bé-listans" er hausinn á honum mun brúnni en aðrir líkamshlutar og bendir það aðeins til þess að öðruvísi stál hafi verið notað í hausinn á honum en aðra parta og haushlutinn á honum sé ekki úr ryðfríu stáli og verði því brúnrauður fljótar en aðrir partar.

Lokasönnunina á því að hann sé vélmenni er svo augljós, því maður þarf að vera án heila til þess að vera í Framsóknarflokknum.

Ertu orðinn helst til fullur kallinn… Spurt og Svarað!!

Posted by Skull-Darri on April 22, 2006
Uncategorized / No Comments

Jæja, svona í tilefni sumarsins eru kannski nokkrir að fara út á lífið… það sem getur gerst er ofdrykkja, ef það er málið geturðu lent í ýmsu, hér er spurt og svarað sem getur einfaldað líf þitt mikið…

(fengið lánað af síðunni, www.blog.central.is/gafumenni)

Bratant

Posted by Helgi Jó on April 21, 2006
Uncategorized / No Comments

Á dagdraumar.gsmblogg.is má sjá mynd sem Bragi Þór Antoníusson sendir frá Singapúr, en þar er hann staddur sem erindreki fyrir vinnumiðlunina B2 hér á Íslandi.

Á myndinni má sjá 10 dollara frá Singapore og Corona Extra bjór. Tíu dollarana notar Bragi til þess að borga fjölskyldum þeirra verkamanna í Singapúra sem hann kaupir, en hver verkamaður fær svo einn Corona Extra til þess að drekka í 40-feta gámnum á leiðinni til Íslands.


Bragi er styrktur af danska gámafélaginu Maersk

Fréttavefurinn Anastasia hefur eftir Braga Þór að fjölskyldur verkamannana skilji sáttar eftir viðskipti þeirra en bætir því þó við að hann kaupi fólk af öllu þjóðerni, enda er hvorki Bragi Þór né vinnuveitendur hans haldnir rasisma.

Við óskum því Braga Þór góðs gengis og vonum að hann komi með fullfermi heim.

Email til Icelandair

Posted by Helgi Jó on April 19, 2006
Uncategorized / 1 Comment

Góðan daginn,

Við erum hópur af hæfileikaríku fólk sem nú nýlega misstum vinnuna og leitum þess vegna til ykkar. Við erum einstaklega kurteisir og sjéntilmenn inn að beini og getum komið að mörgum góðum notum innan fyrirtækisins.
Við sækjumst helst eftir starfi í flugvélum fyrirtækisins en þar myndi mannkostur okkar helst fá að njóta sín. Ég mun nú telja upp þær helstu ástæður hvers vegna þið ættuð að ráða okkur:

1. Við erum allir karlmenn en við erum mjög mjúkir karlmenn og einstaklega barngóðir og því ættum við að geta sinnt starfi flugþjóns með miklum sóma. Í fyrri störfum okkar höfum við hrifið milljónir manna með okkur og því ætti það ekki að skemma fyrir í jafn mannblendnu starfi og starf flugþjónsins er.

2. Í þeim flugvélum þar sem við ynnum þyrfti aldrei að skipta um eða hafa áhyggjur af viðhaldi á sjónvörpunum þar sem hægt væri að notast við það sem við bjóðum upp á.

3. Ef svo færi að flugvélin hrapaði værum við einstaklega góðir til notkunar sem flotgallar. Einnig væri hægt að nota okkur sem merkingu fyrir leitarmennina.

4. Við erum allir ókvæntir og barnslausir og því gætum við fullkomlega helgað okkur starfinu ásamt því að við gætum unnið á hvaða helgidögum sem er.

Ég vona að þetta séu nógu góðar ástæður fyrir ráðningu en ég get sagt þér það að þú myndir ekki verða fyrir vonbrigðum.

Við erum ekki með neitt fast heimilisfang en við erum oftast bara að chilla út á sama græna túninu svo ef þú veist ekki hvar það er, þá er bara best að þú svarir okkur til baka í emaili.

Með fyrir fram þökk um skjót svör,

Fyrir hönd the Teletubbies,
Tinkie-Winkie

Eðall

Posted by Helgi Jó on April 18, 2006
Uncategorized / 5 Comments

Við bjuggumst öll við því einhvern timan að Darri Freyr yrði aðlaður.

Ennnn… það var einn fyrri til, og sýnir þessi síða ykkur mynd af Eðal-Darra:

Eðal-Darri

Einnig má á þessari síðu sjá myndir af Darra í föngulegum hópi Eðal-Dags, Eðal-Dofra og Eðal-Dís.

Við vonum síðan bara að Darri Freyr verði ekki minni maður og verði aðlaður sem fyrst (aths. að spila leikinn "Kóngurinn og kaþólska þernan" með Júlíu telst ekki sem öðlun)

[EDIT] Hér má sjá Maju Sif með verðlaunin sín eftir limbókeppni Skagastrandar

Maja vel að verðlaununum komin

Förðun og einelti

Posted by Helgi Jó on April 18, 2006
Uncategorized / No Comments

Frænka mín fór í lífefnafræði í háskólanum fyrir nokkrum árum. Sem er mjög til frásögufærandi, en allavega… Hún sagði að eitt af því sem hefði verið frábært við að fara í lífefnafræði en ekki t.d. lögfræði er að hún hefði ekki þurft að farða sig á hverjum degi áður en hún fór í skólann.

Ég bjóst við því að hún hefði ekki þurft að farða sig af því að raunvísindafólk og verkfræðingar hugsa ekki um útlitið og því væri enginn farðaður. En annað kom á daginn.
Í fyrradag var ég nefnilega staddur upp í VRII, með rautt hár og farðaður. Hvert sem ég gekk, þá var starað á mig með hneykslunarsvip og farðalausar stelpur pískruðu um mig út í horni, hlæjandi og bendandi á meðan gröfturinn vall út úr púðurslausu andlitsbólunum.

Það er sem sagt hugsað um útlitið í VRII, en það þykir greinilega fáránlega hallærislegt að vera með farða og því skil ég frænku mína fullkomlega sem farðaði sig aldrei. Það var ekki vegna þess að fólki var sama hvort menn væru með farða eða ekki, nei nei, það var vegna þess að fólk með farða er lagt í einelti af útlitsdýrkandi raunvísindadjöflunum þarna í VRII. Og ég hata djöfla.