Archive for November, 2005

villuleit

Posted by Helgi Jó on November 30, 2005
Uncategorized / 4 Comments


Finnið 5 villur

(c) Trausti Stef

Fótboltamót Ársins

Posted by Skull-Darri on November 29, 2005
Uncategorized / 4 Comments

Jæja, nú loksins varð af því, Supergengið Vs Dagdraumar í fótbolta. Leikurinn sem að allir hafa verið að bíða eftir síðan Liverpool vann stóra sigurinn!

Einvígið var háð á gervigrasvellinum hjá Lindarskóla núna í kvöld ( 29.11) klukkan 20, eða átti að vera þá, en sökum lélegs mætingar hjá Supergenginu þá var hitað upp með smá leik við litlu strákana sem voru á vellinum. Sá upphitunarleikur var geisispennandi og mátti litlu muna að dagdraumar + Einar margeir töpuðu þeim leik, en rétt mörðum hann.

En svo kom að þvi, Supergengið mætti.
Lið Supergengisins skipuðu Hildur, Bóbó, Edda og Sigrún. Maja sá sér ekki fært að mæta sökum Anna, samvkæmt áreiðanlegum heimildum er hún og hinn frægi handrukkari farin að slá sér upp saman en vill hún ekki tjá sig um það mál vegna hættu á líkamsmeiðingum, já ég veit hvað þið hugsið "maja vill það röff" en nei, ekki svoleiðis!
Lið Dagdrauma skipuðu Darri, Dóri, Helgi og Jói, en steinar, þar sem hann lifir á sama tímabelti og hvítarússar mætti ekki fyrr en undir lok leiksins.
Dómari að þessu sinni var Einar Margeir.

Leikurinn hófst, andrúmsloftið var rafmagnað og kalt (aðallega kalt, það snjóaði). Eftir stuttan leiktíma var fyrsta markið komið , Dagdraumum í hag! Eftir fyrstu 3 mínuturinar var Bóbó alveg búin, Edda ekki buin að hreyfa sig neitt ,Sigrún búin að verja 1 sinni og Hildur hlaupa á veggin 4 sinnum og Dagdraumar bunir að skora 4 mörk. Þegar flautað var af í fyrri hálfleik var staðan 6-0 fyrir Dagdraumum og Supergengið ekki sátt með gang mála.

Seinni hálfleikur var flautaður á og ætlaði allt um koll að keyra, eða allavega Hildur ætlaði að hlaupa okkur alla niður, en sú tilraun endaði bara á veggnum. Bóbó kom sterk til leiks fyrstu 3 mínuturnar aftur , og svo var hun alveg buin. Edda passaði sig að hreyfa sig alls ekki neitt, því hún átti sko að PASSA ÞENNAN STAÐ! þegar seinni hálfleikur var rúmlega hálfnaður mætti Steinar hugi og sættumst við þá á að Einar Margeir myndi bætast við Supergengið, og spilaði því tvöfalda stöðu, dómari og framherji Supergengisins. Eitthvað varð dómgæslan þeim í hag eftir það, en við sem sannir karlmenn vorum ekkert að væla undan því. En svo kom að því, þegar Dagdraumar voru að fagna einu marki sínu enn, þá hljóp Supergengið fram og tók miðjuna og hlupu inní teig og viti menn, þau settu einn í netið..! Í lok leiks var staðan 10-1 Dagdraumum í hag.

Við þökkum Supergenginu fyrir drenginlegan leik og get ég sagt fyrir hönd okkar allra að við hlökkum til að fá verðlaunina okkar 0

Kv. Darri Maradonna

SHIIIIIIT

Posted by Jóhannsson on November 27, 2005
Uncategorized / 6 Comments

Var á jólahlaðborði í gærkvöldi á broadway…. Eftir að hafa verið á Hotel Glym um síðustu helgi þá held ég að muni aldrei aftur borða jafn góðan mat, til dæmis var maturinn i gær algjört drasl….. En eftir matinn var svo boðið uppá sýninguna Nína og Geiri með Bjögga Halldórs sem var algjör snilld ( ef maður fílar bjögga náttla)

Allavega tilgangurinn með þessa færslu er reyndar sú að segja ykkur strákar mínir að þegar ég náði loksins að draga Darra Eyþórs með mér á Pravda hitti ég súpergengið eins og það leggur sig (minus Mariu reyndar…. held ég)… en þá barst talið að fótboltaleiknum sem á að vera i vikunni, og ég fór að halda því fram að við mundum rusta þeim… sem er náttla ekki spurning að við gerum, nema hvað að ég held, semsagt mig minnir að ég hafi gert veðmál við Siggu, sem hljómar einhvern vegin þannig að ef við töpum drengir þá þarf ég að ganga i nærfötum af siggu i einhvern tima (man ekki alveg)…. þannig að við VERÐUM að vinna…..

Anywho….. meira var það ekki i bili

_Jóhann Þórir_

Kjáni

Posted by Helgi Jó on November 27, 2005
Uncategorized / No Comments

Sast hérna niður án þess að hafa hugmynd um hvað ég ætti að skrifa um.

Þá liggur beinast við að setja punkt hérna.

[Edit] Kannski ekki.

Frétti að steinar ætlar að vakna af löngum bloggsvefni með einhverja sprengju. Nánar í Blaðinu á morgun.

Svo að lokum, for your info:
hópkynlíf með 5 manns, þar af 3 strákar og einn af þeim heldur því statt og stöðugt fram að einhver maður elski typpið á honum, mun aldrei ganga upp. Þannig að ef þið voruð að hugsa um hvað ætti að gera í kvöld, hvar ætti að sukka, þá er það klárlega ekki í hópkynlífi af ofansagðri gerð.

Annars væri fínt að heyra frá einhverjum sem vill stofna svona Swing-Klúbb með mér og Kristínu, við erum bæði mjög tilbúin í að hitta annað fólk.

And now for something completely different…

Posted by Jóhannsson on November 25, 2005
Uncategorized / 2 Comments

Nu kommer jag ihåg en rolig saga som en mycket begåvad mann berätta för mej när jag var på världsresa runt 1930, då jag va i Australien. Hann hadde haft en hund som blev så gammal att hann trodde att hann var en katt….

And now for something completely different…

Like i was saying, the obstacle at the main entrance was keeping the idiot of society from making his part of the deal happen, and therefore his pride was falling quickly. On the other hand he did make it to the idiocy award ceremony where he was awarded for being the most idiotic man of all. When he was to say his speech all he said was: " I might be an idiot, but I am no fool!"

…………………………………………………………………………………………………………..

Allavega, ég er blankari en andskotinn svo að eg legg til að við leggjum soldið undir i leiknum við supergengið….. Því við erum að fara að rústa þessu!!!

Annað… hver drap steinar?? hann bloggaði hér alveg uppi 10 sinnum þegar hann byrjaði, lofaði að setja inn myndir og læti, svo er hann bara horfinn…. hmmmm…..

By the way Steinar, ertu ekki að verða buin með brúðkaupsmyndirnar hans pabba minns?? Hann er að verða soldið oþreyjufullur, til dæmis stappaði hann littla hvolpin sem Addi var að fá sér og tvífótbraut hann… Held að ég sé næstur….

Og já, ég hata alla!!!!

_Jóhann Þórir_

Hvað varðar svefnleysi

Posted by Dóri-í-Dós on November 24, 2005
Uncategorized / 8 Comments

Í gærkvöldi átti ég erfitt með að sofna og ákvað um eitt leytið að senda öllum í símaskránni minni þetta sms: “Mér leiðist og get ekki sofnað. Vill einhver koma á kojufyllerí úti í skúr með mér?” Þau fáu svör sem ég fékk voru einhvernveginn á þessa leið:

Jóhann “Þorir” Þorleifsson – Ég er sofnaður.. sorry man
Stainer Hgui – Zzz.. Farðu að sofa :->
Maja Súperhözzler – Zzz.. Farðu að sofa :->
Edda Súperhorny – Ha? Kojufyllerí núna?
Elsa – Bíddu hver er þetta? (hver í andskotanum er Elsa annars?)
Mamma gsm – Er ekki í lagi með þig drengur?!
Pabbi gsm – hehe góður!.. Kem um leið og mamma þín sofnar!!
Fokking tussa gsm – Ertu eitthvað vangefinn? Ég var búin að segja þér að láta mig vera!! Nú fer ég með þetta í lögregluna!

Nú viðurkenni ég það að í fyrsta lagi eru stórar gloppur í símaskránni minni eftir að síminn minn kramdist á milli mín og 150 kílóa (þannig að ef þú fékkst ekki sms þá ertu ekkert í mínum augum!) og að þetta er kannski ekki rökréttasta sms sem að maður fær klukkan eitt um nótt á miðvikudegi.. En það var ekki það sem ég hugsaði um tvö leytið eftir slatta af Jagermeister.. Þá voru uppi miklar samsæriskenningar um að það væri klúbbur þarna úti.. Klúbbur sem kallaði sig “Leynilegur klúbbur fólks sem Dóri heldur að séu vinir hans en eru í raun svarnir óvinir” eða “LKFSDHASVHEEÍRSÓ” til að stytta þetta aðeins niður.. Eftir hálfan líter af Mjeði var ég farinn að spá í að kannski hefði ég sent þetta sms akkúrat þegar að þau voru með sinn mánaðarlega fund þar sem þau ræða töp og sigra í baráttu sinni í að útrýma geðheilsu minni. Þannig að þarna væru þau sitjandi í kringum stóra hringborðið sitt, hlæjandi frá sér allt vit… Þegar mjöðurinn var búinn ákvað ég að ég skyldi sko sýna þessu fólki í hverjum það væri að fokka og byrjaði að labba í áttina að Smáralindinni, sem eins og allir vita eru höfuðstöðvar alls ílls í heiminum. Þegar að ég var kominn hálfa leið áttaði ég mig á því að ég hafði gleymt að klæða mig, stuttu seinna rann upp fyrir mér að ég hafði gleymt hvernig á að labba þannig að ég hafði einhvernveginn dregið sjálfan mig þangað á augnlokunum. Alltíeinu varð litasprenging og ég sat á rassinum í stóru hásæti þar sem mcdonalds hafði áður staðið.. Þarna áttaði ég mig samt á því hvað var í gangi, lagði frá mér tóma mjaðarflöskuna og staulaðist inn í sturtu og lá þar í fósturstellingunni undir heitri bunu í nokkra klukkutíma. Þegar ég vaknaði var ég blindur á öðru auga, enda sá ég mér til hryllings að það var ekki til staðar lengur. Ég talaði bara í bundnu máli og hrafnar voru farnir að laðast að mér. Ég fór nú samt í vinnuna þar sem ég, eins og fyrir kraftaverk, sá að ég myndi sitja aðgerðarlaus allan daginn og hóf því að semja ferskeytlur. Í kringum hádegisbilið hringdi Darri Eyþórs og spurði hvort ég hefði nokkuð drukkið Mjaðarflöskuna með appelsínugula miðanum. Eftir að ég játaði því hló hann óstjórnlega og sagði mér að í henni væri blanda af tréspíra og lsd og að núna væri ég háður heróíni. Allt þetta gerðist vegna þess að enginn nennti að koma og tjilla með mér klukkan eitt um nótt á miðvikudegi.. Næst þegar ég sendi sms þá er einsgott að einhver fokking komi!

takk
Dóri-í-Dós – Svekktur tappi

Fótboltinn

Posted by Helgi Jó on November 22, 2005
Uncategorized / 22 Comments

Ég og heimastrákarnir hérna á dagdraumum tökum þátt í fótboltaleik á morgun. Einhver spyr sig kannski: "fótbolti? Dagdraumastrákarnir? Þeir hljóta þá að spila fyrir Val, frábærir menn í góðu liði." Vil ég við þá sem hugsa þetta, segja : "Það er ekki keppt á veturnar í úrvalsdeildinni, fífl, auk þess sem Valur er ömurlegt lið."

Disclaimer : Ef einhver vill koma öðru á framfæri en að Valur sé ömurlegt, hafið þá samband við Einar Margeir, hann ku vera að hópa fólk saman sem á spítur og annað lauslegt til þess að lemja mig með.
En ég hef margt fyrir mér um ömurleika Vals, og læt fylgja hér sanna sögu sem er lýsandi fyrir hvernig Valur eyðileggur líf fólks.

Þegar ég var 7 ára fór ég í Sumarbúðir í Reykjavík, sem er einmitt haldið í fasistabragganum hjá Val í Vatnsmýrinni. Einn daginn þegar ég kem svo heim frá búðunum, þreyttur eftir erfiðar æfingar, kem ég að kærustunni minni í rúminu með vini mínum….Suicide City.
Fleiri orð um þetta mál eru með öllu óþörf.

Enn, aftur að fótboltaleiknum sem við heimastrákarnir munum taka þátt í á morgun. Þar eigast við úrvalslið Súpergengisins og Dagdrauma og þar sem ekkert verður gefið eftir. Mun leikurinn fara fram í Fífunni og verðlaunin eru ekki af verri endanum.
Ég veit bara eitt að það eru nóg verðlaun fyrir Jóa ef aðeins ein stelpa blotnar inn á vellinum, af blóði. Vá, þetta var algjörlega óviðeigandi.

En allavega, ég bíð spenntur eftir þessum leik, þetta verður athyglisvert og held ég alveg örugglega mjög fyndið.

loosen up brotha’ Billy

Posted by Helgi Jó on November 20, 2005
Uncategorized / 2 Comments

Á tímum uppgjafar, svefnleysis og þynnkumeðal þar sem uppskriftin er : 1 stk rekstrarfræðiverkefni, 1 stk eðlisfræðilokaskýrsla, 5 stykki Níels (he is so small, need a lot of him) þá er gott að láta minna sig á það að það eru til menn sem hafa farið yfir um af of miklu námi.

Ég linka á :
Tom lehrer

og læt texta þessa ágæta lags fljóta með, því að ég veit um marga þarna úti sem vilja taka undir

“There’s antimony, arsenic, aluminum, selenium,
And hydrogen and oxygen and nitrogen and rhenium
And nickel, neodymium, neptunium, germanium,
And iron, americium, ruthenium, uranium,
Europium, zirconium, lutetium, vanadium
And lanthanum and osmium and astatine and radium
And gold, protactinium and indium and gallium (inhale)
And iodine and thorium and thulium and thallium.

“There’s yttrium, ytterbium, actinium, rubidium
And boron, gadolinium, niobium, iridium
And strontium and silicon and silver and samarium,
And bismuth, bromine, lithium, beryllium and barium.

“Isn’t that interesting?
I knew you would.
I hope you’re all taking notes, because there’s gonna be a short quiz next period.

“There’s holmium and helium and hafnium and erbium
And phosphorous and francium and fluorine and terbium
And manganese and mercury, molybdinum, magnesium,
Dysprosium and scandium and cerium and cesium
And lead, praseodymium, and platinum, plutonium,
Paladium, promethium, potassium, polonium, and
Tantalum, technetium, titanium, tellurium, (inhale)
And cadmium and calcium and chromium and curium.

“There’s sulfur, californium and fermium, berkelium
And also mendelevium, einsteinium and nobelium
And argon, krypton, neon, radon, xenon, zinc and rhodium
And chlorine, carbon, cobalt, copper,
Tungsten, tin and sodium.

“These are the only ones of which the news has come to Harvard,
And there may be many others but they haven’t been discovered.”

Koma svo, allir með.

Konfektdramað mikla.. Reynslusaga eftir Dóra

Posted by Dóri-í-Dós on November 20, 2005
Uncategorized / 2 Comments

Hvern hefur ekki langað í eitthvað sem hann gat ekki fengið?.. Hvort sem það er dótabíll, G.I. Joe eða pony hestur þá kannast allir við þessa heiftarlegu löngunartilfinningu sem að maður upplifir þegar að eitthvað er rétt í seilingarfjarlægð en samt alveg rosalega langt í burtu. Ég hef svolítið verið að upplifa þetta núna nýlega. Þannig er mál með vexti að vinnufélagi minn á konfektkassa sem hann geymir uppi í hillu inni í búð. Mér finnst konfekt mjög gott en fæ mér samt sjaldan. Bæði þarf það að vera rétta tegundin og svo verð ég að vilja konfektið, ég borða ekki nammi bara til að vera að borða nammi. En bara að sjá þennan konfektkassa þarna uppi í hillu, í seilingarfjarlægð hefur heldur betur æst upp í mér hungrið. Vinnufélagi minn vill skiljanlega halda góðgætinu út af fyrir sig og borða það einn en mér finnst hann ekki taka þetta nógu alvarlega. Konfekt er ekki nammi sem þú færð þér öðru hverju eða þegar þig langar í sykur, mér finnst að konfekt sé fyrir sérstök tilefni og þetta er svona gúmmelaði sem þú þarft að sýna smá ástúð til baka. Ekki bara tyggja og kyngja heldur leyfa súkkulaðinu að bráðna á tungunni og leyfa bragðinu að njóta sín. Núna í vikunni hef ég týnt mér í einhverjum draumaheimi og oft hrokkið upp og áttað mig á því að ég er búinn að vera að stara á konfekt kassann hálfan daginn. Núna um helgina þá var þessi melur ekki að vinna þannig að ég tók konfekt kassan niður úr hillunni. Ég var ekki alveg viss hvað ég ætlaði að gera og í raun sá ég eftir því að hafa nokkurn tíman snert kassann. En þarna var hann kominn á borðið fyrir framan mig. Ég horfði á hann í nokkrar mínútur og íhugaði hvort ég ætti að gerast svo grófur að opna kassann og fá mér. Mér fannst ég hreinlega hafa rétt á því að “stela” því að þú borðar ekki konfekt eins og bland í poka. Maður sem fær gefins dýrindiskonfekt og kemur svona fram við það á ekki rétt á því að eiga konfekt. En þar sem ég stóð þarna áttaði ég mig á því að mig langaði líklega ekki í konfektið eftir allt saman. Þetta var ekki einu sinni tegundin sem ég fæ mér venjulega. Það var bara eins og margra ára innbyrgð frekja og eigingirni væri loksins að springa út og mér leið eins og fimm ára skólastelpu sem heimtar nýjustu Bratz dúkkuna. Auðvitað þarf ég ekki að fá mér af þessu konfekti. Bara út af því að það er langt síðan að ég fékk mér mola síðast þýðir ekki að ég þurfi að hoppa á það næsta sem býðst. Svo endar það líka alltaf þannig að ég fæ gefins konfekt einhversstaðar. En skaðinn var skeður, ég gerði þetta ekki óséður.. Aðrir vinnufélagar sáu mig og ég veit að þetta á eftir að spyrjast út. Ég hef hingað til á lífsleiðinni reynt að vera heiðarlegur þannig að þetta er leiðinlegur blettur á samviskunni en ætli ég verði ekki bara að lifa við þetta. Þannig að Palli, ef þú ert að lesa þetta þá fékk ég mér ekki af konfektinu þínu og ég lofa að láta það vera í framtíðinni. Ja.. Nema mér náttla bjóðist nokkrir molar…

takk.

Dr. Swurtæng

Fyrst súkkulaði, svo vanilla

Posted by Helgi Jó on November 18, 2005
Uncategorized / 1 Comment

Finnst það mín samfélagsleg skyld að koma þessu á framfæri, þetta slær nánast Joghurt við:

http://www.string-emil.de/Seiten/Schoko_und_Vanilla/schoko.swf

– Samkynhneigð –

Ég og dóri erum búnir að plana það lengi síðan við keyptum okkar seinustu evrur að senda Emil 10 evrur til að fá aðgang að síðunni hans, enda fátt annað sem mig dreymir um að gera í jólafríinu eftir átök prófana, en að renna í gegnum örfáar myndir af String-Emil. ÉG er orðinn þreyttur á gægjum, á jógúrti, á bílum, ég vil bara sjá typpi. Og til þess þarf ég tíu evrur… og umslag.

Annars er það vísó á morgun. Mér var líka boðið að fara sem verslunarstjóri í Bónus á einhvers konar fyllerí + mat hjá Ora, en Darri Eyt og Jói Sænski buðu okkur dóra þar sem þeir komust hvorugir. Hefði viljað fara í bæði enda frítt áfengi og sætir strákar í þeim öllum. Auk þess sem ég er einstaklega verslunarstjóralegur, þið vitið hvað ég meina : Sjá hér

– Samkynhneigð endar –

Svo enda þetta á harðari nótum, því ég kann að vera harður. Sjá hér : Ég