Seinustu færslu var eytt. Ástæðan er augljós.
Eyddi helginni í ódýrri drykkju. Vísindaferð á föstudaginn hjá Marel, sem var frekar slöpp, eða a.m.k. bjóst ég við meira frá þeim, fengum alls ekki spennandi kynningu um fyrirtækið, eins og þeir eru nú að gera spennandi hluti þarna. Kvöldinu var svo haldið áfram með nýstárlegum hætti, en fórum við á skemmtistaðinn Pravda, sem er við hliðina á Hressó niðrí bæ(aldrei komið þangað áður, ég sver það). Man lítið eftir þessu kvöldi, og vaknaði ég í allt öðru rúmi en mínu daginn eftir. Laugardagskvöldið var svo afmæli hjá Eddu, Sigrúnu og Bóbó, en þar var einnig frítt áfengi, og nóg af því. Edda fékk Kúsa-boy í gjöf frá Steinari(stóran svartan eins og hún er vön) og er hún án efa búinn með eitt sett af batteríum nú þegar. Mjög fínt kvöld, þó ég hafi lofað að halda Darra frá drykkju(sem tókst engan veginn) og að ég hafi farið snemma heim. Einar Bangsi var í góðum gír á dansgólfinu og Bjarni gerði fátt annað en að reyna að plögga mér kellingu. Ég og Dóri kíktum síðan á 11-una til Torfa, sem er meistari í blöndun White Russian. Gerðum misheppnaða tilraun til þess að fara í fótboltaspil og vorum síðan næstum gabbaðir af kærustu Hákonar til að fara á Hverfisbarinn. En þangað inn fer maður ekki.
Annars er ég kominn með aðra mynd af mér á fazmo.is, sem er ekkert til að gleðjast yfir, enda fell ég alls ekki inn í þann hóp, annað en þessi maður : HANN ER Í MIÐJUNNI
Vil minna enn og aftur á það að Sólon er ógeðslegur staður. Dagurinn í dag fór síðan í VRII með Óla Pál, maðurinn sá fer að fara að greina sig í tætlur.
Darri Eyþórs spjallaði við mig í dag, minnti mig á að við verðum að fara hittast allir í þessum klúbbi. Höfum ekkert hist síðan á einstaklega misheppnaðri tilraun að sjá klámmynd í Regnboganum, sem endaði á bíómyndinni Bed Stories, sem er slakasta mynd sem ég hef séð. Gaman þó að horfa á Jóa veslast upp í sætinu sínu, enda meikar hann ekkert menningarlegra en 2 Fast 2 Furious. Held að Bjarna verði seint fyrirgefið fyrir að draga okkur á þessa ræmu.
En anyhoo, Darri talaði um að við þyrftum að hittast í þessari viku, og taka stefnuna á myndina Lie with me. Darri vill þó samt hita upp með alvöru ógeðismyndakvöldi eins og hann orðaði það, og horfa á Inside Deep Throat. Ég er alltaf til í eitthvað svoleiðis, og þeir sem vilja vera með okkur sjömenningunum, er velkomið að vera með. Darri lofar líka mangó-víni næstu helgi, og ef það er jafn gott og appelsínuvínið fræga, þá verð ég fyrsti maðurinn til að trekta það. Minnir mig á rauðvínið.
Anyhoo, farinn að þykjast læra.


