Archive for September, 2005

Efi

Posted by Dóri-í-Dós on September 28, 2005
Uncategorized / No Comments

Ég leyfi mér að efast um gildi rökstudds efa…

takk.

Dóri-í-Dós

Textabútur í lagi eftir Queen væri viðeigandi titill hér.

Posted by Helgi Jó on September 27, 2005
Uncategorized / 2 Comments

Vídeo eftir mig og dóra komið á pravda.is/video. Auglýsing fyrir þennan djammstað djammsins og erum við svona ágætlega sáttir við afraksturinn. Skilyrði til upptöku inn á þessum stað eru hörmuleg og miðað við tökutímann og allt það þá er þetta ágætis vídjó í heildina.

Mæli hinsvegar með þessu:

http://www.hi.is/~hej2/HP-FINAL_RENDER%20small.mov

En þetta er HP auglýsingin okkar dóra sem við tókum upp í stúdíó-inu sem Steinar leigir í ágúst. Eftirvinnsla tók svo við sem stóð í einn svakalega langan tíma, kláraðist 19.sept. Leikarar eru m.a. Arnar Björns, Stefanía, Helga Björns, Baldur Kri og Þóra en Óli Palli bjó til þetta snilldarstef/lag sem er undir. Takk minn kæri 0

Allavega tékkiði á þessu, þetta er ekki nema 20 sek en hefði komið betur út í ca. 30 sek útgáfu, en þetta var limitið.

Endilega kommentið svo á þetta.

Með gleðikveðju, Helgi.

Spegill

Posted by Dóri-í-Dós on September 27, 2005
Uncategorized / 3 Comments

Ég trúi. Ég hélt að ég myndi aldrei segja þetta … en ég trúi. Í dag gerðist svolítið fyrir mig sem að hefur breytt mér, tilfinningum mínum og gildismati mínu til frambúðar. Þó ég sé mikill aðdáandi bíómynda sem fjalla um yfirskilvitlega hluti þá hef ég aldrei trúað á neitt svoleiðis. Nei ok það er lygi, ég trúði einu sinni á guð, var meira að segja "biblíuspurningameistari" í vatnaskógi á sínum tíma en fyrir utan það þá hef ég aldrei verið myrkfælinn né fengið martraðir. Þetta breyttist allt í dag. Í dag tók ég mig til og rakaði mig (jú, ég geri það á svona þriggja vikna fresti). Ég byrjaði á því að beygja mig yfir vaskinn og skola andlitið. Ég leit upp, bölvaði nokkrum bólum og hóf að dreifa raksápunni jafnt og þétt yfir andlitið. Það var þá sem að ég tók eftir því. Spegilmyndin af mér var með græn augu en sjálfur er ég með brún. Auk þess hnykklaði spegilmyndin augabrúnirnar líkt og hún vildi segja: "Hvað heldur þú að þú sért?". Ég var hálfdáleiddur af þessu en náði með einskærum viljastyrk, sem er mér venjulega hulinn, að hindra sjálfan mig í því að núa mér um augun. Spegilmyndinni virtist brugðið, líkt og hún hefði treyst á að ég myndi hafa af henni augun og með því gefið henni svigrúm til að aðlagast aftur hreyfingum mínum. Ég hugsaði til allra Bandarísku hryllingsmyndanna þar sem einhverju yfirnáttúrulegu bregður fyrir en hverfur aftur um leið og brjóstastóra aðalhetjan lítur undan. Í dágóða stund stóð ég og horfði á spegilmynd mína. Mér leið eins og ég væri komin í Looney Toons teiknimynd þar sem Elmer Fudd stendur fyrir framan tóman ramma og Bugs Bunny stendur hinum megin og reynir eftir mesta megni að herma nákvæmlega eftir hreyfingum hans. Allt í einu byrjaði spegilmynd mín að hreyfa munninn eins og hún væri að tala við mig. Það var alger þögn inni á baðherberginu en samt fannst mér hávaðinn hrúgast upp á bakvið augun í mér. Spegilmyndin varð sífellt æstari og var farinn að öskra af lífs og sálar kröftum. Hún greip fast um rakvélina og hóf að skafa raksápuna af kinn sinni með slíkum krafti að rauðir blóðflaumarnir streymdu undan og blönduðust raksápunni. Ég kom við kinn mína og fann til nístandi sviða. Þegar ég dró hendina til baka var hún blóðrauð. Þrátt fyrir allt þetta leit ég aldrei af speglinum. Nú hafði umhverfi spegilmyndarinnar gjörbreyst og í staðin fyrir litla baðherbergið í litla bílskúrnum mínum var hún umlukin vítislogum og í stað þess að vera tvítug þá horfði ég nú á mig sem fullorðinn mann. Spegilmyndin var gjörsamlega gengin af göflunum og lamdi af áfergju á spegilinn. Spegilhurðarnar á skápnum byrjuðu að opnast lítið eitt og sprungur byrjuðu að myndast. Ég vildi öskra, ég vildi hlaupa eins langt í burtu og fæturnir gætu borið mig en þeir létu alls ekki að stjórn. Allt í einu sprakk spegillinn og allt varð svart. Ég vaknaði 2 tímum síðar liggjandi í fósturstellingunni úti í horni. Andlit mitt og hendur voru útataðar blóði en samt blæddi mér ekki. Baðherbergið var í rúst, skápurinn sem hafði verið boltaður á vegginn lá nú á gólfinu samanpressaður og beyglaður og spegilhurðin lá í þúsund molum á víð og dreif um gólfið fyrir utan tvo stóra hluta sem stóðu út úr veggjunum þaktir blóði. Það var fyrst þarna sem ég fríkaði út og hljóp inn í hús. Ég dró pabba með mér út í skúr og sagði honum söguna á mettíma, tíu orð í einu. Úti í skúr var allt fullkomlega eðlilegt, föt á víð og dreif en baðherbergið var tandurhreint. Pabbi leit á mig, tók um andlit mitt og horfði djúpt í augun á mér og sagði að ég þyrfti svefn, að ég lyti þreytulega út.
Ég veit að þetta gerðist.
Þetta var ekki draumur og þetta voru ekki ofskynjanir.
Ég VEIT að þetta gerðist því að núna eru augu mín græn.

takk.
Dóri-í-Dós

Lífsins Lystisemdir

Posted by Dóri-í-Dós on September 26, 2005
Uncategorized / 7 Comments

Nú hélt ég að ég væri fyrir þónokkru síðan búinn að uppgötva helstu lystisemdir lífsins og var því kannski… dáldið svartsýnn á framtíðina. Núna um daginn, eftir vinnu var ég í einstaklega góðu skapi og ákvað að fá mér bjór og slapp af áður en ég færi í afmælisveislu til Darra.. En síðan leit ég á klukkuna og uppgötvaði mér til hryllings að ég hefði ekki nema hálftíma til að fara í sturtu og hrúga á mig klæðnaði. Þannig að ég skellti Mastodon á fóninn, strípaði og skellti mér í sturtu.. með bjór! "Þvílík snilld… gæti ekki verið betra!" var með því fyrsta sem ég hugsaði en ég var fljótur að átta mig á villunni í þeirri röksemdarfærslu.. Þar sem ég vissi að ég myndi ekkert hözzla um kvöldið (þó ég sé ekki góður í stærðfræði þá kann ég basic líkindareikning) og kippti því bara í kadlinn… Nú skil ég loksins hvað stelpur eru alltaf að tala um hvað multi-tasking sé mikil snilld… En ég uppgötvaði líka eitt annað.. Það er ekki hægt fá það og kyngja bjór á sama tíma… Stelpur.. Er það auðveldara með sæði?

Nú er ég í tíma í Háskólanum í tíma sem heitir "Almenn málvísindi"… Akkúrat núna er uppi glæra sem fjallar um dans sem býflugur gera til að segja félögum sínum frá æti sem þær hafa fundið… What the fokk… Hvað kemur það fokking Ensku við? Mig langar í lögfræði..

takk.
Dóri-í-Dós

Daydream group

Posted by Helgi Jó on September 24, 2005
Uncategorized / 1 Comment

Málið að koma þessu bloggi á kortið. Koma því inn. Héðan af mun það heita Daydream group. Daydream clan eða Daydream posse hljóma þó spennandi en ég held ekki að það eigi upp á pallborðið hjá hluthöfum okkkar. Töluvert ímyndarvandamál hefur átt sér stað hérna á þessari vefsíðu og vonar stjórn Daydream group að með þessum breytingum muni það vera breyting til batnaðar.

Með nýju nafni koma nýir menn, nýjar áherslur, nýjar vitundarvakningar. Hér eru því nokkur dæmi um áformuð skrif á vefsíðu þessari:

1. Kristilegar umræður í takt við nútímalegar kynverur í verkum Sagnee Humphrey.
2. Héraðsréttur sem stöðnuð réttarhlutdeild á tímum síðrómantíkunnar.
3. Afsögn Sagnee Humphrey framkvæmdastjóra hins módernska sagnfræðifélags Bretlandseyja..
4. Ádeila á hið úrsérgegna réttarfar Norður-Sómalíu eftir lok nýlendutímabilsins.
5. Líf eftir Sagnee Humphrey?
6. Hagfræðileg sjónarmið á veröld Sagnee Humphrey með tilliti til staðlaðra lífsgilda hans.
7.Hver í fjandanum er þessi Sagnee Humphrey?

Eins og sjá má, eru spennandi tímar framundan. Fylgist með.

————————————

Fór í vísindaferð í gær. Vífilfell. Þeir framleiða víst bjór og sitthvað fleira. Bjóst þess vegna við því að bjórinn myndi flæða úr hverjum vaski, en það var ekki. Aðeins hálfur kæliskápur af bjór fyrir 30 verkfræðinga og við höfðum tæpan klukkutíma til þess að klára hann. Í kæliskápnum voru líka vínflöskur, "en þær eru ekki fyrir okkur". Nettir gaurar sem voru að kynna sem höfðu meiri áhuga á að kynna okkur sýrustig kóksins en að halda okkur glöðum og hella í okkur áfengi. Kynningin vakti líka gífurlegan fögnuð enda engin leið að heyra hvað þeir voru að segja, töluðu alltof lágt og önduðu ofan í hálsmálið á sér.
En þetta er fínt, hvað er maður að kvarta, ókeypis bjór og við gátum farið sátt á Pravda strax eftir ferðina… klukkan hálf sjö! Ef það er ekki nett að geta farið á ofurstað eins og Pravda sem býður alltaf upp á eitthvað nýtt og er með óvæntar uppákomur, þá er það að geta farið á hann 8 klukkustundum áður en djammið í bænum byrjar. Djamm, djeng.
Enda fórum við ekki á Pravda strax. Byrjuðum á að ég, Steinþór og Arnar keyptum okkur Beilís flösku í ríkinu og fórum fimm saman á Subway og þóttumst vera englendingar. Klassíkin tekin hjá afgreiðslustúlkunum og sögðu þær meðal annars:
"Heiða, segðu honum að panta sér typpi, nei brjóstahaldara". Við skildum auðvitað ekki íslensku og á meðan þær titruðu af hlátri pöntuðum við, fullu Englendingarnir, 4 brjóstahaldara og 1 typpi, haldandi á beilís og vondum Thor bjór. Á meðan kölluðu þær okkur djöfulsins róna og töluðu alltaf um Steinþór sem litla strákinn. Ágætar stelpur. Síðan kom að hefndaraðgerðunum þegar við þökkuðum pent fyrir matinn á kjarnyrtri íslensku og horfðum á þær roðna meira en túrtappa.

Pravda tók síðan við en ég fór snemma heim, afmæli hjá Darra-san í kvöld á þessum sama stað, safe the best for the rest.

Dóri var klukkaður af Darra bumbu

Posted by Dóri-í-Dós on September 22, 2005
Uncategorized / 7 Comments

Ok .. ég var klukkaður af Darra og á þessvegna að koma með fimm hreinskilin (óþekkt) atriði um mig..

  1. Þegar ég stofna til ástarsambands þá á ég það til að gefa of mikið af sjálfum mér og enda því eins og fokking þunglyndishrúga þegar stelpurnar átta sig á því að ég hef í rauninni ekkert fram að bjóða.
  2. Eina ástæðan fyrir því að ég set ekki út á öll lítil smáatriði sem pirra mig við fólkið sem ég umgengst daglega er að ég myndi ekki afbera/lifa af sömu meðferð.
  3. Ég er óöruggur um allt hvað mig varðar og þessvegna stend ég stundum full fast á skoðunum mínum og læt sem þær séu heilagur sannleikur. (common.. oft eru þær það bara!)
  4. Ég er viss um að ef ég reyni og legg mig fram þá get ég sofið í heila viku án hléa.
  5. Ég þekki ekki nógu mikið af fólki til að "klukka" til baka…

þannig að … takk fyrir mig en klukkið endar hér

takk.
Dóri-í-Dós

Hækon

Posted by Helgi Jó on September 18, 2005
Uncategorized / 5 Comments

Klukkan er rétt rúmlega fimm á laugardagsnóttu. Allt eins og það á að vera og ég var að fá hringingu frá Bjarna. Sem er ekkert nema eðlilegt á þessum tíma. Hann sagði mér að ég væri rekinn. Eva sagði mér síðan að ég væri Drekinn. Eins og Spyro. Spurði hvort ég væri ekki alltaf að stanga fólk og svona. Þetta er, ansi…

Darri Eyþórs hringdi svo og bauð mér fullan bala af rauðvíni ef ég kæmi með honum að djamma. Maðurinn sem vinnur 18 tíma á dag höndlar án efa fullan bala af rauðvíni, og sagði ég auðvitað já. Mundi svo eftir því að ég var að vinna. Sem er fínt. Ef maður vinnur á launum. Fjárans efnafræðingurinn átti inni hjá mér vakt og núna sit ég hérna launalaus eins og 8 dala gleðikona….. sem er ótrúlegt þar sem hún er þá að græða meira en ég. Og fær kynlíf að auki… en ég ríð lítið hér eins og annars staðar. Dóri er hinsvegar staddur hjá 365 ljósvakamiðlum, án efa að ríða. Spurning með 8 dalina. Steinar getur kannski spurt yfirmann sinn um frekari detaila á mánudaginn.

Æi, scratch this..

Fórum í hressandi golfferð í gær. Árleg golfkeppni verkfræðinema sem er auðvitað bara eitt. Bjór. Eða tveir. Ég og Darri vorum að sjálfsögðu saman í liði, byrjuðum að spila rétt eftir að við byrjuðum í HÍ svo við eigum þónokkra sögu á bakvið okkur. 36 manns í roki og mikilli rigningu á Vatnsleysuströnd að spila Texas Scramble. Helgi(me baby) og Darri(this man) vs. Jón Þór og Þórir. Vorum við jákvæðir og tókum strax stefnuna á sigur, í bjórgjöf. Ég byrjaði á því að skjóta fyrstu 10-12 skotin mín annað hvort of stutt eða of langt til vinstri eða bara alls ekki. Þórir hefur hinsvegar greinilega erft einhverja hæfileika frá föður sínum Phil Mickelson og spilar eins og atvinnumaður. Við sátum þó eitthvað í þeim og fóru hæfileikar okkar stigvaxandi eftir hvern bjór. Munurinn ekki mikill í endann, og fórum við best eina holu á pari. Finnst það nú bara helvíti gott hjá örvhentum manni vopnaður aðeins 3 járni og rétthentum manni vopnuðum aðeins 14 kylfum.

Eftir golfið var svo farið beint á hinn frábæra og ótrúlega stað Pravda, sem er alltaf ferskur…ójááá.

Gaman að þessu, og gaman að því að þessi færsla sé búin.

Biblían

Posted by Helgi Jó on September 17, 2005
Uncategorized / No Comments

Reynsla mín af raunveruleikanum hefur ekki kennt mér nokkurn skapaðan hlut um hvernig ég á að virka skilvirknislega í honum. Ég hef ákveðið að segja skilið við allt sem ég taldi vera satt og rétt og lifa lífinu samkvæmt lögum Ashlee Simpson.

Sem minnir mig á góða sögu….

Sagan heitir Biblían. Biblían eftir Jóhann Þórir. Jóhann Þórir er engum ókunnugur hér á landi. Sem einn af ástsælustu rithöfundum sem verslunin Bónus hefur gefið af sér hefur ritferill Jóhanns spannað líklegast nokkrar klukkustundir. En það hefur ekki stöðvað hann í ritlistinni og mun hann, halda áfram að skrifa þar til hann deyr, eða hættir í Bónus. Jafnvel þó að faðir hans hafi hlegið að honum, þegar Jóhann tilkynnti honum að hann ætlaði að vera rithöfundur, þá gafst þessi unga sál ekki upp og er með í smíðum eitt af undraverkum ritlistarinnar. Biblíuna. Allt síðan Plebbinn eftir Jón Gnarr var gefin út í verslunum Bónus hafa þeir verið að bíða eftir öðru kraftaverki. Og hvaða kraftaverk eru stærri en í Biblíunni. Biblíunni hans Jóhanns Þóris.

"Hver vill lesa eina sögu þegar hann getur lesið 6" – Jóhann, í viðtali við Variety, 08.09.2005

"Þegar ég skrifa, þá koma hugmyndirnar einhvern veginn stjórnlaust innan frá mér, ég veit ekki hvaðan, en eitt er víst, að þær koma frá einhverjum unaðslegum töfraheimi" – Jóhann Þórir, við Chicago Post, 12.09.2005

"…og Biblían hefur séð sinn mesta andstæðing til þessa" – Jonathan Rayn, gagnrýnandi hjá New York Times, 17.09.2005

"Ef ég hefði ekki byrjað að skrifa, myndi ég ekki vita hvar ég væri í dag. Væri ég enn á lífi? Væri ég enn að drekka bjór? Það er ekki mitt að svara því. En eitt veit ég, að ég væri ekki staddur þar sem ég er staddur í dag, í mestu hamingju sem þú getur upplifað" – Jóhann Þórir, í viðtali í Kvöldþættinum á NBC(Tonight show with Jay Leno)

"I have seen heaven, I have witnessed God, and now I experience the Bible" – Benny Hinn

Þó að sagan sé ekki komin út ennþá, hafa nokkrir velútvaldir fengið að sjá hana og eins og sjá má þaga þeir svo sannarlega ekki um ágæti hennar.

Fylgist með, ég veit að við gerum það. Biblían, Verson II kemur út rétt fyrir jólin 2005.

Reynsla mín af Raunveruleikanum…

Posted by Dóri-í-Dós on September 15, 2005
Uncategorized / 1 Comment

Reynsla mín af raunveruleikanum hefur ekki kennt mér nokkurn skapaðan hlut um hvernig ég á að virka skilvirknislega í honum. Ég hef ákveðið að segja skilið við allt sem ég taldi vera satt og rétt og lifa lífinu samkvæmt lögum Nine Inch Nails.

takk.
Dóri-í-Dós

Án viðeigandi titils

Posted by Helgi Jó on September 07, 2005
Uncategorized / 6 Comments

"Ég hef aldrei litið á mig sem stórmenni, ég læt alla aðra um það." – Helgi Jóhannsson, 7.september 2005 á frétta- og afþreyingarvefnum http://www.blog.central.is/dagdraumar.