Archive for July, 2005

Aðgerðarleysi

Posted by Dóri-í-Dós on July 27, 2005
Uncategorized / 5 Comments

Ég er búinn að vera að skrifa eitthvað drasl með hléum á milli vinnutíma… Ennþá er ekkert orðið heilsteypt en það er líka svo langt síðan að ég reyndi að hugsa að gangverkið er dálítið lengi í gang.. Einhver nefndi það að síðan væri nú þegar gegnumsýrð af kaldhæðni, biturð og þunglyndi en ég blæs á svoleiðis bull… Ég er ekkert nema bjartsýnin uppmáluð.. Auk þess er ég ekki búinn að skrifa neitt af viti.. En það kemur vonandi á næstu dögum, annars gefst ég upp á þessu blogg rugli og hengi mig.. nei ég meina… fer út í sólina og nýt lífsins…

takk.
Dóri-í-Dós

Ég er frjáls…

Posted by Dóri-í-Dós on July 17, 2005
Uncategorized / 4 Comments

Það er langt síðan að ég hef getað sagt að mér líði eins og Botnleðju lagi en síðastliðna daga hefur mér liðið nákvæmlega þannig…. Ég las aðeins yfir draslið sem ég var búinn að skrifa á hina síðuna mína og ákvað að segja skilið við þunglyndi, væl og barnaskap. Þessi síða verður vonandi ögn jákvæðari og ekki jafn andlega sligandi lesning og sú gamla var orðin. Thats it í bili…

takk
Dóri-í-Dós